Lífið

Tónlistarmenn fengu 11 milljónir

Eldar Ástþórsson hjá Kraumi tilkynnir um úthlutanir Kraums á skemmtistaðnum Boston við Laugaveginn. fréttblaðið/anton
Eldar Ástþórsson hjá Kraumi tilkynnir um úthlutanir Kraums á skemmtistaðnum Boston við Laugaveginn. fréttblaðið/anton

Tónlistarsjóðurinn Kraumur úthlutaði í gær tæpum ellefu milljónum króna til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins.

Alls var 4,9 milljónum veitt til tónlistarmanna og hljómsveita. Hjaltalín fékk hæsta styrkinn, eða 1,2 milljónir króna. Hann mun nýtast við gerð nýrrar plötu og tónleikahald. „Fyrir hljómsveit eins og Hjaltalín þar sem eru sjö kjarnameðlimir er það mjög gott að fá svona pening. Við erum líka að vinna í okkar næstu plötu og það er mikill kostnaður við hana. Þessi peningur verður vel nýttur við gerð hennar,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður Hjaltalín, hæstánægður með styrkinn.

Næsthæsta styrkinn, eða hálfa milljón, fengu Nordic Affect, Sin Fang Bous, Ólafur Arnalds og For a Minor Reflection. Einnig fékk Lay Low hálfa milljón fyrir tónleika sína erlendis síðar á árinu, þar á meðal á hátíðunum Glastonbury og End of the Road. Að auki fékk Mógil hálfa milljón í styrk fyrir tónleika sína á stærstu heims- og þjóðlagahátíð heims, Vomex, og fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Ísland.

Ólöf Arnalds, sem spilaði einmitt á Vomex í fyrra við mjög góðar undirtektir, fær einnig hálfa milljón vegna undirbúnings annarrar plötu sinnar.

Þá fá þrjár efstu sveitirnar á Músíktilraunum eina milljón króna samanlagt fyrir hljóðverstíma á Flateyri. Einnig voru myndarlegir styrkir veittir vegna námskeiða og vinnusmiðja á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður og vegna tónleika ungra listamanna á Listahátíð Reykjavíkur og tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi, auk fleiri styrkja. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.