Fleiri
Portúgal 2 - Íran 0 Cristiano Ronaldo skoraði annað mark Portúgala úr vítaspyrnu. 17.6.2006 14:37 Sjá næstu 50 fréttir
2.42 mörk skoruð að meðaltali í leik Það hafa verið skoruð 92 mörk í þeim 38 leikjum sem eru búnir til þessa á HM. Það gerir að 2.42 mörk eru skoruð að meðaltali í leik. 21.6.2006 17:27
Flugfreyjurnar í fótboltanum Þótt það sé ekki mikið í húfi á þessum leik Argentínumanna og Hollendinga Þá er stoltið undir, líkt og ég sá í andlitum mexíkósku áhorfendanna sem töpuðu fyrir Portúgal rétt í þessu. 21.6.2006 17:00
„Holland eitt af sterkustu liðunum“ Þjálfari Argentínumanna Jose Pekerman telur að landslið Hollands sem að mætir Argentínu í kvöld sé í hópi bestu liðanna á HM. 21.6.2006 12:32
De la Cruz ætlar að koma Englandi á óvart Ulises de la Cruz leikmaður Aston Villa segir að Ekvador muni koma sterkir til baka eftir 3-0 tapið gegn Þýskalandi í gær og slá Englendinga út í 16 lið úrslitum. 21.6.2006 12:21
Owen frá í 5 mánuði Allt útlit er fyrir að Michael Owen hafi slitið Krossbönd í leiknum gegn Svíum í gær og verði frá í að minnsta kosti 5 mánuði. 21.6.2006 12:19
Hættir Lippi eftir HM? Marcello Lippi, þjálfari Ítalíu eru sagður ætla að hætta með liðið eftir HM. Ítalska blaðið Corriere dello Sport fullyrðir þetta. Blaðið segir ennfremur að Lippi, sem tók við liðinu árið 2004, hafi náð góðum árangri með það en Ítalir hafa ekki tapað í síðustu 20 leikjum. 21.6.2006 11:53
HM Leikir dagsins Í dag eru fjórir leikir á dagskrá HM eins og í gær. Þetta eru síðustu leikirnir í C og D riðli. Veislan hefst kl. 14:00 með leikjum Portúgal og Mexikó og Angóla og Íran. Leikirnir í C-riðli fara fram kl. 19:00. Argentína og Holland mætast í Frankfurt og Serbía og Svartfjallaland mætir Fílabeinsströndinni í Munchen. 21.6.2006 09:59
Kristján Örn lenti í slagsmálum á æfingu Kristján Örn Sigurðsson og félagar í norska liðinu Brann mættu á sína fyrstu æfingu eftir sumarfrí í dag og ekki vildi betur til en svo að Kristján Örn lenti í áflogum við framherjann Robbie Winters eftir að þeir lentu í samstuði. Leikmennirnir sættust eftir uppákomuna, en greinilegt er að ekkert verður gefið eftir í baráttunni í herbúðum Brann á komandi leiktíð. 20.6.2006 16:18
Gilberto segir Brasilíu vera að komast í gang Miðjumaður Arsenal og brasilíska landsliðsins, Gilberto Silva, hefur lítið fengið að spreyta sig í HM keppninni í þeim leikjum sem Brassar hafa leikið. 20.6.2006 15:49
Við höfum efni á Nistelrooy Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen eru enn að gera hosur sínar grænar fyrir hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United og í dag fullyrti yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern að félagið hefði vel efni á að kaupa Nistelrooy. 20.6.2006 14:22
Barthez sannfærður um góðan árangur Fabian Barthez, markvörður franska landsliðsins er sannfærður um að franska liðinu eigi eftir að vegna vel á HM. Liðið hefur aðeins fengið tvö stig úr tveimur leikjum og verða þeir að vinna síðasta leikinn sem er geng Tógo til að komast áfram. 20.6.2006 12:22
Kewell verður með Harry Kewell, leikmaður Ástralíu fer ekki í leikbann og verður með liði sínu er það mætir Króötum á sunnudaginn. Útlit var fyrir að leikmaðurinn færi í bann þar sem hann sendi dómara leiksins í 2-0 tapi gegn Brasilíu tóninn. Skýrsla dómarans þótti óskýr og ákvað FIFA að aðhæfast ekkert í málinu. 20.6.2006 12:10
Til hamingju með afmælið Frank Lampard Frank Lampard heldur upp á 28 ára afmæli sitt í dag og vonast til þess að skora gegn Svíum í tilefni dagsins. 20.6.2006 11:32
Rooney mun hræða andstæðingana Sven Göran Erikson segir að með því að stilla Wayne Rooney upp í byrjunarliðið í næstu leikjum Englands á HM muni vekja ótta í hjörtum andstæðinganna. 20.6.2006 10:35
Michel ekki ánægður með framgöngu Drogba Henri Michel, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar er mjög ósáttur við frammistöðu Didier Drogba á heimsmeistaramótinu. Fílabeinströndin sem margir höfðu fyrirfram spáð góðu gengi er dottið út og segir Michel að Drogba hafi ekki verið nógu vel undir þetta mót búinn. 20.6.2006 09:23
Basten tekur enga áhættu Marco van Basten landsliðsþjálfari Hollands ætlar að hvíla nokkra af lykilmönnum liðsins í leiknum gegn Argentínu á miðvikudaginn. 20.6.2006 09:11
HM kirkjan í Köln Kaflaskil, næst í HM messunni þriðja umferð í riðlunum, næstu fjórir dagar ákvarða sextán liða úrslitin. Ég verð alltaf svolítið sorgmæddur þegar hér er komið í keppninni, nú eru það sigurvegararnir sem halda áfram, hinir fara heim. 19.6.2006 23:16
Spánn lagði Túnis Spánverjar sigruðu Túins 3-1 í hörkuspennandi leik liðanna á HM í Þýskalandi. Það var Joahar Mnari sem skoraði mark fyrir Túnis á 8. mínútu fyrri hálfleiks. Á 70. mínútu jafnaði varamaðurinn Raúl metin fyrir spánverja og aðeins fimm mínútum síðar skoraði Fernando Torres mark og kom spánverjum yfir 2-1. 19.6.2006 22:01
Henry telur Frakka geta spjarað sig án Zidane Thierry Henry leikmaður Arsenal og franska landsliðsins telur að Frakkar muni vinna þrátt fyrir að Zinidine Zidane verði í leikbanni í seinasta leik þeirra á móti Tógó á föstudag. 19.6.2006 17:15
Neville enn meiddur Gary Neville er enn meiddur og verður því ekki í byrjunarliðinu gegn Svíum á morgun. Wayne Rooney og Owen Hargreaves koma inn í byrjunarliðið í fyrsta sinn á mótinu og verða þar í staðinn fyrir Peter Crouch og Steven Gerrard sem eru báðir einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann. 19.6.2006 17:11
2-0 fyrir Úkraínu í hálfleik gegn Sádí-Arabíu staðan í hálfleik í leik Úkraínumanna og Sádí-Araba er 2-0 fyrir Úkraínu. Það var Andriy Rusol sem skoraði á 4. mínútu og Serhiy Rebrov bætti öðru við á 36. mínútu. Úkraínumenn eru búnir að vera miklu mun betri í leiknum. 19.6.2006 16:40
Leikur Sádí-Arabíu og Úkraínu að hefjast Sádarnir hafa fengið fyrirliða sinn og markaskorara Sami Al Jaber góðan af meiðslum sínum og reikna má með að hann byrji inn á. Þeir geta því teflt fram sínu sterkasta liði á móti Úkraínu. 19.6.2006 15:15
Svisslendingar í góðum málum Svisslendingar voru rétt í þessu að leggja Tógómenn að velli 2-0 á HM í Þýskalandi. Það var Alexander Frei sem skoraði fyrra markið á 17. mínútu og Tranquillo Barnetta bætti seinna markinu við á 89. mínútu. Svisslendingar léku vel skipulagða knattspyrnu og sprækir Tógómenn fundu ekki leiðina í gegnum þétta vörn þeirra. 19.6.2006 14:54
1-0 fyrir Sviss í hálfleik gegn Tógó Staðan í hálfleik í leik Svisslendinga og Tógómanna er 1-0 fyrir Sviss. Það var Alexander Frei sem skoraði markið á 17. mínútu eftir góða fyrirgjöf. Leikurinn er fjörugur og Emmanuel Adebayor er mjög sprækur í framlínu Tógó. 19.6.2006 13:44
Toure vill fá fleiri landa sína í ensku deildina Kolo Toure, leikmaður Arsenal og Fílabeinstrandarinnar trúir því að fleiri landar hans eigi eftir að koma og leika með liðinu í ensku úrvalsdeildinni. 19.6.2006 10:50
Englendingar eru eigingjarnir Uli Höeness, framkvæmdarstjóri Bayern Munchen segir að Englendingar séu eigingjarnir og skilur ekki af hverju þeir nota ekki Owen Hargreaves meira en þeir hafa gert. Hann hafði þetta að segja um enska liðið. 19.6.2006 10:43
Ég hræðist ekki Englendinga Michael Ballack, fyrirliði þjóðverja segir að hann hræðist ekki enska liðið. Þjóðirnar geta mæst í 16-liða úrslitum ef önnur þeirra vinnur sinn riðil og hinn hafnar í öðru sæti. Ballack er sannfærður um sitt lið fari langt í þessari keppni. 19.6.2006 10:36
Henry kennir dómaranum um hvernig fór Thierry Henry sóknarmaður franska landsliðsins kennir dómara leiksins í leiknum við Suður Kóreu í gær hvernig fór. Benito Archundia frá Mexico dæmdi leikinn og hann dæmdi ekki mark þegar skalli Patrick Veira fór greinilega allur inn fyrir línuna á 30 mínútu í leiknum. Leikurinn endaði 1-1. 19.6.2006 10:22
HM Leikir dagsins Það verða að vanda þrír leikir á dagskrá í dag á HM. Tógó og Sviss mætast klukkan 13.00. Klukkan 16.00 mætast svo Saudi Arabía og Úkraína. Kvöldleikurinn er svo á milli Spánverja og Túnis. Þetta og margt fleira á Sýn í dag. Klukkan 21.00 er svo hinn magnaði þáttur 4-4-2 þar sem Heimir Karls og Þorsteinn Joð fara yfir leiki dagsins og fá góða gesti í heimsókn. 19.6.2006 03:57
Terry er einn sá besti í dag Claudio Ranieri, fyrrum stjóri Chelsea segir að John Terry, leikmaður enska landsliðsins sé einn besti varnarmaður heims í dag. Hann hafði þetta að segja um málið 19.6.2006 03:52
Michel ætlar að hætta með Fílabeinströndina Henri Michel, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar býðst við því að leikurinn gegn Serbum verði hans síðasti leikur með liðið. 19.6.2006 03:46
De Rossi biðst afsökunar á olnbogaskoti sínu Ítalski landsliðsmaðurinn Daniele De Rosso hefur beðist afsökunar á olnbogaskoti sínu í leiknum gegn USA sem kostaði hann rautt spjald. Atvikið gerðist í fyrrihálfleik er hann gaf Brian McBride skotið. 19.6.2006 02:51
Parreira stendur með Ronaldo Carlos Alberto Parreira, þjálfari Brasilíu stendur 100% með Ronaldo og segir hann hafa sýnd mikla framför milli leikja. Ronaldo sem var markakóngur í síðustu keppni með 8 mörk hefur ekki náð að skora í þeim tveimur leikjum sem búnir eru og hefur honum verið skipt útaf í báðum þessum leikjum. 19.6.2006 02:46
De Rossi rægður Það er ekki gaman hjá Daniele De Rossi í dag, miðjumanninum frá Roma sem barði Brian McBride í leiknum í gær, öll blöð, öll tímarit, öll heimsbyggðin fordæmir það sem hann gerði. Marcello Lippi segist ekki einu sinni hafa yrt á hann ennþá, enda ljóst að þessi mistök hans voru Ítölum dýr. 18.6.2006 20:29
Klinsmann vill að Low taki við af sér Jurgen Klinsmann, þjálfari Þýskalands vill að Joachim Low, aðstoðarmaður sinn taki við af sér með landsliðið ef hann ákveður að hætta með liðið eftir HM. 18.6.2006 16:03
Stjórnarmaður FIFA seldi miða á svörtu Ismail Bhamjee sem er frá Botsvana og stjórnarmaður hjá FIFA hefur verið uppvís af því að selja miða á leiki á HM á svörtum markaði. Stjórnarmaðurinn seldi 12 miða á leik Englendingar og Trinidad & Tóbagó og þrefaldaði hann verðið og seldi stakan miða fyrir 300 evrur eða um 28.000 krónur. Bhamjee hefur verið skipað að hætta afskitpum af HM og segja af sér í stjórn FIFA. 18.6.2006 15:59
Hvað gerir Eriksson í næsta leik Englendinga? Þjálfari Englendinga Sven Goran Eriksson, mun að öllum líkindum hvíla annaðhvort Frank Lampard eða Steven Gerrard í næsta leik liðsins. 18.6.2006 14:00
HM leikir dagsins Í dag byrjar veislan klukkan 13:00 með viðureign Japan og Króatíu, þau leika í F-riðli ásamt Brasilíu og Ástralíu sem mætast klukkan 16:00. Dagurinn endar svo á leik úr G-riðli milli Frakklands og Suður Kóreu sem hefst klukkan 19:00. Allir leikirnir eru að sjálfsögðu í beinni á Sýn. 18.6.2006 09:39
Zlatan ekki með gegn Englendingum Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður sænska landsliðsins verður líklega ekki með liði sínu þegar það mætir því enska í lokaleik riðlakeppninnar á HM. Leikurinn er á þriðjudaginn kemur. Zlatan þurfti að fara af velli í leiknum við Paragvæ og eftir rannsókn kom í ljós að hann er meiddur á nára. 17.6.2006 22:26
Enska liðið getur farið alla leið Hernan Crespo, leikmaður Argentínu segir að enska liðið eigi góða möguleika að fara alla leið á HM þrátt fyrir að sýna kannski ekki sinn besta leik í þeim tveimur leikjum sem þeir hafa spilað til þessa. 17.6.2006 22:21
Cole ekki með gegn Svíum? Ashley Cole, bakvörður enska landsliðsins er meiddur á læri og óvíst um hans þátttöku í leiknum við Svía á þriðjudaginn. Leikmaðurinn á von á því að taka samt sem áður þátt í æfingu liðsins um helgina og sjá hversu langt hann kemst á þessu. 17.6.2006 22:09
Styttan af Figo Alveg frábær grein eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Blaðinu í dag, hún talar um Figo, hún minnir á að það má ekki tala illa um Louis Figo, hann er mubla, stytta, og næg ástæða til þáttöku í hans tilfelli segir Kolbrún, hvað maðurinn er fallegur. Figo fallegi. 17.6.2006 19:46
Hasar í leik Ítalíu og Bandaríkjanna, staðan 1-1 Albetro Gilardino skoraði með flugskalla á 22. mínútu eftir Sendingu frá Adrea Pirlo. Fjórum mínútum síðar jöfnuðu Bandaríkjamenn eftir sjálfsmark Cristian Zaccardo . Skömmu eftir það fékk Daniel De Rossi rautt spjald fyrir fólskulega árás á Brian McBride. Ítalir leika því einum færri það sem eftir er. 17.6.2006 19:26
Ganamenn klúðra fyrsta vítinu á HM Asamoah Gyan leikmaður Gana var rétt í þessu að skjóta í stöng úr vítaspyrnu sem hefði komið Gana tveimur mörkum yfir. Tékkar sluppu því með skrekkinn. Tomas Ujfalusi leikmaður Tékka var rekinn af leikvell. Tékkar leika því einum færri. 17.6.2006 17:23