Framkoma formannsins ógeðfelld 9. september 2004 00:01
Varaformaður fjárlaganefndar segir framkomu formanns Öryrkjabandalagsins ógeðfellda og að ríkisstjórnin hafi efnt að fullu samkomulag sitt við það. Formaður Öryrkjabandalagsins segir svo ekki vera og ætlar að stefna ríkisstjórninni fyrir dómstóla verði ekki staðið við samkomulagið í haust. Öryrkjabandalagið telur að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við samkomulag sem gert var í fyrra um róttækar breytingar á örorkubótum. Heilbrigðisráðherra varði einum milljarði til málsins í fyrrahaust en útreikningar sýndu að heildarkostnaður við breytingarnar væri einn og hálfur milljarður. Formaður Öryrkjabandalagsins segir að verði ekki staðið við samkomulagið að fullu á næstunni þá verði ríkisstjórnin dregin fyrir dómstóla. Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, segir ríkisstjórnina hafa staðið við samkomulagið að fullu. Talað hafi verið um að verja einum milljarði til þessa máls og það hafi verið gert. Einar segir það ákaflega ógeðfellt að vera með brigslyrði um svik á hendur ríkisstjórninni, ár eftir ár, líkt og formaður Öryrkjabandalagsin geri. Hann segir formanninn einfaldlega eiga að leggja fram ákærur, telji hann sig hafa verið svikinn Af orðum Jóns Kristjánssonar í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í fyrra, nánar tiltekið 27. nóvember, má sjá að hann telur samkomulagið ekki uppfyllt að fullu. Hann sagði meðal annars: „Síðan kom í ljós seinna, nokkrum mánuðum seinna, að þetta var dýrara og ég stefni að því að ljúka, að fullnusta samkomulagið eftir 12 mánuði. En það hefur aldrei staðið neitt annað til frá minni hálfu heldur en standa við það.“ Varaformaður fjárlaganefndar segir það ofureðlilegt að einstakir ráðherrar hafí „sínar meiningar, sínar óskir og sína drauma um að efla og auka það sem þeir eru að vinna að, en það er ein ríkisstjórn í landinu.“
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira