Listahátíð kynnt 2. apríl 2009 03:45 Víkingur Heiðar er með einleikstónleika á Listahátíð í Reykjavík sem stendur í tvær vikur og hefst 15. maí.
Miðasala hófst á þrítugustu og níundu Listahátíð í Reykjavík í gær. Þá kynntu forráðakonur hátíðarinnar dagskrána í heild sinni en áður hafa birst nokkrar fréttir af atburðum á hátíðinni; tónleikum Deboruh Voight sem nú er uppselt á og Húslestra og Stofutónleikaröðum, viðburðum sem fara fram í heimahúsum. Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, og Jóhann Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri tóku báðar við störfum sínum í þann mund sem kreppti að. Þær hafa því haft minna úr að moða og því eins og Hrefna kallaði það, snúið inn á við. Þrátt fyrir þrengri stakk er dagskrá hátíðarinnar ótrúlega viðamikil: tvær óperur verða frumfluttar, athyglisverð og öðruvísi atriði verða í boði fyrir unga áhorfendur: Hjaltalín í sparifötum, Tiger Lillies og Lhasa del Sela: myndlistarviðburðir verða tólf að tölu og standa margir fram eftir sumri. Sinfónían, Kammersveitin og Stórsveit Reykjavíkur skila sínu framlagi með glæsilega og spennandi stjórnendur yfir nýjum efnisskrám. Og er þá ekki allt talið: nauðsynlegt er að skanna dagskrána í heild á vef á www.listahatið.is en þar er nú opið fyrir miðakaup á alla viðburði hátíðarinnar sem stendur frá 15.-31. maí. Eins og var afráðið fyrir löngu verða á hátíðinni gestir sem leggja út á strætin: Götuleikhúsið Forboðnir ávextir kemur frá Ástralíu og mun spranga um götur borgarinnar opnunarhelgina 15. og 16. maí. Fimm hjólhýsi í kvennalíki verða á ferð um borgina og myndlistarsýning verður í fjórum vitum, hverjum í sínu landshorni. Óperurnar tvær sem fluttar verða á Listahátíð eru Í óðamansgarði eftir Sunleif Rasmussen og byggir á sögu Heinesen, Fjandinn hleypur í Gamalíel eins og hún nefnist í þýðingu Þorgeirs Þorgeirsonar. Sviðsetningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhúsa Íslands og Færeyja, en meðal söngvara sem þar koma fram eru Eyjólfur Eyjólfsson, Þóra Einarsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson. Hin óperan er líka byggð á bókmenntaverki, Heli eftir Sigurð Nordal, en höfundur hennar er Sigurður Sævarsson. Caput leikur undir en söngvarar eru þau Ágúst Ólafsson, Jóhann Smári Sævarsson og Hulda Björk Garðarsdóttir. Hr. Níels setur verkið upp í Íslensku óperunni. Þá verður í Landnámssetri í Borgarnesi flutt verkið Vöpuspál. Höfundar og flytjendur eru Sten Sandell og Sverrir Guðjónsson. Einsleikstónleikar Listahátíðar verða að teljast einn hápunkta hennar en þann 17. maí verður Víkingur Heiðar Ólafsson með tónleika í Háskólabíó þar sem hann flytur umskriftir sínar á þekktum íslenskum lögum í bland við verk meistaranna. Auk Reykjavíkurborgar og Menntamálaráðuneytis sem eru helstu styrktaraðilar Listahátíðar í Reykjavík hafa fyrirtækin Iceland Express, Radisson SAS og Samskip lagt henni lið sem aðalsamstarfsaðilar. Veggspjald hátíðarinnar í ár er hannað af Katrínu Ólínu Pétursdóttur. Nánari grein verður gerð fyrir einstaka dagskrárliðum á hátíðinni hér í blaðinu á næstu dögum. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Sjá meira