Greinargerð ráðherra tilbúin 9. september 2004 00:01
Félagsmálaráðherra sendi nú rétt fyrir fréttir Helgu Jónsdóttur borgarritara greinargerð vegna ráðningar í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Í greinargerðinni er ekki fjallað um hvers vegna Helga fékk ekki starfið, heldur hvers vegna Ragnhildur Arnljótsdóttir var ráðin. Helga Jónsdóttir krafðist þess af Árna Magnússyni félagsmálaráðherra að hann rökstyddi ráðningu í embætti ráðuneytisstjóra. Þrjú voru talin hæfust: Helga, Ragnhildur Arnljótsdóttir og Hermann Sæmundsson, settur ráðuneytisstjóri. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er í greinargerðinni, sem væntanlega er nú á leið til Helgu eða nýkomin í hennar hendur, ekki fjallað um hvers vegna Helgu var hafnað heldur miklu frekar hvers vegna Ragnhildur var ráðin. Margt er þar nefnt eftir því sem Stöð 2 kemst næst, til dæmis það að staðan var veitt frá síðustu mánaðamótum og gat Ragnhildur byrjað þá, en Helga ekki fyrr en tveimur mánuðum síðar, í byrjun nóvember. Þegar valið var á milli þeirra þriggja sem talin voru hæfust var litið til fagmenntunar og viðbótarmenntunar á stjórnunarsviði, reynslu í starfsstjórnun sem nýttist ráðuneytisstjóra, faglegra hæfileika, hæfni í mannlegum samskipum, frammistöðu í starfsviðtölum og meðmæla. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 þótti Ragnhildur koma best út í þessum þáttum. Þá hafi starf Ragnhildar á vegum Evrópusambandsins í Brussel undanfarin tvö ár verið nánast klæðskerasniðin að mati ráðherra fyrir ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu. Í Brussel sinnti hún meðal annars húsnæðismálum, vinnumarkaðsmálum, sveitarstjórnarmálum, málefnum fatlaðra og barnaverndarmálum. Ekki náðist í Árna Magnússon félagsmálaráðherra eða Helgu Jónsdóttur borgarritara vegna þessa máls fyrir fréttir.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira