Lífið

Snýr sér að umhverfisvernd

Breiðir út umhverfisvænan boðskap á nýjustu plötu sinni, Fork in the Road, sem kemur út á þriðjudaginn.
nordicphotos/getty
Breiðir út umhverfisvænan boðskap á nýjustu plötu sinni, Fork in the Road, sem kemur út á þriðjudaginn. nordicphotos/getty

Nýjasta sólóplata gömlu kempunnar Neils Young, Fork in the Road, kemur út á þriðjudaginn. Umhverfis­vænir bílar eru umfjöllunar­efnið, en það hefur verið Young hugleikið í langan tíma.

Hinum 63 ára Neil Young leiðist ekki að hrista upp í hlutunum og koma sínum hugðarefnum á framfæri við almenning. Skemmst er að minnast plötunnar Living with War þar sem hann gagnrýndi Bandaríkjastjórn harkalega fyrir Íraksstríðið. Nú þegar sú stjórn er farin frá völdum og nýr forseti hefur lofað að draga megnið af herliði Bandaríkjanna úr landinu beinir Young sjónum sínum að umhverfisvernd, sem er ekki síður mikilvægt málefni.

Stríðsgagnrýnin er þó síður en svo úr sögunni, eins og textinn í titillagi plötunnar ber vott um: „Forgot this year to salute the troops. They"re all still there in a fucking war“.

Fork in the Road er samt fyrst og fremst þemaplata sem er byggð á Lincvolt-verkefninu sem er samstarfsverkefni söngvarans og Jonathans Goodwin, sérfræðings á sviði lífræns eldneytis. Snýst það um að búa til umhverfisvænan orkugjafa fyrir bíla og notuðu þeir Lincoln Continental-bíl Young frá árinu 1959 í tilrauninni og nefndu hann Lincvolt. Nú er bíllinn tilbúinn til notkunar og hefur Young sett stefnuna á að aka honum þvert yfir Bandaríkin án þess að nota bensín. Bílnum verður svo lagt fyrir framan þinghúsið í Washington þar sem Young mun krefjast nýrra lausna hjá stjórnvöldum við að draga úr bifreiðamengun. Heimildarmynd um ferðalagið verður jafnframt tekin upp.

Young ætlar að með þessu að sýna það og sanna að hann er tilbúinn að láta verkin tala. Textinn í laginu Singing a Song segir allt sem segja þarf: „Just singing a song won"t change the world“. Sem sagt, ekki er nóg að kvarta bara og kveina í einhverju lagi, heldur verða menn að fylgja því enn frekar eftir vilji menn virkilega knýja fram breytingar.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.