Enski boltinn

Gylfi: Þjálfarinn lagði leikinn frábærlega upp

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi fagnar.
Gylfi fagnar. Vísir/Getty
Gylfi Sigurðsson hetja Swansea á Old Trafford var skiljanlega himinlifandi eftir sigurinn. Gylfi segir að liðið hafi sýnt mikinn karakter.

„Ég held að skipulagið og varnarleikurinn hafi verið lykillinn. Þjálfarinn lagði þennan leik frábærlega upp," sagði kampakátur Gylfi Þór í leikslok.

„Við sýndum karakter og mér fannst við verðskulda þetta. Við vissum að þetta yrði erfitt, því þeir eru með nýjan stjóra."

Hér að neðan má sjá umræðuna af Twitter þar sem Gylfi er vinsæll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×