Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Níels Pálmar Benediktsson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu, gaf skýrslu fyrir dómara í dag. Hann hafi einungis komið upphaflega í því skyni að lána bíl en neitar að hafa sent skilaboð þar sem lagt er á ráðin um hótanir um barnaklám. Innlent 18.8.2026 11:06
Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag. Þrír sakborningar fara fyrir dómara í dag. Innlent 18.8.2026 08:59
Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Fyrsti morguninn í aðalmeðferð Reykholtsmálsins fór í að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Þar heyrðist hann segja við félaga sinn að hann væri „í miðri frelsissviptingu“ og leggur á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. Innlent 17.8.2026 13:24
Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Innlent 4.3.2026 18:49
Sakamálin sem skóku þjóðina Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést. Innlent 28. desember 2024 07:15
Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Maltneskur karlmaður hefur lýst hrottafenginni meðferð af hálfu þriggja einstaklinga um nokkurra daga skeið í lok aprílmánaðar á þessu ári í Reykholti í Biskupstungum. Innlent 11. október 2024 16:18
Fólkið sem er talið hafa brotið á Maltverjanum látið laust Tveir sakborningar sem grunaðir erum um að brjóta á maltneskum karlmanni í Reykholti í Biskupstungum lok aprílmánaðar hafa ekki verið úrskurðaðir í frekara gæsluvarðhald. Innlent 10. júní 2024 11:40
Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. Innlent 6. júní 2024 12:00
Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Einn maður til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Öðrum einstaklingi hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en hefur áfram stöðu sakbornings í málinu. Innlent 27. maí 2024 14:52
Sleppt úr haldi lögreglu Einum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Atburðarásin er að skýrast að sögn lögreglu. Innlent 22. maí 2024 15:43
Vænsti maður og harðduglegur Íbúar í Reykholti og Laugarási bera eldri karlmanni sem hefur starfað og búið þar í lengri tíma ákaflega vel söguna. Þar fari harðduglegur vænsti maður sem fólk skilur ekki að einhver hafi viljað gera mein. Fjögur eru í gæsluvarðhaldi grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13. maí 2024 17:36
Maðurinn ríkisborgari Möltu Maðurinn sem grunur er um að hafi verið frelsissviptur í heimahúsi í Reykholti í Bláskógabyggð er með maltneskt ríkisfang. Fjögur eru í haldi vegna málsins, grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13. maí 2024 12:32
Samfélagið í áfalli vegna málsins Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir samfélagið í áfalli vegna meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í heimahúsi í Reykholti. Gerendur eru sagðir tengjast fjölskylduböndum. Innlent 12. maí 2024 19:09
Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Lögreglan á Suðurlandi er með til rannsóknar meinta frelsissviptingu, líkamsárás, og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Þrír karlmenn og ein kona sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 12. maí 2024 10:02