Innlent

Sakar Hönnu Birnu um að fara með ósannindi

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri sakar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, verðandi borgarstjóra, um ósannindi í tengslum við umræðu um fjármál borgarinnar.

Í yfirlýsingu frá Ólafi kemur fram að sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafi lagst lágt í málatilbúnaði sínum og sagt hann ljúga þegar hann greini frá alvarlegum staðreyndum í fjármálum borgarinnar. „Það liggur fyrir að tekjur borgarinnar eru undir áætlunum og afar erfitt verður að standa undir fyrirhuguðum útgjöldum. Því er nauðsynlegt að ekki sé efnt til nýrra stórframkvæmda sem hvorki eru í 3 ára fjárhagsáætlun borgarinnar eða í forgagnsröðun málefnasamnings fráfarandi meirihluta en þar er lögð áhersla á að verja velferðarþjónustuna," segir í yfirlýsingunni.

Ólafur segist því sitja undir ásökunum um ósannindi varðandi fjármál borgarinnar en hann hafi vísað í gögn máli sínu til stuðnings. „Þá segist oddviti Sjálfstæðisflokksins og verðandi borgarstjóri aldrei hafa séð þessi gögn. Það er auðvitað fjarstæða, enda fráleitt að oddviti Sjálfstæðisflokksins viti ekki um þessi mál. Ósannindi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur eru alvarlegt mál og minna á þá staðreynd að forveri hennar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, var rúinn trausti eftir að segja ósatt í fjölmiðlum," segir Ólafur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×