Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2026 11:13 Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, segir tölvuárásina á kæla franskra matvöruverslana í vikunni svo einfalda í framkvæmd að hver sem er gæti hafa framið hana með réttri þekkingu. Vísir Engar tilkynningar hafa borist um að íslenskar matvöruverslanir hafi orðið fyrir barðinu á tölvuárásum á kæla sem leiddu til þess að miklu magni matvæla var hent í Frakklandi í vikunni. Íslensk fyrirtæki virðast þó hafa brugðist við tíðindunum með því að taka kæla af netinu.
Óþekktir tölvuþrjótar nýttu sér veikleika í stýrikerfum fyrir kæla og áttu við stillingar þeirra í hundruðum matvöruverslana í Frakklandi aðfararnótt fimmtudags. Talið er að hitinn í kælunum hafi verið um fimmtíu gráður í sex klukkustundir. Verslanirnar þurftu að henda bæði ferskri og frosinni matvöru og hleypur tjónið á tugum milljóna evra. Evrópulögreglan rannsakar nú árásirnar og segir AP-fréttastofunni að hún sé í sambandi við yfirvöld í nokkrum Evrópuríkjum. Frönsk netöryggisyfirvöld sögðu í gær að árásin væri líklega enn í gangi. Hún hvatti eigendur verslana til þess að tengja kælana aðeins aftur við netið í gegnum öruggar VPN-tengingar, uppfæra stýrikerfi þeirra og skipta um lykilorð. Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda, segir að af erlendum fréttum að dæma hafi tilkynningar borist um atvik sem tengjast kælum í Spáni, Portúgal, Póllandi og Belgíu. Yfirvöld í löndunum hafi þó ekki staðfest það. Í fyrstu var talað um að þrjótar hefðu nýtt sér veikleika í kælum frá Danfoss en Frakkar hafa síðan staðfest að einnig hafi verið átt við kæla frá Copeland og Dixell. Engar tilkynningar hafa borist CERT-IS um að ráðist hafi verið á kæla hér á landi. Magni segir að eftir uppákomuna í Frakklandi hafi starfsmenn CERT-IS séð að örfáir kælar sem mögulegt væri að eiga við væru á opnu neti hér á landi í byrjun vikunnar. Búið hafi verið að taka þá alla út af netinu í gær. „Aðilar hér á landi hafa greinilega verið vakandi yfir þessum fréttum og tekið þá út af netinu,“ segir Magni. Einföld í framkvæmd Ekki liggur fyrir hver stóð að árásunum á matvörukælana í Frakklandi. Tilgátur ná frá öllum frá óvinveittum ríkjum eins og Rússlandi, sem hefur staðið fyrir aragrúa skemmdarverka í Evrópu, til stúdentamótmælenda sem fara nú mikinn í Frakklandi. Magni segir erfitt að segja til um hver gæti borið ábyrgð vegna þess hversu einfalt sé að komast inn í kerfin sem ráðist var á. Það gæti þess vegna hafa verið unglingur sem leiddist allt eins og glæpahópur eða aðgerðasinnar. „Árásin var svo auðveld í framkvæmd að hver sem er getur með smá þekkingu framkvæmt hana,“ segir hann. Nýttu sér veikleika og opinn aðgang Hver sá sem réðst á kælana nýtti sér að stýribúnaður þeirra var aðgengilegur á netinu. Magni segir það fyrirkomulag slæmt því þá geti hver sem er komist inn á aðgangssíðu sem hleypi þeim inn í stýringuna. Þrjótarnir notfærðu sér svo veikleika í stýrikerfi kælanna sem rekstraraðilar þeirra höfðu ekki uppfært til þess að ná stjórn á þeim. Einnig hjálpaði þeim að eldri kælar sem framleiðendur gáfu ekki lengur út hugbúnaðaruppfærslur fyrir voru enn í notkun og opnir út á netið. Loki opnum kælum strax Magni segir algengt að alls kyns stýribúnaður sé opinn út á netið. CERT-IS hafi lagt áherslu á gagnvart rekstraraðilum að hafa ekki tæki og stýringar opnar út á netið að óþörfu. „Slík tæki ættu alltaf að vera á bak við eldvegg eða aðgangsstýringu sem aðeins rekstraraðili eða eigandi hefur aðgang að í gegnum VPN-tengingu eða trausta tengingu. Ég og þú eigum ekki að geta komist inn á stýringuna,“ segir forstöðumaðurinn. Árásin á frönsku matvöruverslanirnar í vikunni vakti áhyggjur af matvælaöryggi.AP/Teresa Suarez Stýribúnaður fyrir orku- og veitukerfi, inngangsstýringar í byggingar og myndavélakerfi eru á meðal kerfa sem stundum eru opin út á netið þar sem hver sem er gæti komist inn. „Því miður eftir því sem tækin okkar eru meira tengd internetinu þá er þetta áhættan,“ segir Magni.
Tölvuárásir Öryggis- og varnarmál Verslun Frakkland Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira