Lífið

Ásdís Rán opnar aðdáendasíðu

„Fólk getur þá fylgst náið með mínu daglega lífi, talað við mig í gegnum life-chat kerfi, fengið ráð, séð nýjustu myndirnar mínar og fleira skemmtilegt. Einnig er hægt að versla „fan-vörur" í búðinni á síðunni, downloada dagatölum og screensavers ásamt myndum og fleiru."
„Fólk getur þá fylgst náið með mínu daglega lífi, talað við mig í gegnum life-chat kerfi, fengið ráð, séð nýjustu myndirnar mínar og fleira skemmtilegt. Einnig er hægt að versla „fan-vörur" í búðinni á síðunni, downloada dagatölum og screensavers ásamt myndum og fleiru."

„Síðan er aðallega ætluð til kynningar á mér og minum verkum," svarar Ásdís Rán um vefsíðuna hennar Icelandicbeauty.com sem hún opnaði í dag.

„Svo er ég að þróa þarna leið til að komast í betra samband við aðdáendur og gefa þeim kost á að vera í persónulegu sambandi við mig í gegnum FanSpace-ið á síðunni."

„Síðan er aðallega ætluð fyrir Balkanskagann og USA til að byrja með þar sem stærstu aðdáendahóparnir eru."

„Síðan er ekki alveg tilbúin en verður í vinnslu smá saman næstu vikur. Það er hægt að versla núna vörur á síðunni í gegnum Paypal en fljótlega kemur svo venjulegt greiðslukerfi."

„Síðan er búin að vera í undirbúning og þróun síðan í janúar. Þetta er allt nýjasta tæknin í flass-heiminum og eflaust sú nýtískulegasta á Íslandi."

„Það tekur smá tíma að venjast þessari tækni en lítið er mál eftir nokkrar heimsóknir. Það er fyrirtæki á bak við mig hérna í Búlgaríu sem sér um rekstur á síðunni og búðinni en síðan er öll hönnuð af mér sjálfri og smíðuð eftir mínum hugmyndum," segir Ásdís.

„Sumarið er komið hingað svo ég er í skýjunum, fer að geta lagst útá svalir í sólbað á næstu dögum," segir Ásdís Rán áður en kvatt er.

Móðurhlutverkið, módelstörfin og ræktin

„Ég er að gera bara þetta venjulega, móðurhlutverkið, módelstörfin, ræktin og þannig. Ég er kannski helst búin að vera að undirbúa opnun á þessari síðu. Þetta er búið að vera heilmikil vinna," segir Ásdís.

„Ég er með nokkrar fréttir í vinnslu í pokahorninu sem ég gef upp á næstu dögum ef allt gengur eftir. Sjónvarpsþátturinn „footballerswifes" fer í sýningu núna 18. apríl og ég reikna með að það verði töluvert meira að gera eftir að hann er kominn í loftið," segir Ásdís. Heimasíða Ásdísar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.