Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jákvæð afkoma ríkissjóðs Ríkisreikningur fyrir árið 2007 var birtur í dag. Ríkissjóður skilar jákvæðri afkomu en tekjuafgangur í rekstrarreikningi er 88,6 milljarðar íslenskra króna. Það nemur 18,2 prósentum af tekjum ársins. Árið 2006 var tekjuafgangurinn 81,8 milljarðar en síðustu þrjú árin hefur ríkissjóður skilað samanlagt 238 milljörðum í tekjuafgang. Ríkissjóður var í árslok í fyrra með jákvætt eigið fé sem nam 10 milljörðum króna. Það mun hafa verið í fyrsta sinn sem það gerist, að því er segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu og bent á til samanburðar að árið 2000 hafi eigið fé ríkissjóðs verið neikvætt um 198 milljarða. 19.8.2008 14:55
Skýrist á fimmtudag til hvaða aðgerða verður gripið Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist ekki ætla að ræða fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir hjá borginni á forsendum minnisblaðsins sem Ólafur F. Magnússon talaði um á blaðamannafundi fyrr í dag. Ólafur sagði frá því að hugmyndir væru uppi innan borgarkerfisins að draga saman launakostnað um átta prósent og minnka yfirvinnu borgarstarfsmanna. Gísli segir málin skýrast á fimmtudaginn kemur. 19.8.2008 14:23
Lúðvík Geirsson: Erum ekki að skáka starfsfólki til Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir engan grundvöll fyrir gagnrýni Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem ritar um „sjálfsgagnrýni Samfylkingar“ í Fréttablaðið í dag. 19.8.2008 14:19
Mengun í borginni yfir heilsuverndarmörk á sunnudaginn Mengun í höfuðborginni fór yfir heilsuverndarmörk á sunnudaginn var og var það vegna mengunar frá meginlandi Evrópu. 19.8.2008 14:05
Gary Glitter sleppt úr fangelsi Barnaníðingnum og rokkaranum Gary Glitter var sleppt úr fangelsi í Víetnam í gær eftir að hafa setið inni í rúm tvö ár fyrir að misnota tvær stúlkur. Dómur Glitters var styttur vegna góðrar hegðunar, og heldur hann nú heim til Bretlands þar sem hann hyggst leita sér lækninga vegna versnandi heyrnar og hjartveiki. 19.8.2008 14:03
Öryggisvörðurinn var ekki með kylfu heldur lítinn sprota Egill Guðjónsson framkvæmdarstjóri Öryggisgæslunnar segir öryggisvörð á vegum fyrirtækisins ekki hafa verið með kylfu við störf sín í verslun 10-11 í Austurstræti í nótt. Öryggisvörðurinn sem er útlendingar var með lítinn sprota sem hann bar án vitundar fyrirtækisins að sögn Egils. 19.8.2008 13:45
Telja tengsl á milli tveggja stærstu rána Danmerkur Danska lögreglan telur nú að tengsl séu á milli tveggja stærstu rána í danskri sögu, en bæði hafa verið framin á þessu ári. 19.8.2008 13:37
Flugdólgarnir í Leifsstöð eru Bretar Lögreglan á Suðurnesjum er í þessum töluðu orðum að taka skýrslur af flugdólgunum tveimur sem handteknir voru í Leifsstöð í gærkvöldi. Mennirnir tveir sem eru Bretar voru að koma með flugi Icelandair frá Manchester á Englandi. 19.8.2008 13:10
Marsibil: Ræddi eingöngu minnhlutasamstarf við Dag Marsibil Sæmundardóttir segir það alrangt að hún hafi verið að ræða um mögulega inngöngu sína í Samfylkingu þegar þau hittust í morgun líkt og ýjað var að í fréttum Stöðvar 2 nú í hádeginu. Hún segist eingöngu hafa rætt við Dag hvernig samstarfi hennar við minnihlutann yrði háttað. 19.8.2008 12:59
Stórir marglyttuflákar við ströndina Stórra marglyttufláka hefur orðið vart hér og þar út af ströndum landsins upp á síðkastið. Sums staðar eru þeir svo þéttir og þykkir að þeir lægja öldur. Eitraðar marglyttur hafa ekki enn borist hingað til lands, svo vitað sé, en þær hafa nú borist að Bretlandsströndum. 19.8.2008 12:47
Háar einkunnir þarf til að komast inn í vinsælustu skólana Það þýðir ekkert að slugsast síðasta árið í grunnskóla ef nemendur ætla að komast í vinsælustu menntaskólana. Hundruðum er vísað frá og einkunnirnir svimandi háar. 19.8.2008 12:42
Á þriðja tug látinn í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti 23 féllu og fimmtán særðust þegar sprengja sprakk fyrir utan bráðamóttöku sjúkrahúss í norðvesturhluta Pakistans í morgun. 19.8.2008 12:32
Segir vel hægt að sinna starfi borgarfulltrúa frá útlöndum Það er vel hægt að sinna starfi borgarfulltrúa frá útlöndum með nútímatækni, segir prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í sveitarstjórnarmálum. Ekki megi ofmeta landfræðilegar fjarlægðir á árinu 2008. 19.8.2008 12:19
NATO segir Rússa hafa brotið gegn alþjóðalögum Rússar hafa brotið gegn alþjóðalögum með hernaðaraðgerðum sínum í Georgíu að mati Atlantshafsbandalagsins. Ekki verður gripið til refsiaðgerða en Georgíumönnum veittur fullur stuðningur. 19.8.2008 12:13
Nokkrar mínútur í símasamband á Eskifirði Símasambandslaust hefur verið á stórum hluta á Eskifirði frá því klukkan þrjú í gær. Linda Waage upplýsingafulltrúi Símans segir viðgerð standa yfir og von sé á símasambandi á næstu mínútum. 19.8.2008 12:05
Marsibil á leið í Samfylkinguna? Viðræður eru hafnar milli Marsibilar Sæmundardóttur og Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn um inngöngu hennar í Samfylkinguna. 19.8.2008 12:01
Fá áfram undanþágu fyrir hámarkstaxta Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að veita leigubílastöðinni Hreyfli áfram undanþágu til að gefa út sameiginlegan ökutaxta fyrir leigubílsstjóra sem starfa á stöðinni. 19.8.2008 11:43
Ólafur til liðs við frjálslynda - niðurskurður í vændum hjá borginni Ólafur F. Magnússon borgarstjóri boðaði til blaðamannafundar klukkan 11:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Þar tilkynnti Ólafur að hann hygðist ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða fram undir merkjum hans í næstu kosningum. Ólafur sagðist hafa rætt við Guðjón Arnar Kristjánsson formann flokksins sem styður ákvörðun Ólafs. Á fundinum vitnaði Ólafur einnig í minnisblað sem samið var á fjármálaskrifstofu borgarinnar en þar er gert ráð fyrir því að launakostnaður borgarinnar verði minnkaður um átta prósent auk þess sem dregið verði úr yfirvinnu. 19.8.2008 11:39
Segja rassskellingardóm brot á Barnasáttmála SÞ Barnaheill harma niðurstöður dóms í Héraðsdómi Norðurlands eystra í máli karlmanns sem hafði ítrekað beitt tvo drengi 4 og 6 ára líkamlegum refsingum. 19.8.2008 11:32
Aukin umferð þar sem framhaldsskólar eru að byrja Lögregla býst við aukinni umferð á álagstímum í borginni í þessari viku í ljósi þess að framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu hefjast á ný eftir sumarfrí. 19.8.2008 11:21
Segir kylfu ekki hafa verið beitt gegn þjófi Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri 10-11, segir að öryggisvörður í verslun fyrirtækisins við Austurstræti virðist ekki hafa beitt kylfu gegn þjófi sem tekinn var í nótt. 19.8.2008 11:11
Rannsaka iPod Nano vegna ofhitnunar og neistaflugs Japönsk yfirvöld rannsaka nú mögulega galla á rafhlöðum iPod Nano tónlistarspilarans. Tvö tilfelli hafa komið upp í Tokyo þar sem spilararnir hafa ofhitnaði og send frá sér neista. AP fréttastofan hefur það eftir iðnaðarráðherra landsins að yfirvöld hafi haft samband við Apple, framleiðanda spilarans, vegna málsins. Grunur leiki á að rafhlöðunni sé um að kenna. Árið 2006 þurfti Apple að innkalla 1,8 milljón rafhlöður, sem Sony framleiddi, úr fartölvum sínum vegna ofhitnunar. 19.8.2008 10:58
Símasambandslaust á Eskifirði í tæpan sólarhring Stór hluti Eskifjarðar hefur verið símasambandslaus frá því klukkan þrjú í gær. Vilhelm Jónasson, íbúi á svæðinu, segist mjög ósáttur við þjónustu Símans því engin svör fáist hvenær samband kemst á aftur. „Það eina sem þeir segja er að viðgerð standi yfir sem er ekki rétt því það er enginn að vinna í þessu,“ segir Vilhelm og bendir á að ástandið sé mjög bagalegt því stór hluti íbúanna hafi nú hvorki heimasíma né Internettengingu. 19.8.2008 10:48
Tveir fluttir með hraði á sjúkrahús eftir harðan árekstur Þriggja bíla harður árekstur varð á Krýsuvíkurvegi fyrir stundu og eru lögregla og slökkvilið komin á vettvang. 19.8.2008 10:15
Tíu Frakkar drepnir í Afganistan Tíu franskir hermenn létust í morgun í bardaga við talibana austan við Kabúl, höfuðborg landsins. 19.8.2008 10:11
Segja rekstrargrundvöll fjölda sauðfjárbænda brostinn Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda segir að rekstrargrundvöllur fjölda sauðfjárbænda sé brostinn ef hækkun á afurðaverði til bænda í haust verður aðeins 15 prósent eins og verðlisti Norðlenska gefur til kynna. 19.8.2008 10:11
Sóknarprestur ávíttur fyrir að ráðast á sóknarnefndarmann Sóknarprestur í Ollerup og Kirkeby á Mið-Fjóni í Danmörku hefur fengið ávítur frá biskup fyrir að hafa ráðist á varaformann sóknarnefndarinnar, að því er virðist af litlu tilefni. 19.8.2008 09:48
Sakar Georgíumenn um að skipuleggja hryðjuverk í Rússlandi Yfirmaður rússnesku leyniþjónustunnar sakaði í dag Georgíumenn um að leggja á ráðin um hryðjuverk í Rússlandi og fyrirskipaði aukna öryggisgæslu við fjölfarna staði í landinu. 19.8.2008 09:35
Barnlausum konum fjölgar í Bandaríkjunum Fjöldi barnlausra bandarískra kvenna á aldrinum 40-44 ára hefur tvöfaldast á síðustu þrjátíu árum. Árið 1976 voru einungis um 10% kvenna á þessum aldri barnlausar, en nú er hlutfallið komið upp í 20%. 19.8.2008 08:37
Íbúar í Flórída eru viðbúnir Fay Stjórnvöld og íbúar í Flórída búa sig undir það að hitabeltisstormurinn Fay fari yfir ríkið í dag, en talið er að hann hafi orðið tugum manna að bana í Dóminíska lýðveldinu og Haíti. 19.8.2008 08:28
Bílvelta við Grófarvegamót Tveir slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar lítill fólksbíll fór út af veginum og valt við svonefnd Grófarvegamót síðdegis í gær, þar sem vegurinn í Reykholtsdal og Borgarfjarðarbraut mætast. Þeir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en voru útskirfaðir að því loknu. Bíllinn er hinsvegar ónýtur. Að sögn lögreglu hafa þónokkur óhöpp og slys orðið á þessum vegamótum á undanförnum árum.- 19.8.2008 08:22
Lögreglan stöðvaði ölvaðan hjólreiðamann Þrettán ökumann voru teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir ölvunarakstur um helgina. Það er vart í frásögu færandi nema fyrir það að einn þeirra var á reiðhjóli. 19.8.2008 08:16
Ræða viðbrögð við hernaðaraðgerðum Rússa Utanríkisráðherrar ríkja innan Atlantshafsbandalagsins funda í Brussel í dag til að ræða hvernig bregðast eigi við hernaðaraðgerðum Rússa í Georgíu. 19.8.2008 08:13
Flugdólgar teknir i Leifsstöð Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn á þrítugsaldri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar laust fyrir miðnætti, vegna óláta og óspekta. Áður höfðu þeir verið til vandræða í Flugleiðavél, sem var að koma frá Manchester, og héldu upteknum hætti í flugstöðinni. 19.8.2008 08:10
Miðstéttarfólk með 200 milljónir í laun á ári „Einungis þeir sem hafa 400 milljónir íslenskra króna í árstekjur geta talist ríkir" sagði John McCain forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum á framboðsfundi í gær og hlaut miklar háðsglósur frá mótframbjóðenda sínum fyrir vikið. 19.8.2008 08:03
Dugar ekki að skipta Brown út Breskir kjósendur myndu kjósa Íhaldsflokkinn þar í landi jafnvel þó að Gordon Brown, formaður Verkamannaflokksins, viki fyrir David Miliband. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem breska blaðið Guardian birti í gær. 19.8.2008 07:56
Leita að eftirmanni Musharrafs Stjórnarflokkarnir í Pakistan munu hittast í Islamabad í dag til að ræða um eftirmann Musharrafs, fyrrverandi forseta landsins. 19.8.2008 07:52
Ökumaður kranabíls á gjörgæslu eftir líkamsárás Ökumaður kranabíls liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að eigandi bíls, sem hann var að fjarlægja að ósk lögreglu í Keflavík í gærkvöldi, sló hann þungu höggi í andlitið. 19.8.2008 07:00
Öryggisvörður í 10-11 með kylfu Öryggisvörður í verslun 10-11 í Austurstræti á yfir höfði sér kæru fyrir brot á vopnalögum eftir að hafa verið með kylfu þegar hann var að handtaka þjóf í versluninni í nótt. 19.8.2008 06:52
Guðlaugur styður Gísla Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi borgarfulltrúi, segir að Gísli Marteinn Baldursson muni ekki skaðast af því að mennta sig í Edinborg. Hann styður ákvörðun Gísla sem mun starfa áfram sem borgarfulltrúi en ekk gegna nefndarstörfum á meðan. 18.8.2008 22:04
77 umsóknum um mótmæli hafnað í Kína Þrátt fyrir að hafa sagt að sérstök svæði fyrir mótmæli yrðu sett upp í Peking á meðan að Ólympíuleikarnir fara fram í borginni hafa kínversk yfirvöld komið í veg fyrir öll skipulögð mótmæli. 18.8.2008 21:50
Gísli: Borgarstjórnarflokkurinn styður mig Gísli Marteinn Baldursson segir að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins styðji sig einhuga en nýverið greindi Gísli frá því að í vetur hyggst hann stunda nám í borgarfræðum við Edinborgarháskóla. Gísli mun ekki gegna nefndarstörfum á meðan en starfa áfram á vettvangi borgarstjórnar. 18.8.2008 20:58
Heitavatnslaust á Akranesi Bilun varð á aðveituæð Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og er heitavatnslaust á Akranesi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er unnið að viðgerð og er búist við að henni verði lokið í nótt eða undir morgun. 18.8.2008 22:30
Borgarstjóri verðlaunaði fegurð í Reykjavík Á 222 ára afmæli Reykjavíkurborgar í dag afhenti Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, fegrunarviðurkenningar vegna fegurstu lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja, og endurbóta á eldri húsum í Reykjavík fyrir árið 2008. Athöfnin fór fram síðdegis í Höfða. 18.8.2008 21:14
Eldfjallasérfræðingar funda Ráðstefna Alþjóða Eldfjallafræðasambandsins er einn stærsti viðburður í vísindum á Íslandi í langan tíma. Hingað eru komnir allir helstu sérfræðingar í eldgosum í heiminum frá fimmtíu löndum. 18.8.2008 19:30