Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. október 2026 20:31 Ferðamennirnir komust úr sjónum heilir á höldu. Samsett Ferðamenn komust í hann krappan í Reynisfjöru síðdegis í dag eftir að stór alda lenti á þeim. Viðbragðsáætlun hefur verið virkjuð í Reynisfjöru vegna veðursins.
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þar sem sjá má hvernig stór alda lendir á fjórum ferðamönnum, þar á meðal tveimur börnum, sem stóðu í fjörunni. Ferðamennirnir virðast hafa sloppið óskaddaðir en rennandi blautir. Heiðrún birti myndskeiðið upprunalega á Facebook og lýsir því hvernig hún hafi reynt að tala við annað par með ungan strák með sér til að vara þau við hættunni. Parið hafði hins vegar talið Heiðrúnu vera furðulega. Landeigendur Reynisfjöru sendu frá sér tilkynningu fyrr í dag og sögðu að viðbragðsáætlun hefði verið virkjuð vegna hárrar ölduhæðar. Lokað var fyrir aðgengi að hluta strandarinnar og gæsla komin á vettvang. „Í dag mynduðust hættulegar aðstæður fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Því miður var viðbragðsáætlun virkjuð of seint og lokun og gæsla voru ekki komnar á fyrr en um kl. 15:30. Við munum draga lærdóm af þessu og kappkosta að vera fyrr á ferðinni þegar slíkar aðstæður myndast,“ stóð í tilkynningunni. Oft á tíðum hefur verið fjallað um hættulegar aðstæður sem geta skapast í Reynisfjöru. Fjöldi myndskeiða er til af ferðamönnum sem lenda í öldunum en landeigendur hafa sett upp viðvörunarskilti í því skyni að vara ferðamenn við hættunum sem kunna að skapast. Þrátt fyrir það kemur það ítrekað fyrir að ferðamenn fari fram hjá hliði og viðvörunarskilti og virða þau að vettugi. Níu ára gömul stúlka frá Þýskalandi lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í ágúst árið 2025. Einnig lést erlendur karlmaður á áttræðisaldri sumarið 2022 þegar alda hreif hann með sér út í sjó.
Reynisfjara Öryggi á ferðamannastöðum Veður Ferðaþjónusta Mýrdalshreppur Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira