Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr meirihluti skopmynd af ríkisstjórn Davíðs og Halldórs Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn, sagði nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í borginni skopmynd af ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar og að hér væri á ferðinni meirihluti sem myndaður hefði verið eftir höfði Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og ritstjóra Fréttablaðsins. 21.8.2008 10:51
Gísli Marteinn fær laun fyrir störf varaforseta Borgarstjórn kaus Gísla Martein Baldursson í sæti annars varaforseta borgarstjórnar við upphaf borgarstjórnarfundar í morgun. 21.8.2008 10:35
Ólafur sakar sjálfstæðismenn um vélráð, lygar og svik Ólafur F. Magnússon réðst að Sjálfstæðisflokknum í kveðjuræðu sinni sem borgarstjóri á borgarstjórnarfundi í morgun þar sem nýr meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna tekur við. 21.8.2008 10:21
Á sjötta tug umsækjenda um forstjóra Keflavíkurflugvallar Fimmtíu og fjórir sóttu um starf forstjóra Keflavíkurflugvallar ohf. Jón Gunnarsson, formaður stjórnar félagsins, segir að ekki verði gefið upp hverjir sóttu um enda sé slíkt ekki skylt eins og ef um ríkisstofnun væri að ræða. 21.8.2008 10:07
Sara Dögg komin á Stuðla „Ég er guðslifandi fegin að hún er komin í öruggar hendur," segir Helen Halldórsdóttir. Hún auglýsti á mánudag í fjölmiðlum eftir Söru Dögg, fimmtán ára dóttur sinni sem þá hafði verið saknað frá því á föstudag. 21.8.2008 09:50
Gestir safnast í og við Ráðhúsið - Jakob þandi nikkuna Fólk er þegar farið að safnast saman á áhorfendapöllunum í Ráðhúsi Reykjavíkur en eftir þrjá stundarfjórðunga hefst borgarstjórnarfundur þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir tekur við sem nýr borgarstjóri Reykvíkinga. Óskar Bergsson kom fyrir stundu í Ráðhúsið og hitti þar fyrir stuðningsmenn sína. 21.8.2008 09:14
Kaupmáttur rýrnar áfram - nú um vel á fimmta prósent Kaupmáttur í landinu hefur rýrnað um fjögur og hálft prósent síðastliðna tólf mánuði ef tekið er mið af þróun launavísitölu og verðbólgu. 21.8.2008 09:12
Slökktu eld í bílhræi Slökkviliðið hefur slökkt eld sem logaði í bíl við Sæbraut nærri Sundagörðum fyrr í morgun. 21.8.2008 08:59
Unnið að rannsókn í Hellisheiðarvirkjun Ekkert liggur enn fyrir um orsakir banaslyssins í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi, þar sem tveir rúmenskir starfsmenn undirverktaka létust þegar þeir voru við vinnu inni í stóru vatnsröri. Starfsmenn Vinnueftirlitsins og lögreglumenn unnu að rannsókn fram á nótt, en lík Rúmenanna voru flutt til Reykjavíkur þar sem þau verða væntanlega krufin. 21.8.2008 08:40
Líklegt að fuglar hafi orsakað hreyfilbilun í Icelandairþotu Flest bendir til þess að tveir fuglar hafi valdið því að annar hreyfill þotu Icelandair missti afl skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli fyrir um mánuði, og henni var lent aftur í skyndingu. 21.8.2008 08:29
Jarðskjálfti á Suðurlandi Jarðskjálfti upp á tvo komma fimm varð á Suðurlandi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Upptök hans voru um þrjá kílómetra norðaustur af Hveragerði og fanst hann vel í bænum og víðar í Ölfusi. Nokkrir eftirskjálftar fylgdu og eru þetta eftirskjálftar eftir Suðurlandsskjálftann í vor, að sögn jarðvísindamanna Veðurstofunnar. 21.8.2008 08:27
Innbrotsþjófar gómaðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt þrjá unga karlmenn, grunaða um innbort í tvo skóla í borginni í nótt. Þeir voru handteknir í tengslum við innbrot í annan skólann og bíða nú yfirheyrslu. Þá voru þrír aðrir ölvaðir menn handteknir, grunaðir um sitthvað misjafnt og ein kona var handtekin vegna aðildar að innbroti. Alls gistu tíu manns fangaklefa lögreglunnar í nótt, sem er óvenju mikið í miðri viku. 21.8.2008 07:22
Ráðist á leigubílstjóra í nótt Leigubílstjóri var barinn og rændur í efri byggðum Reykjavíkur í nótt, en hann meiddist ekki alvarlega. Þegar hann hafði ekið konu á áfangastað hennar, sagðist hún ekki eiga fyrir farinu og bað bílstjórann að koma út með sér að sækja peninga. 21.8.2008 07:19
Geir veldur Valgerði vonbrigðum Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, gerir viðtal Markaðarins í dag við Geir H. Haarde forsætisráðherra að umfjöllunarefni í nýjum pistli á heimasíðu sinni. 20.8.2008 22:30
Banaslys í Hellisheiðarvirkjun - Tveir látnir Lögregla og sjúkralið frá Selfossi og Reykjavík voru kölluð að Hellisheiðarvirkjun upp úr kl. 19:00 í kvöld vegna alvarlegs vinnuslyss. Lögreglumenn eru ennþá við vinnu á vettvangi en tveir erlendir starfsmenn verktakafyrirtækis létust í slysinu. 20.8.2008 20:17
Vongóður þrátt fyrir að 200 starfsmenn vanti Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður ÍTR, er vongóður um að það takist að ráða starfsmenn á frístundaheimili Reykjavíkurborgar. Enn vantar 200 starfsmenn á frístundarheimilin sem taka til starfa í næstu viku þegar skólar hefjast. 20.8.2008 21:34
Guðjón Arnar verður að svara fyrir Ólaf Formaður Frjálslynda flokksins verður að gera afdráttarlaust grein fyrir því hvort að Ólafur F. Magnússon muni leiða flokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum líkt og Ólafur heldur fram, að sögn Jóns Magnússonar þingmanns flokksins. 20.8.2008 20:57
Aðgangur Rúv að auglýsingamarkaði takmarkaður Til stendur að takmarka aðgang Ríkisútvarpsins að auglýsingamarkaðnum. Menntamálaráðherra vonast til að geta kynnt ríkisstjórninni hugmyndir þess efnis í vetur. 20.8.2008 19:30
Umsóknum um lán fjölgar hjá LÍN Umsóknum um námslán hjá LÍN hefur fjölgað verulega miðað við sama tíma í fyrra. Fjórðungi fleiri umsóknir hafa borist vegna náms í Háskóla íslands. 20.8.2008 19:12
Búið að skoða þriðjung húsa vegna jarðskjálfta Viðlagatrygging hefur lokið við að skoða um þriðjung af tvö þúsund og tvö hundruð húseignum sem tilkynnt var um tjón á vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi í lok maí og hefur greitt út 1,4 milljarða í bætur. Um þrjátíu húseignir hafa verið dæmdar ónýtar, þar af fjórtán á Selfossi. 20.8.2008 18:58
,,Ótrúlegt að það skuli vera fólk á lífi" Rögnvaldur Hólmar Jónsson, flugvirki sem starfar sem verktaki fyrir Icelandair, var á flugvellinum í Madríd þegar flugvél Spainair brotlenti þar í dag. Hann segir að það sé ótrúlegt að einhver skuli vera álífi eftir slysið. 20.8.2008 17:53
Tvö hundruð starfsmenn vantar á frístundaheimili borgarinnar Enn vantar 200 starfsmenn á frístundarheimili Reykjavíkurborgar sem taka til starfa í næstu viku þegar skólar hefjast. 20.8.2008 17:03
Á brattann að sækja fyrir Ísland Norðmenn ætla að leggja allan sinn þunga að baki framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nú á lokasprettinum. Aðstoðarutanríkisráðherra Noregs segir á brattann að sækja, en er vongóður. 20.8.2008 20:01
Alvarlegt slys í Hellisheiðarvirkjun Alvarlegt slys varð í Hellisheiðarvirkjun fyrir stundu. Allt tiltækt lið lögreglu- og sjúkramanna á Selfossi var sent á staðinn ásamt liðsauka úr Reykjavík. Ekki er vitað hversu margir eru slasaðir en nokkrir munu vera alvarlega slasaðir og þar af einn lífshættulega. Jarðskjálfti að stærðinni 2,5 varð klukkan rúmlega hálf sjö í kvöld á svæðinu. Ekki er vitað hvort að sjálftin tengist sslysinu. Nánari upplýsingar fengust ekki að svo stöddu. 20.8.2008 19:32
Jarðskjálfti norðaustan við Hvergerði Í kvöld klukkan 18:38 varð jarðskjálfti að stærð 2,5 með upptök um 3 kílómetra norðaustan við Hveragerði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 20.8.2008 19:23
Stólahrókeringar við Ráðhús til þess að mótmæla nýjum meirihluta Ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar og Vinstri - gærnna hyggjast bjóða upp á stólahrókeringar við Ráðhúsið í fyrramálið klukkan hálftíu, áður en aukaborgarstjórnarfundur, þar sem nýr meirihluti tekur við, hefst. 20.8.2008 16:50
Þrír slösuðust í árekstri í Grímsnesi Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir árekstur jeppa og fólksbíls við Borg í Grímsnesi. 20.8.2008 16:30
Kona datt í Breiðholti Kona á fimmtugsaldri datt illa í Breiðholti eftir hádegi í gær og var óttast að hún hefði fótbrotnað en henni var snarlega komið undir læknishendur. Um kvöldmatarleytið skarst kona á fertugsaldri illa á hendi. Hún var að stússa í eldhúsi í íbúð í miðborginni þegar óhappið varð og þurfti konan sömuleiðis að leita til læknis. 20.8.2008 16:21
Borgarstarfsmönnum boðið í enn einn starfslokamorgunverð borgarstjóra Öllum starfsmönnum Reykjavíkurborgar verður á morgun boðið í sérstakan morgunmat í tilefni af starfslokum Ólafs F. Magnússonar sem borgarstjóri. Langar borgarstjóra með þessu að þakka fyrir ánægjulegt samstarf. 20.8.2008 16:05
Tryggja þarf RÚV tekjur ef stöðu á auglýsingamarkaði verður breytt Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að ef breyta eigi stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði hljóti að verða skoðað hvernig tryggja skuli félaginu tekjur til að sinna áfram hlutverki sínu sem almannaþjónustuútvarp. 20.8.2008 15:58
Reykjavíkurborg tekur tímabundið yfir lán Valsmanna Reykjavíkurborg, Valsmenn hf. og Knattspyrnufélagið Valur skrifuðu í dag undir samkomulag vegna uppbyggingar á íþróttasvæði Vals við Hlíðarenda og breytinga á deiliskipulagi svæðisins. Kemur þar Reykjavíkurborg til móts við Valsmenn hf. og Knattspyrnufélagið Val vegna fjárhags-, rekstrar- og skipulagsvanda sem komið hefur upp vegna endurskoðunar á skipulagi fyrirhugaðrar framtíðaruppbyggingar á svæðinu, meðal annars uppbyggingu HR og Samgöngumiðstöðvar. 20.8.2008 15:46
Ellefu ára piltar teknir með loftbyssur Lögreglan haldlagði tvær loftbyssur í Reykjavík í gær. Loftbyssurnar voru í fórum tveggja 11 ára stráka sem viðurkenndu að hafa beint þeim að öðrum krökkum. 20.8.2008 15:39
Samtök um nýtingu orkuauðlinda í bígerð Vísir hefur heimildir fyrir því að unnið sé að stofnun samtaka sem ætli sér að að skora á kjörna fulltrúa þjóðarinnar til að nýta orkuauðlindir landsins, svo nýta megi orkuna á sem bestan hátt fyrir land og þjóð. 20.8.2008 15:35
Þarf að hreinsa veggjakrot í hálft ár Veggjakrotari, sem gripinn var við iðju sína við fjölbýlishús á höfuðborgarsvæðinu í gær, mun mála yfir allt veggjakrot sem kemur á umrædda fasteign næsta hálfa árið samkvæmt samkomulagi. 20.8.2008 15:32
Nærri 5700 skráðir til leiks í Reykjavíkurmaraþon Tæplega 5700 manns hafa skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþon Glitnis sem fram fer á laugardag. 20.8.2008 15:01
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur safna liði á palla Ráðhússins Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hvetja félagsmenn sína til þess að fjölmenna á palla Ráðhússins í fyrramálið þar sem von sé á skipulögðum aðgerðum af hálfu minnihlutaflokkanna í borgarstjórn. 20.8.2008 14:31
Jón Ásgeir og Hannes fóru ekki með í Miðfjarðará Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og FL Group, og Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group og þáveradndi stjórnarfromaður Gesysi Green Eneergy, voru ekki í veiðiferðinni í Miðfjarðará sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Vísi í dag. 20.8.2008 14:29
Jón líklegur sem stjórnarformaður OR Óskar Bergsson borgarfulltrúi framsóknarmanna hefur kynnt sjálfstæðismönnum þá hugmynd að Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, verði formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. 20.8.2008 13:58
Minni ásókn í gæsaveiðilendur Auðmenn og stórfyrirtæki leigja nú heldur færri veiðilendur til að stunda gæsaskytterí en undanfarin ár. Veiðitíminn hófst í morgun. 20.8.2008 13:51
Synjun lögreglu vísað til úrskurðarnefndar um upplýsingamál Vísir.is hefur beðið úrskurðarnefnd um upplýsingamál að fjalla um synjun Lögreglustjórans á Höfuðborgasvæðinu á beiðni Vísis um að fá upplýsingar um hversu mörg mál embættið hefur látið niður falla á þessu ári. 20.8.2008 13:39
Niðurstöður í samkeppni um hönnun íslenskuhúss kynntar á morgun Það kemur í ljós á morgun hvaða tillaga ber sigur úr býtum í samkeppni um hönnun húss fyrir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. 20.8.2008 13:38
Handboltaæði að grípa um sig Sannkallað handboltaæði ríkir á Íslandi eftir að Íslendingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Ólympíuleikanna. 20.8.2008 13:17
Sakar Hönnu Birnu um að fara með ósannindi Ólafur F. Magnússon borgarstjóri sakar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, verðandi borgarstjóra, um ósannindi í tengslum við umræðu um fjármál borgarinnar. 20.8.2008 13:05
Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði. 20.8.2008 12:56
Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór. 20.8.2008 12:41