Innlent

Ólafur sakar sjálfstæðismenn um vélráð, lygar og svik

MYND/GVA

Ólafur F. Magnússon réðst að Sjálfstæðisflokknum í kveðjuræðu sinni sem borgarstjóri á borgarstjórnarfundi í morgun þar sem nýr meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna tekur við.

Vilhjálmur Þ. Vihjálmsson var kjörinn forseti borgarstjórnar með atkvæðum meirihlutans og Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, var kjörinn fyrsti varaforseti með öllum greiddum atkvæðum. Annar varaforseti er Gísli Marteinn Baldursson.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, frárandi forseti borgarstjórnar og verðandi borgarstjóri, afhenti stjórnina til Vilhjálms sem stjórnaði kjöri borgarstjóra. Áður en til þess kom tók Ólafur F. Magnússon til máls og fór hörðum orðum um sjálfstæðismenn.

Hann vitnaði til orða Jóns Arasonar biskups þegar hann var leiddur til aftöku og sakaði sjálfstæðismenn um vélráð, lygar, óheildi og svik gagnvart sér. Vélráðin hefðu verið brugguð í Valhöll og hann leiddur til slátrunar í þriðja sinn af Sjálfstæðisflokknum. Vísaði hann til þess að hann hefði verið klappaður út af landsfundi Sjálfstæðisflokksins, að sjálfstæðismenn hefðu svikið hann eftir síðustu kosningar og nú með myndun nýs meirihluta með Framsóknarflokknum.

Sagði hann þó að rödd hans yrði áfram í borgarstjórn og hann myndi áfram vinna að málefnasamningnum sem kynntur var í janúar og stuðla að velferð, öryggi og umhverfismálum. Þá myndi hann framfylgja vilja meirihluta borgarbúa og landsmanna í flugvallarmálinu.

Gagnrýndi hann Kjartan Magnússon og Vilhjáms Þ. Vilhjálmsson sem hefðu haft uppi miklar heitstrengingar þegar þeir hefðu leitað til hans um samstarf F-lista og Sjálfstæðisflokksins. Hinir fimm borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu orðið ofan á og fyrirmælum hefði verið hlýtt beint úr Valhöll. Lýsti Ólafur vantrausti á nýjan meirihluta og sagðist ekki treysta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til að leiða hann.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×