Monk: Þess vegna keyptum við Gylfa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2014 06:00 Gylfi fagnar marki sínu á móti Manchester United með félögum sínum í Swansea við einn hornfánann á Old Trafford á laugardaginn. Vísir/AP
Gylfi Þór Sigurðsson átti algjöran draumadag í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford á laugardaginn. Gylfi tryggði þá Swansea 2-1 sigur á Manchester United með marki 18 mínútum fyrir leikslok en hann hafði áður lagt upp fyrsta mark tímabilsins fyrir Suður-Kóreumanninn Ki Sung-yueng. Gylfi hefur aldrei falið þá staðreynd að hafa alist upp sem stuðningsmaður Manchester United en íslenski landsliðsmaðurinn kom sér ekki á neina vinsældalista hjá United-mönnum þegar hann „eyðilagði“ fyrsta deildarleik félagsins undir stjórn Hollendingsins Louis Van Gaal.Einbeittur og þolinmóður „Þess vegna keypti ég hann því þarna sáum við hæfileikana sem hann hefur upp á að bjóða. Þegar þú kemur á stað sem þennan þá eru tækifærin af skornum skammti. Þú verður því að vera þolinmóður og einbeittur og tilbúinn þegar stundin rennur upp. Gylfi var það,“ sagði Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea, eftir leikinn. Aðeins sex aðrir leikmenn hafa náð því að skora og leggja upp mark í sama leiknum á móti Manchester United á Old Trafford á undanförnum fimm árum og það hafði ekkert gerst síðan Daninn Christian Eriksen náði því á fyrsta degi ársins. Enginn þeirra skoraði þó sigurmarkið líka eins og Gylfi á laugardaginn. „Ég tel að við höfum átt þennan sigur skilinn. Það er alltaf erfitt að koma hingað og þá sérstaklega í fyrsta leik. Við héldum þetta út og leikskipulagið gekk fullkomlega upp,“ sagði Gylfi við BBC eftir leikinn. Gylfi var með 7 mörk og 5 stoðsendingar í 18 leikjum með Swansea vorið 2012 og tók upp þráðinn aftur strax í fyrsta leik eftir að hafa ekki náð að tryggja sér fast sæti í Tottenham-liðinu síðustu tvö tímabil. „Þetta er auðvitað aðeins öðruvísi því það hafa orðið nokkrar stjórabreytingar og leikmenn hafa komið og farið. Fótboltinn sem Swansea spilar hefur samt ekkert breyst,“ sagði Gylfi og hann fékk líka hrós frá fyrirliða Swansea-liðsins.Með markanef „Gylfi hefur markanef og hann veit það vel að við treystum á hann. Hann var á réttum stað á réttum tíma og sýndi og sannaði að hann verður mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur,“ sagði Ashley Williams á heimasíðu félagsins. Það voru fleiri hetjur í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar og hér eru nokkrar þeirra. Eric Dier tryggði tíu mönnum Tottenham 1-0 sigur á West Ham með marki á 90. mínútu í sínum fyrsta deildarleik fyrir félagið, Aaron Ramsey tryggði Arsenal 2-1 sigur á Crystal Palace með marki í uppbótartíma og Daniel Sturridge skoraði sigurmark Liverpool á móti Southampton ellefu mínútum fyrir leikslok.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi snýr aftur með Swansea á stóra sviðinu Gylfi Þór Sigurðsson verður í sviðsljósinu í hádeginu þegar Swansea heimsækir Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar. Fyrir áratug átti íslenskur knattspyrnumaður sviðið í fyrstu umferð á móti United. 16. ágúst 2014 08:30 Gylfi: Þjálfarinn lagði leikinn frábærlega upp Gylfi Sigurðsson hetja Swansea á Old Trafford var skiljanlega himinlifandi eftir sigurinn. Gylfi segir að liðið hafi sýnt mikinn karakter. 16. ágúst 2014 14:08 Lykilatriðið er að fá að spila Gylfi Þór Sigurðsson verður eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Gylfi gekk til liðs við Swansea á ný í sumar eftir tvö ár hjá Tottenham en hann hafði fengið nóg af því að sitja á bekknum eða vera út á kanti. Gylfi verður í eldlínunni með Swansea í hádegisleiknum gegn Manchester United. 16. ágúst 2014 08:00 Gylfi lagði upp fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar | Myndband Fyrsta sinn sem asískur leikmaður skorar fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar. 16. ágúst 2014 12:42 Gylfi hetja Swansea á Old Trafford | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Swansea gegn Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í ár. 16. ágúst 2014 11:15 Gylfi þriðji Íslendingurinn til að skora á Old Trafford Gylfi Þór Sigurðsson bættist í hóp þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen og Heiðars Helgusonar þegar hann skoraði á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar i fótbolta í dag. 16. ágúst 2014 13:24 Mest lesið Fjöldi fótboltafólks sýnir Palestínu stuðning Fótbolti Davíð Smári ekki á hliðarlínunni í næsta leik Vestra Íslenski boltinn NFL-leikmaður sakaður um kynferðisofbeldi í flugi Sport Meistaradeild Evrópu áfram á Stöð 2 Sport næstu árin Fótbolti „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Handbolti Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool Enski boltinn Markvarðamartröð KR: „Getur ekki barist um titla þegar markverðirnir gefa trúðamörk“ Íslenski boltinn Vinalegi risinn í CrossFit heiminum er frá Íslandi Sport Úlfarnir foruðust sópinn og Kyrie mistókst í fyrsta sinn að klára Körfubolti Albert í liði ársins hjá tölfræðiveitunni Opta Fótbolti Fleiri fréttir Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Paquetá ákærður fyrir að sækjast eftir spjaldi í eigin leikjum Lopetegui tekur við West Ham Yfirmenn Pep fullvissir um að félagið verði ekki sakfellt Talið að Man Utd láti Ten Hag fara eftir úrslitaleikinn Féll í vor en vonast eftir Chelsea eða Bayern Ummælin höfðu neikvæð áhrif á Nunez sem hugsar hlýlega til Spánar Sjá meira
Gylfi snýr aftur með Swansea á stóra sviðinu Gylfi Þór Sigurðsson verður í sviðsljósinu í hádeginu þegar Swansea heimsækir Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar. Fyrir áratug átti íslenskur knattspyrnumaður sviðið í fyrstu umferð á móti United. 16. ágúst 2014 08:30
Gylfi: Þjálfarinn lagði leikinn frábærlega upp Gylfi Sigurðsson hetja Swansea á Old Trafford var skiljanlega himinlifandi eftir sigurinn. Gylfi segir að liðið hafi sýnt mikinn karakter. 16. ágúst 2014 14:08
Lykilatriðið er að fá að spila Gylfi Þór Sigurðsson verður eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Gylfi gekk til liðs við Swansea á ný í sumar eftir tvö ár hjá Tottenham en hann hafði fengið nóg af því að sitja á bekknum eða vera út á kanti. Gylfi verður í eldlínunni með Swansea í hádegisleiknum gegn Manchester United. 16. ágúst 2014 08:00
Gylfi lagði upp fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar | Myndband Fyrsta sinn sem asískur leikmaður skorar fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar. 16. ágúst 2014 12:42
Gylfi hetja Swansea á Old Trafford | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Swansea gegn Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í ár. 16. ágúst 2014 11:15
Gylfi þriðji Íslendingurinn til að skora á Old Trafford Gylfi Þór Sigurðsson bættist í hóp þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen og Heiðars Helgusonar þegar hann skoraði á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar i fótbolta í dag. 16. ágúst 2014 13:24
Markvarðamartröð KR: „Getur ekki barist um titla þegar markverðirnir gefa trúðamörk“ Íslenski boltinn
Markvarðamartröð KR: „Getur ekki barist um titla þegar markverðirnir gefa trúðamörk“ Íslenski boltinn