Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm milljón dollara brúðkaup Demantar og djásn voru í boði í Brúnei í nótt þar sem krónprinsinn Al-Muhtadee Billah Bolkiah gekk að eiga unnustu sína. Krónprinsinn er þrítugur en brúðurin aðeins sautján ára. Sex þúsund manns var boðið í brúðkaupsveisluna sem fór fram í aðalhöll konungsfjölskyldunnar í Brúnei, en þar er aðeins að finna 1788 herbergi. 9.9.2004 00:01
Ók á þrjá bíla í Vesturbæ Ölvaður ökumaður ók utan í að minnsta kosti þrjá bíla í Vesturborginni í nótt áður en lögreglan handtók hann fyrir utan heimili hans. Tilkynnt var um eina ákeyrsluna og á vettvangi fannst númeraplata af bíl mannsins, sem dottið hafði af við áreksturinn. 9.9.2004 00:01
Rautt á sykurgums Danir hafa nýstárlegar hugmyndir um hvernig auðvelda mætti almenningi að borða hollan og góðan mat. Neytendaráðherra Danmerkur, Henrietta Kjær, vill að matvörur verði framvegis merktar með lituðum límmiðum sem gefa eiga til kynna hversu hollur eða óhollur viðkomandi varningur er. 9.9.2004 00:01
9 látast í bílsprengingu Níu féllu þegar öflug bílsprengja sprakk við sendiráð Ástralíu í Jakarta í Indónesíu í morgun. yfir hundrað særðust og óttast er að tala fallina muni hækka. Lögregluyfirvöld segja þessa sprengju hafa verið mun öflugru en sprengjuna sem sprakk fyrir utan Marriott-hótelið í Jakarta í fyrra, en þá fórust tólf. 9.9.2004 00:01
5 féllu í Fallujah Loftárásir Bandaríkjahers á borgina Fallujah í Írak í nótt kostuðu í það minnsta fimm lífið. Læknar segja fjórtán hafa særst, þar á meðal börn undir fjögurra ára aldri. Talsmenn Bandaríkjahers segja árásirnar hafa verið gerðar á bækisstöðvar stuðningsmanna Abu Musabs al-Zarqawis, leiðtoga al-Qaeda í Írak. 9.9.2004 00:01
Vilja herða tökin Ísraelskar hersveitir réðust inn í palestínskar flóttamannabúðir í morgun og er stefnt að því að herða tökin þar í því augnamiði að koma í veg fyrir eldflaugaárásir á Ísrael. Tugir byssumanna börðust við hersveitirnar í Jabalya-búðunum, og er einn sagður fallinn. 9.9.2004 00:01
Hnúfubakur aflífaður Yfirvöld á Grænlandi hafa látið aflífa særðan Hnúfubak, sem til sást fyrir utan Uprenavik nýverið, en hnúfubakar eru al friðaðir. Skotsár var á hvalnum og töldu kunnugir að hann kveldist, svo gripið var til líknardráps. Lögregla leitar nú skyttunnar, sem særði hvalinn. </font /> 9.9.2004 00:01
Landhelgisgæslan fær nýja aðstöðu Varðskipið Týr flutti nýtt varðskýli Landhelgisgæslunnar frá Njarðvík til Reykjavíkur í dag. Landhelgisgæslan fær nýja hafnaraðstöðu á Faxagarði þar sem varðskýlinu var komið fyrir. Fyrirhugað er að varðskýlið og nýja hafnaraðstaðan verði tekin í notkun um mánaðarmótin september-október næstkomandi. 9.9.2004 00:01
Fleiri hryðjuverk í Rússlandi? Lögreglan í Rússlandi fann fyrir stundu bæði sprengiefni og skammbyssu í kvikmyndahúsi í Pétursborg. Húsið var lokað vegna viðgerða og eru aðstæður að mörgu leyti svipaðar og í barnaskólanum í Beslan. Óttast er að hryðjuverkamenn hafi þar verið að undirbúa aðra árás. </font /> 9.9.2004 00:01
50 uppreisnarmenn felldir Í það minnsta 50 íslamskir uppreisnarmenn voru drepnir af herliði Pakistana við landamæri Afganistan í dag. Herþyrlur og þotur Pakistana réðust á það sem herinn taldi vera þjálfunarbúðir fyrir erlenda hryðjuverkamenn. Búist við að tala látinna muni hækka. 9.9.2004 00:01
Blair stokkar upp í ríkisstjórn Tony Blair, forsætisráðherra Breta hefur stokkað upp í ríkisstjórn sinni, að því er virðist til að reyna að styrkja stöðu sína innan stjórnarinnar og ekki síður innan Verkamannaflokksins. Blair hefur fengið einn helsta stuðningsmann sinn; Alan Milburn sem áður gegndi embætti heilbrigðisráðherra, til að móta stefnu flokksins fyrir næstu kosningar. 9.9.2004 00:01
Vilja föst mörk á þjóðgarðinn Náttúruverndarsamtök Íslands sendu frá sér ályktun í dag þar sem þau fagna framkominni tillögu umhverfisráðherra um að fyrsti áfang í stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli. 9.9.2004 00:01
Keyrir framhjá slysstað daglega Að minnsta kosti ellefu féllu og nokkur hundruð særðust þegar öflug bílsprengja sprakk við sendiráð Ástralíu í Jakarta í Indónesíu í morgun. Bílasprengjan sprakk við fjölfarna umferðagötu í miðborg Jakarta og til marks um það hvað sprengjan var öflug myndaðist fjögurra metra djúpur gígur þar sem bíllinn stóð. 9.9.2004 00:01
Ný heildarþýðing biblíunnar Ný heildarþýðing á Biblíunni kemur út eftir tvö ár. Það er heljarinnar verk að þýða Biblíuna úr frummálinu og hafa fjölmargir unnið að því síðustu tvo áratugi. Biblíufélagið hefur séð um útgáfu og dreifingu Biblíunnar allt frá árinu 1815. 9.9.2004 00:01
Biblían færð á nútímamál Unnið er að nýrri þýðingu Biblíunnar sem kemur út árið 2006. Samið hefur verið við JPV um útgáfu og dreifingu. Ekki eru allir á eitt sáttir við nýju þýðinguna og segir Gunnar í Krossinum hana menningarsögulegt stórslys. </font /></b /> 9.9.2004 00:01
Ummæli Halldórs brosleg Jóhann Ársælsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ummæli utanríkisráðherra um Evrópusambandið fyrst og fremst til þess fallin að róa Sjálfstæðismenn. Á meðan utanríkisráðherra líki sjávarútvegsstefnu ESB við nýlendustefnu kaupi Íslendingar þar veiðiheimildir sem aldrei fyrr. 9.9.2004 00:01
Þjóðhátíð á Austfjörðum Austfirðingar halda Þjóðhátíð um helgina og fagna þar menningarlegri fjölbreyttni, segir á heimasíðu Austur-héraðs. Rauði Kross Íslands stendur fyrir hátíðinni sem verður haldin í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum sunnudaginn 12. september og hefst hún klukkan tvö. 9.9.2004 00:01
Fimmtungur saknar múrsins Fimmti hver Þjóðverji vildi gjarnan að Berlínarmúrinn stæði enn ef marka má nýja þýska skoðanakönnun, tímaritsins Stern og sjónvarpstöðvarinnar RTL. 24 prósent Vestur Þjóðverja sakna múrsins og tólf prósent allra Austur Þjóðverja. 9.9.2004 00:01
Engin uppsetning sjónvarpssenda Þeir sem lögðu fé til söfnunar fyrir sjónvarpssendi Skjás eins á Patreksfirði, fá framlag sitt endurgreitt á næstu dögum, að því er segir í Bæjarins besta á Ísafirði. Ekkert verður af uppsetningu sjónvarpssenda stöðvarinnar á Patreksfirði og í Bolungarvík 9.9.2004 00:01
Þjóðarmorð í Darfur Þjóðarmorð hafa átt sér stað í Darfur héraði í Súdan, sagði utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Colin Powell í dag á fundi með utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Hann sakaði stjórnvöld í landinu og Janjaweed uppreisnarhópinn um að bera ábyrgð á ódæðunum. 9.9.2004 00:01
Heimurinn vill Kerry Könnun sem gerð var í 35 löndum um heim allan sýnir að flestir utan Bandaríkjanna vilji sjá demókratann John Kerry sem næsta forseta Bandaríkjanna, frekar en núverandi forseta, George Bush. 9.9.2004 00:01
Reykbann á breskum krám Um þriðjungur bara og kráa í Bretlandi verða reyklaus fyrir árslok. Þar með feta Bretar að sumu leiti í fótspor Norðmanna og Íra þar sem gildir allsherjarbann á Reykingum á veitingahúsum og börum. 9.9.2004 00:01
Óhugur vegna endurhæfingastöðva Ráðgert er að byggja fjórar til fimm endurhæfingastöðvar fyrir um eitthundrað kynferðisafbrotamenn í Bretlandi, en áformin hafa slegið óhug á íbúa á svæðum þar sem þær eiga að rísa. 9.9.2004 00:01
Fellibylurinn Ivan veldur óskunda Fimmtán hafa látist á karabísku eyjunum eftir að fellibylurinn Ivan geystist yfir eyjarnar á 200 km hraða á klukkustund. Hús hafa jafnast við jörðu og rafmagnsleysi víða. Flest dauðsföllin urðu í Grenada og hefur forsætisráðherra landsins lýst yfir þjóðarhörmung. Fellibylurinn mun ganga yfir Jamaíka á morgun og yfir Kúbu um helgina. 9.9.2004 00:01
Mótmæla frestun mislægra gatnamóta Höfuðborgarsamtökin eru síður en svo ánægð með að endurbótum við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar hafi verið frestað. Þau sendu í dag frá sér ályktun þar sem þau mótmæla þessu harðlega. 9.9.2004 00:01
Hótar að reka Arafat úr landi Ísraelsk stjórnvöld eru nær því nú en nokkru sinni áður að reka Jasser Arafat, forseta Palestínu, frá heimastjórnarsvæðum Palestínumanna, sagði Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, þegar hann ávarpaði fund í Likudbandalaginu. Óvíst er hvort alvara búi að baki orðum hans eða hvort Shalom hafi aðeins verið að styrkja stöðu sína innan flokksins. 9.9.2004 00:01
Neita að bera vitni Vitni sem áttu að hjálpa málstað Slobodan Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseta, eru farin að neita að bera vitni að sögn lögmanna hans. Að þeirra sögn er fólkið ósátt við að forsetinn fyrrverandi fái ekki að verja sig sjálfur og bregðast því við með því að neita að mæta í réttarsal. 9.9.2004 00:01
Getum alltaf átt von á árásum Átta létust og á annað hundrað særðust í sprengjuárás í Djakarta. Ómar Valdimarsson, sem býr í nágrenni staðarins þar sem árásin var gerð, segir hryðjuverk eins og þetta hættu sem fólk býr við dag hvern. </font /></font /></b /></b /> 9.9.2004 00:01
Nær 200 hafa farist í flóðum Flóðin miklu í suðvesturhluta Kína hafa kostað 177 manns lífið og bitnað á alls ellefu milljón einstaklingum. Nokkur hundruð þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín og í Sichuan-héraði einu, sem hefur orðið einna verst úti, hafa 10.000 einstaklingar veikst eða slasast í hamförunum. 9.9.2004 00:01
Grafa undan baráttunni Ríki sem veita foringjum og stuðningsmönnum uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu hæli eru með því að grafa undan herferðinni gegn hryðjuverkum. Þetta sagði Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í viðtali við rússneska blaðið Vremya Novostei. 9.9.2004 00:01
Bush heldur forskotinu George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur sjö til átta prósentustiga forskot á demókratann John Kerry samkvæmt nýrri skoðanakönnun CBS sjónvarpsstöðvarinnar. 9.9.2004 00:01
Þjóðarmorð framin í Darfur "Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að þjóðarmorð hafi verið framið í Darfur og að súdanska ríkisstjórnin og Janjaweed beri á því ábyrgð. Það getur verið að þjóðarmorð eigi sér enn stað," sagði Colin Powell, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna. Janjaweed eru arabískar vígasveitir sem starfa með stjórnarhernum. 9.9.2004 00:01
Íhuga að ráða málaliða Ef ríki heims útvega ekki nógu marga hermenn til að sinna friðargæslu í Kongó geti það orðið til þess að Sameinuðu þjóðirnar verði að leita til einkaaðila til að sinna friðargæslu, sagði Aldo Ajello, sendimaður Sameinuðu þjóðanna í Mið-Afríku. 9.9.2004 00:01
Rússneskir ráðamenn ævareiðir Ráðamenn Rússlands eru ævareiðir og segja Vesturlönd sýna tvískinnung í afstöðunni til hryðjuverkamanna. Þeir vilja að umheimurinn bregðist eins við hryðjuverkum í Rússlandi og Bandaríkjunum. 9.9.2004 00:01
Krafist 5 mánaða fangelsis Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi vegna fjársvikamáls, segist hafa verið farinn að undirbúa heimför þegar hann var framseldur. Ákæruvaldið krefst þess að Ragnar verði dæmdur í fimm mánaða fangelsi. 9.9.2004 00:01
Kóralfiskur í útrýmingarhættu Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin, World Wide Fund, hafa bætt tveimur dýrum á listann yfir þau tíu dýr sem eru í hvað mestri útrýmingarhættu í heiminum. Annað þessara dýra er kóralfiskur með varir sem þykja lostæti og er hann því orðinn afar eftirsóttur. 9.9.2004 00:01
Greinargerð ráðherra tilbúin Félagsmálaráðherra sendi nú rétt fyrir fréttir Helgu Jónsdóttur borgarritara greinargerð vegna ráðningar í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Í greinargerðinni er ekki fjallað um hvers vegna Helga fékk ekki starfið, heldur hvers vegna Ragnhildur Arnljótsdóttir var ráðin. 9.9.2004 00:01
Hitti naglann á höfuðið Framkvæmdastjóri stærsta fiskvinnslufyrirtækis Bretlands segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hafa hitt naglann á höfuðið í beinskeyttri gagnrýni sinni á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Hann segist vona að gagnrýni Halldórs eigi eftir að berast víða um Evrópusambandið. 9.9.2004 00:01
Heimsókn konungshjónanna lokið Opinberri heimsókn sænsku konungshjónanna og krónprinsessunnar lauk í dag, en seint verður sagt að veðrið hafi leikið við þau. Sólin braust fram úr skýjunum í dag þegar þau fóru norður í land og fengu konunglegar móttökur hjá stórum sem smáum. Hinir tignu gestir verða hér á landi í einkaheimsókn á morgun og halda svo af landi brott á laugardag. 9.9.2004 00:01
Fyrsta fjalldrottningin komin Fyrsta fjalldrottningin, sem stjórnað hefur leitum á hálendi Íslands, kom til byggða í dag eftir níu daga smalamennsku á fjöllum. Smalamenn Gnúpverja héldu upp á fjöll fyrir 9 dögum og fóru lengst upp í Arnarfell upp undir Hofsjökli ofan við Þjórsárver. Í dag komu þeir niður í Þjórsárdal með safnið, alls um 2.500 fjár. </font /> 9.9.2004 00:01
Heklugos í vændum? Breytinga hefur orðið vart á lækjum og vötnum í grennd við Heklu í sumar. Þannig hefur lækur við bæinn Selsund þornað upp. Það gerðist einnig í aðdraganda síðustu Heklugosa. Mælar jarðvísindamanna sýna að kvikuþrýstingur undir Heklu er kominn upp undir það sem var fyrir síðasta gos fyrir fjórum árum. 9.9.2004 00:01
Drengurinn slapp lifandi Rússneski drengurinn sem sést mjög greinilega á myndbandi hryðjuverkamannanna í Beslan slapp lifandi úr skólanum. Mæðgur sem sátu við hliðina á honum létu lífið. 9.9.2004 00:01
Lásasmiður hjálpar til við innbrot Í kjölfar frétta af innbrotsþjófum sem fengu lásasmiði til að opna heimili um mitt sumar hefur DV sannreynt hvort slíkt sé mögulegt. Blaðið hringdi í lásasmið af handahófi og bað hann að opna yfirgefið heimili undir fölskum forsendum.<b><font face="Helv" color="#008080"></font></b> 9.9.2004 00:01
Biblían góð viðskipti Biskup Íslands er sannfærður um að ný þýðing Biblíunnar verði „bestseller“ Hún verður gefin út eftir tvö ár og leysir hundrað ára gamla þýðingu af hólmi. 9.9.2004 00:01
Framkoma formannsins ógeðfelld Varaformaður fjárlaganefndar segir framkomu formanns Öryrkjabandalagsins ógeðfellda og að ríkisstjórnin hafi efnt að fullu samkomulag sitt við það. Formaður Öryrkjabandalagsins segir svo ekki vera og ætlar að stefna ríkisstjórninni fyrir dómstóla verði ekki staðið við samkomulagið í haust. 9.9.2004 00:01