Jákvæð afkoma ríkissjóðs 19. ágúst 2008 14:55 Árni Mathiesen, fjármálaráðherra. MYND/GVA
Ríkisreikningur fyrir árið 2007 var birtur í dag. Ríkissjóður skilar jákvæðri afkomu en tekjuafgangur í rekstrarreikningi er 88,6 milljarðar íslenskra króna. Það nemur 18,2 prósentum af tekjum ársins. Árið 2006 var tekjuafgangurinn 81,8 milljarðar en síðustu þrjú árin hefur ríkissjóður skilað samanlagt 238 milljörðum í tekjuafgang. Ríkissjóður var í árslok í fyrra með jákvætt eigið fé sem nam 10 milljörðum króna. Það mun hafa verið í fyrsta sinn sem það gerist, að því er segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu og bent á til samanburðar að árið 2000 hafi eigið fé ríkissjóðs verið neikvætt um 198 milljarða. Tekjur ársins urðu 486 milljarðar króna árið 2007 en árið á undan voru þær 422 milljarðar sem þýðir 9,7 prósent hækkun að raungildi miðað við vísitölu neysluverðs. Gjöld aukast einnig eða um 57 milljarða sem eru 11,3 prósent að raungildi. Þar munar mest um heilbrigðismálin en í þau fóru 95 milljarðar króna. „Í hnotskurn vænkaðist hagur ríkissjóðs töluvert á árinu 2007," segir í tilkynningu ráðuneytisins. „Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 69 milljarða króna. Góð afkoma ársins var meðal annars nýtt til að efla eiginfjárstöðu Seðlabankans um 44 milljarða og staða á bankareikningum batnaði um 12 milljarða sem í lok árs námu alls 104 milljörðum." Þá segir að langtímalántökur ríkissjóðs á árinu námu 107 milljörðum króna en afborganir voru 81 milljarður. „Mismunurinn skýrist einkum af lántökum vegna kaupa ríkissjóðs á eignarhluta Reykjavíkurborgar og Akureyrar í Landsvirkjun. Kaupverðið nam 30 milljörðum og voru þau fjármögnuð með 27 milljarða lántöku en afgangurinn var greiddur með reiðufé." „Hreinar skuldir ríkissjóðs, þ.e. tekin lán og lífeyrisskuldbindingar að frádregnum lánveitingum, námu 288 milljörðum í árslok 2007 eða 22,5% af landsframleiðslu ársins," segir einnig og því bætt við að það sé nær óbreytt hlutfall frá fyrra ári. „Niðurstöðutölur efnahagsreiknings sýna í fyrsta sinn jákvætt eigið fé hjá ríkissjóði en staðan breyttist á árinu 2007 úr því að vera neikvæð um 63 milljarða í ársbyrjun í að vera jákvæð um 10 milljarða í árslok."
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira