Fleiri fréttir

Cruyff ánægður með Van Basten

Hollenska goðsögnin, Johan Cruyff er mjög ánægður með Marco van Basten, landsliðsþjálfara hollendinga, Segir hann að liðið sé á rétti leið og Basten sé að gera hárétta hluti með það.

Tango nuevo

Hér er enn einn snilldarleikurinn, Argentína, hvað er hægt að segja við svona sýningu, ljóðrænni, töfrandi fegurð einsog í útsetningu Astor Piazzolla á gamla argentíska tangóinum, þetta er hinn nýi tangó í fótboltanum, hinn hreini tónn. Ég fann sömu tilfinningu og þegar ég horfði á Spánverjana í fyrsta leik, þetta eru töfrar, auðvitað er fótbolti líka barátta, taktík og allt það, en þetta er hrein snilld, ekkert minna.

Vinsæll hjá samkynhneigðum í Hollandi

Cristiano Ronaldo, landsliðsmaður Portúgal hefur verið valinn af samtökum samkynhneigðra í Hollandi fallegasti og mest kynæsandi leikmaðurinn á HM. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem samkynhneigðir velja nafnbót á leikmanninn en hann er sagður mjög vinsæll meðal homma og hefur tekið við hlutverki David Beckham.

Van Basten segir fjölmiðla blása sögur upp

Marco van Basten, þjálfari hollenska landsliðsins segir að fjölmiðlar hafi blásið upp og búið til sögur um að Arjen Robben og Robin van Persie hafi lent saman eftir leikinn gegn Serbíu. Van Basten segir þetta vera rangt.

Owen á von að vera settur á bekkinn

Micheal Owen, leikmaður enska landsliðsins segir að hann eigi allt eins von á því að verma bekkinn í síðasta leiknum í riðlakeppninni en þá leikur England gegn Svíum.

HM leikir dagsins:

Þrír leikir eru á dagskrá á HM í dag en nú er vika liðin af mótinu. Þeir leikir sem þegar hafa verið leiknir lofa mjög góðu fyrir framhaldið. Argentína og Serbía mætast klukkan 13.00 og verður þetta án efa mjög harður og spennandi leikur, enda báðar þjóðir þekktar fyrir hörku og meiri hörku.

Stjörnur Juventus munu halda til Englands

Ítalski umboðsmaðurinn, Silvano Martina segir að bestu leikmenn Juventus muni fara til Englands, verði félagið dæmt niður um deild. Félagið hefur verið sakað um að hafa haft áhrif á úrslit leikja á Ítalíu en rannsókn er í fullum gangi um þessar mundir.

Lahm er ekki til sölu

Bayern Munchen hefur ekki í hyggju að selja þýska landsliðsbakvörðinn Philipp Lahm þrátt fyrir mikinn áhuga Chelsea á að kaupa leikmanninn.

39 mörk voru skoruð í 1 umferðinni

Alls voru skoruð 39 mörk í 1 umfer HM sem fram fer í Þýskalandi. Það gerir að meðaltali 2,44 mörk eru gerð í leik. Þetta eru ívið fleiri mörk en skoruð voru fyrir fjórum árum. Á HM 2002 voru skoruð að meðaltali 2,19 mörk í leik. Á HM í Frakklandi voru skoruð 2,63 mörk í leikjum fyrstu umferðar.

Ronaldo fluttur á sjúkrahús

Brasilíski framherjinn Ronaldo var fluttur á sjúkrahús í gærkvöld vegna höfuðverks og svima. Ekkert óeðlilegt kom fram við skoðun lækna á sjúkrahúsinu, sem sendu kappann aftur á hótel Brasilíumanna í nótt.

Messi með gegn Serbíu

Ungstirni Barcelona, Lionel Messi, er búinn að ná sér af þeim meiðslum sem hafa verið að hrjá hann að undanförnu. Fjölmiðlar greindu frá því í dag að Messi verði í leikmannahópi Argentínu á morgun þegar lið hans mætir Serbíu/Svartfjallalandi.

Fyrirsagnir og fyrrverandi stjörnur

Ég held að ein besta fyrirsögn í heimi hafi komið í heimsblöðunum í dag, Eiður til Barcelona, komin sjálfsagt hátt í tuttugu ár síðan ég sat niðri við hliðarlínu á Nou Camp vellinum og tók ljósmyndir af Framliðinu í leik, þá var ég hættur að spila sjálfur, þá var ég ungur.

Buffon mundi spila með Juve í Seríu B

Gianluigi Buffon, markvörður Juventus og landsliðs Ítalíu segist fylgja sínu liði niður í Seríu C ef þannig ber undir. Eins og flestir vita er í gangi lögreglurannsókn á Ítalíu vegna Juventus þar sem talið er að forráðamenn félagins hafi hagrætt úrslitum í leikjum.

Klinsmann ánægður með varamennina

Jurgen Klinsmann, þjálfari Þjóðverja var að vonum ánægður með 1-0 sigur sinna manna á Pólverjum í gær. Hann var sérstaklega ánægður með innkomu varamannanna í leiknum en það var Oliver Neuville sem skoraði sigurmark heimamanna en hann hafði komið inná stuttu áður.

Walter Zenga tekur við Gaziantepspor í Tyrklandi

Walter Zenga, fyrrum landsliðsmarkvörður Ítalíu hefur verið ráðinn þjálfari hjá Tyrkneska liðinu Gaziantepspor. Zenga var þjálfari hjá Rauðu Stjörnunni í Belgrad í vetur. Hann var einnig orðaður við Livorno en fór heldur til Tyrklands og ætlar að rífa liðið upp sem átti ekki gott tímabil í vetur.

Ítölsk lið á eftir Klose

Fiorentina og Palermo hafa mikinn áhuga að fá til sín Miroslav Klose, landsliðsmann Þjóðverja og leikmann Werder Bremen. Klose sem er 28 ára gamall hefur nú þegar skorað tvö mörk á HM. Samningur hans við Bremen rennur ekki út fyrr en 2008 og spurning hvort hann hafi áhuga að söðla um og fara yfir Alpana til Ítalíu.

Spánverjar bjartsýnir á gott gengi á HM

Luis Aragones, þjálfari Spánar segir að lið hans hafi sett allt á haus hjá veðbönkum eftir 4-0 sigur liðsins gegn Úkraínu í gær. Spánverjar léku sannkallaðan konfekt fótbolta og voru án efa að sýna bestu tilþrif á HM til þessa.

England mætir Trinidad og Tóbagó

Að venju verða þrír leikir á dagskrá á HM í dag. Klukkan 13.00 hefst leikur Ekvador og Kosta Ríka. England mætir Trinidad og Tóbagó klukkan 16.00. Kvöldleikurinn er svo leikur Svía og Paragvæ og hefst hann klukkan 19.00. Allt þetta og miklu meira á Sýn.

Þykir ekki mikið til Englendinga koma

Beenhakker sagði að sínir menn bæru virðingu fyrir Englendingum en þeir hefðu hins vegar ekki hrifist af leik Englendinga gegn Paragvæ. „Við sáum Englendingana í tómum vandræðum allan leikinn á móti Paragvæ.“

Ronaldo fær annan séns

Brasilíski framherjinn Ronaldo sem að leikur með Real Madrid mun fá annan séns í byrjunarliði Brasilíu þrátt fyrir afleita frammistöðu í leiknum gegn Króötum á þriðjudag.

Spánn valtaði yfir Úkraínu

Spánverjar voru með algera yfirburði í leiknum og léku sér á köflum að Úkraínumönnunum. Þetta er án efa besta frammistaðan sem sést hefur á mótinu til þessa og verða Spánverjar að teljast mjög líklegir til árangurs eftir þessa frammistöðu.

Si, claro

Það var í dag sem það gerðist, að Spánverjar sprengdu HM í loft upp. Þetta var engin venjuleg sólarlandaferð, þegar þeir tóku Úkraínu 4-0, alveg nýtt spánskt fótgöngulið, sem fór með Shevchenko og félaga einsog þeir væru í fjórða flokki.

Leikir dagsins

Þrír leikir er á dagskrá á HM í dag. Klukkan 13.00 er athyglisverður leikur á milli Spánar og Úkraínu. Klukkan 16.00 er svo leikur Túnis og Sádí Arabíu. Kvöldleikurinn er svo leikur nágrannaþjóðanna Þýskalands og Póllands. Allt þetta og miklu meira á Sýn í dag.

Stór Kaka

Markið sem Kaka leikmaður AC Milan skoraði undir lok fyrri hálfleiks, fer í sögubækur, hreint ótrúlega yfirvegaður leikmaður, skotið hnitmiðað, í hornið fjær, einfalt, stílhreint, og hann einn besti maður liðsins, kannski sá eini sem stóð undir þessum geggjuðu kröfum sem gerðar eru til drengjanna í gulu peysunum.

Brasilía er yfir 1-0 í hálfleik

Brasilíumenn leiða í hálfleik í leiknum gegn Króatíu á HM í Þýskalandi. Það var snillingurinn Kaka sem skoraði markið á 44. mínútu með hnitmiðuðu skoti fyrir utan vítateig. Króatar sem hafa leikið vel í leiknum urðu fyrir áfalli þegar Nico Kovac þurfti að fara meiddur af leikvelli.

Brassar stíga senn á dansgólfið

Nú styttist í leik Brasilíu og Króatíu á HM. Það ríkir mikil eftirvænting eftir því að sjá "Sambakóngana" í brasilíska liðinu stíga inn á það dansgólf sem HM er fyrir þá. Liðin eru þannig skipuð.

Cafu á leið í fangelsi?

Cafu gæti verið á leiðinni í 10 mánaða fangelsi ef hann verður fundinn sekur um að hafa ranglega útvegað sér ítalskt vegabréf. Ítalsur saksóknari vill að Cafu og eiginkona hans verði ákærð og dæmd til fangelsisvistar fyrir að vera með ólöglegt vegabréf.

Hönd Guðs eða andskotans?

Það er nóg komið, af þessu hlutlæga mati, hvenær hönd fer í bolta eða bolti í hönd, fót eða maga, nú síðast undir lok fyrri hálfleiks í Frakkar - Svisslendingaleiknum, Henry setur hann í hendina á varnarmanni Svissara. Hvernig getur dómari leiksins, Ivanov Valentin ekki séð þetta

Ballack verður með á morgun

Michael Ballack, fyrirliði þjóðverja mun verða með liði sínum á morgun er það spilar við Pólverja í 2 umferðinni á HM. Ballack var ekki með liði sínum í opnunarleiknum við Kosta Ríka á föstudaginn þar sem hann hafði ekki náð sér að fullu af meiðslum.

Ekki ánægður með að hafa verið skipt útaf

Cristiano Ronaldo, leikmaður Portúgals var ekki sáttur er hann var tekinn af velli í leiknum við Angóla á sunnudaginn en Portúgalar unnu þessa fyrrum nýlendu sína 1-0. Fyrirfram var búist við mun stærri sigri Portúgala. Ronaldo náði ekki að setja sitt mark á þennan leik og uppskar til að mynda gult spjald.

Ósáttir við reykingar þjálfara Mexico

Forráðamenn FIFA eru ekki ánægðir með Ricardo Lavolpe, þjálfara Mexico en hann fékk sér sígarettu á meðan leik liðsins stóð gegn Íran á sunnudagskvöldið.

Leikir dagsins á Sýn

Þrír leikir verða á dagskrá á HM í dag. Veislan byrjar klukkan 13.00 er Suður Kórea og Togo spila saman en þau eru í G-riðli. Klukkan 16.00 er svo leikur Frakka og Sviss í sama riðli. Kvöld leikurinn er svo Brasilía og Króatía og hefst hann klukkan 19.00.

Við verðskulduðum sigur

Marcello Lippi, þjálfari ítala segir að lið sitt hafi verðskuldað 2-0 sigur á Ghana í gær. Ítalska liðið hafði mikið fyrir því að innbyrða þennan sigur en það voru þeir Andrea Pirlo og Vincenzo Iaquinta sem gerðu mörk liðsins í þessum leik.

Adriano hvetur Emerson til að leika með Inter

Adriano, framherji Brasilíu og Inter á Ítalíu, hvetur landa sinn Emerson til þess að fara til Inter, fari svo að Juventus verði dæmt niður um deild. Emerson hefur áður sagt að það komi ekki til greina að spila í Ítölsku B deildinni og því ljóst að hann muni yfirgefa félagið fari svo að það verði dæmt niður um deild.

Óvissa með Justo Villar

Justo Villar, markvörður Paragvæ, mun fara í læknisskoðun í dag þar sem úr því verður skorið hvort að leikmaðurinn verði meira með á HM.

Bera til baka fregnir af slagsmálum Svía

Forráðamenn sænska landsliðsins neita þeim orðrómi að slagsmál hafi brotist út í búningsherbergi þeirra eftir jafnteflið gegn Trinidad & Tobago. Fjölmiðlar hafa greint frá því að Freddy Ljungberg og Olaf Mellberg hafi lent í ryskingum inn í klefa sænska landsliðsins eftir leikinn, en forráðamenn sænska landsliðsins segja það algjöra vitleysu.

Koller klár í 16 liða úrslit

Jan Koller, framherji Tékklands, er bjartsýnn á að geta spilað meira fyrir Tékka á HM. Koller tognaði á læri í leik Tékklands og Bandaríkjanna í dag og var búist við því að hann yrði ekki meira með á mótinu.

Blátt er best

Það sást vel til himins í kvöld, Ítalir gera eins og Þjóðverjar, sækja frá fyrstu mínútu á lið sem eru óútreiknanlegar HM stærðir, Guðjón Guðmunsson gekk svo langt í kvöld að spá Ítölum heimsmeistaratitli, og hárrétt hjá honum, margir blaðamenn í Munchen voru þeirrar skoðunnar líka. Það sem af er, þessir fjórir leikdagar, eru sigur fótboltans.

1-0 fyrir Ítalíu í hálfleik

Það er hálfleikur í leik Ítalíu og Gana á HM. það var Andrea Pirlo sem það skoraði á 40. mínútu með þrumuskoti fyrir utan vítateig eftir sendingu frá Francesco Totti. Ítalir hafa verið sterkara liðið á vellinum.

Totti byrjar

Kl. 19:00 hefst leikur Ítala og Ganamanna. Þetta gæti orðið spennandi leikur. Það er alltaf búist við miklu af Ítölum en þeir misstigu sig illilega í síðustu keppni. Ganamenn eru stórt spurningarmerki og þeir koma eflaust til þess að reiða sig mikið á dýrasta Afríska knattspyrnumann allra tíma Micheal Essien. Athygli vekur að Francesco Totti er í byrjunarliði Ítala en hann hefur verið meiddur lengi.

Aldrei eitt núll framar!

Loksins, hefðbundinni 1-0 hm jarðarför, þar sem leikurinn fjarar út í leiðindum, var snúið til betri vegar, Tim Cahill jarðsetti Japani með tveimur mörkum með fimm mínútna millibili. Þvílíkur snillingur, þótt hann spili með Everton. Ég var orðin vondaufur þegar 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik, þetta verður enn eitt eitt núll svekkelsið, en ekki aldeilis.

Leikmenn Englands óánægðir með skiptingarnar

Leikmenn enska landsliðsin voru síður en svo ánægðir með skiptingarnar sem að Sven Göran Erikson gerði í leiknum gegn Paragvæ á föstudaginn. Leikmennirnir voru bæði hissa og ráðvilltir yfir ákvörðunum Sven Görans og sást það greinilega í andlitum þeirra þegar skiptingarnar áttu sér stað.

Keane leggur skóna á hilluna

Roy Keane hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur átt í erfiðleikum með að hrista af sér meiðsli á mjöðm sem hafa verið að hrjá hann á undanförnu tímabili.

Athyglisverðir leikir á dagskrá

Þrír leikir eru á dagskrá á HM í dag. Ástralía spilar við Japan klukkan 13.00. Klukkan 16.00 mætast svo Tékkar og Bandaríkjamenn. Dagurinn endar svo með leik Ítalíu og Ghana klukkan 19.00.

Figo, þú sem ert á himnum

Ég sé hálfvegis eftir því að hafa talað heldur illa um Louis Figo í 442 á Sýn í kvöld, reyndar ekki mjög illa, en við hverju býst maður af sjálfum Frelsaranum, sem steig upp til himna hjá Barcelona, en féll svo í neðra þegar hann fór til Real Madrid. Hann er án efa einn af þeim allra bestu.

Sjá næstu 50 fréttir