Fleiri fréttir

52 féllu í átökum glæpagengja og lögreglu

Að minnsta kosti fimmtíu og tveir féllu í átökum glæpagengja og lögreglu víðsvegar um Brasilíu um liðna helgi. Meðal þeirra sem létu lífið voru óbreyttir borgarar auk lögreglu- og slökkviliðsmanna. Minnst sextán hafa verið handteknir.

Hvetur landa sína til að taka höndum saman

Rene Preval tók formlega við embætti forseta Haítí í gær í annað sinn á áratug. Nýr forseti hvatti landa sína til að taka höndum saman en þjóðin hefur verið klofin frá því Jean-Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta, var komið frá völdum fyrir tveimur árum í blóðugri uppreisn.

Réttarhöldin yfir Saddam halda áfram

Réttarhöldin yfir Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, hefjast á ný í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Verjendur Hússeins taka þá til við sinn málflutning en réttarhlé hefur verið í þrjár vikur.

Ræktunarland eyðileggst vegna flóða

Að minnsta kosti tveir hafa farist í miklum flóðum í Georgíu. Mörg hundruð hektarar ræktarlands hafa eyðilagst austur af höfuðborginni, Tíblisi, og flætt hefur inn í rúmlega tvö hundruð íbúðarhús.

Neyðarástand vegna flóða í Bandaríkjunum

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í nokkrum fylkjum á austurströnd Bandaríkjanna vegna mikilla flóða. Mikið hefur rignt á Nýja Englandi og í Massachusetts og hafa ár flætt yfir varnargarða og skolað burt vegum á nokkrum svæðum.

Gosið í Merapi færist í aukana

Eldfjallið Merapi á indónesísku eyjunni Jövu spúir nú ösku, hrauni og eldgasi um 4 km leið niður vestari hluta fjallsins. Eldgosið í fjallinu hefur enn færst í aukana.

Ætla ekki að hætta við að auðga úran

Forseti Írans hafnaði í dag öllum tilboðum frá Evrópusambandinu sem fela í sér að Íranir hætti að auðga úran. Forsetinn, Mahmud Ahmadinejad, sagði í viðtali við íranska sjónvarpið að ekkert þýddi að bjóða Írönum sérkjör af nokkru tagi gegn tilslökunum í þróun kjarnorkuiðnaðar.

Dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir sprengjuárásir

Tíu félagar í herskáum samtökum í Bangladess hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir aðild að sprengjuárásum í landinu í ágúst síðastliðnum. Þrír til viðbótar fengu 20 ára fangelsi fyrir að standa að árásunum en þær áttu sér stað í bænum Joypurhat.

Íranar hætta að auðga úran

Forseti Írans hafnaði í dag öllum tilboðum frá Evrópusambandinu sem fela í sér að Íranir hætti að auðga úran. Forsetinn, Mahmud Ahmadinejad, sagði í viðtali við íranska sjónvarpið að ekkert þýddi að bjóða Írönum sérkjör af nokkru tagi gegn tilslökunum í þróun kjarnorkuiðnaðar.

Mannskæðar árásir í Írak í morgun

Fjöldi sprengjuárása var gerður í Írak í morgun, bæði gegn guðshúsum og hernaðarmannvirkjum, með þeim afleiðingum að 26 að minnsta kosti létu lífið og sextíu eru sárir.

Rússnesk stríðstól á leið út úr Georgíu

Tugir tonna af rússneskum stríðstólum eru nú á lestarvögnum út úr Georgíu. Rússar hafa verið með bækistöðvar í Georgíu síðan landið fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum fyrir tæpum fimmtán árum.

Síamstvíburar aðskildir í Bandaríkjunum

Tvær fimm mánaða gamlar stúlkur í Bandaríkjunum sofa nú í sitthvoru rúminu í fyrsta sinn á sinni stuttu æfi eftir að skurðlæknar aðskildu þær í gærkvöldi. Stúlkurnar voru samvaxnar á brjóstkassa og maga.

Réðust inn á heimili fyrrverandi yfirmanns CIA

Bandaríska alríkislögreglan réðst í gær til inngöngu á heimili manns sem nýlega lét af störfum sem þriðji æðsti yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Fimm alríkisstofnanir tóku þátt í húsleitinni, sem var gerð samkvæmt leynilegum dómsúrskurði. Talsmenn þeirra vildu ekki segja hverju væri verið að leita að, en maðurinn - Kyle Foggo - er grunaður um spillingu í tengslum við verktakasamninga.

Varað við hamförum við Merapi

Eldfjallið Merapi í Indónesíu spúði eldi og ösku í morgun á meðan þúsundir íbúa aðliggjandi svæða flúðu heimili sín. Í morgun gáfu stjórnvöld út viðvörun um yfirvofandi hamfarir og skipuðu þúsundum manna sem búa á svæðinu að hafa sig á brott.

Yfir hundrað og fimmtíu látnir eftir að olíuleiðsla sprakk í Nígeríu

Yfir hundrað og fimmtíu eru sagðir látnir eftir að olíuleiðsla sprakk í Suðvestur-Nígeríu í morgun og þar af margir svo illa brenndir að líkin eru óþekkjanleg. Leki hafði komið að olíuleiðslunni og þorpsbúar þustu þar að, til að safna dýrmætum olíudropum í alla tiltæka dalla.

Flúið undan eldgosi í Indónesíu

Beita hefur þurft fortölum til þess að fá fólk til að flýja undan eldgosi í Merapi-fjalli á Indónesíu. Óttast er að eldský grandi þeim sem ekki koma sér undan, eins og gerðist í síðasta eldgosi árið 1994. Þúsundir hafast nú þegar við í flóttamannaskýlum en margir hafa þráast við að yfirgefa heimili sín, ef ekki er kostur að taka búféð með, en það er oft eina viðurværi fjölskyldna í héraðinu.

Ahmadinejad segist hvergi banginn við árásir

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans segir Írana ekki vera hrædda við árásir Bandaríkjamanna og telur ólíklegt að Vesturveldin láti til skarar skríða og ráðist á Íran vegna kjarnorkuáætlunar landsins.

Villta Västerås

Tveir menn réðust með sjálfvirk skotvopn inn í héraðsdóm í Västerås í Svíþjóð í morgun og frelsuðu þar mann sem var fyrir rétti. Mennirnir hleyptu ekki af, heldur höfðu sig á brott um leið með sakborninginn. Maðurinn var ákærður fyrir að vera höfuðpaur stórs fíkniefnahrings, en sjö aðrir eru ákærðir vegna málsins.

Clinton í Kaupmannahöfn

Fjöldi fólks beið í gær í marga klukkutíma fyrir framan Hotel d´angleterre við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn í von um að berja augum Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.

Hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland

Einn af forystumönnum al-Qaida samtakanna hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland í nýju myndbandi sem birt var á Netinu í gær. Líbýumaðurinn Mohammed Hassan, sem slapp úr einu af fangelsum Bandaríkjanna í Afganistan í fyrra, hvetur til hefnda fyrir Múhameðsteikningarnar sem birtar voru á síðasta ári.

Prestur dæmdur fyrir að myrða nunnu

Bandarískur prestur var í gær dæmdur í 15 ára til lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt nunnu árið 1980. Gerald Robinson hafði lengi unnið með Margaret Ann Pahl en hún var stungin til bana alls 31 sinni.

Upprættu mikla kókaínframleiðslu

Fíkniefnalögreglan í Kólumbíu réðst í gær til atlögu á kókaínframleiðslufyrirtæki þar sem hvorki meira né minna en þrjú tonn af kókaíni eru framleidd í hverjum mánuði.

Hugmyndir um kaup Fly Me á Sterling

Hugmyndir eru uppi um að sænska lággjaldaflugfélagið Fly Me kaupi Sterling flugfélagið sem er í eigu FL Group og jafnvel norska flugfélagið Norwegian. Ager Hansen, sem er næststærsti hluthafi í Fly Me, segir í viðtali við Finansavisen að Finnair komi líka til greina, en það á lágjaldaflugfélagið Fly Nordic.

Bush neitar að tjá sig um hleranir

Bandaríkjaforseti neitar að tjá sig um staðhæfingar bandarískra fjölmiðla þess efnis að Bandaríkjastjórn hafi safnað upplýsingum um símtöl tuga milljóna Bandaríkjamanna frá árinu 2001. Dagblaðið USA Today staðhæfir að þrjú stærstu símafyrirtæki landsins hafi afhent yfirvöldum upplýsingar um símtöl fólksins.

Boðað til neyðarfundar með Tamíltígrum vegna árásar

Yfirstjórn friðargæslunnar á Sri Lanka hefur boðað til neyðarfundar með uppreisnarmönnum Tamíltígra. Friðargæslan sakar tígrana um gróf brot á vopnahléssamkomulaginu frá 2002, nú síðast í gær, með sjálfsmorðsárás á herskip í sem leiddi til dauða 57 manns, að sögn yfirvalda.

Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn

Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn hóf útsendingar í Bandaríkjunum í dag. Þetta er fyrsta stöð sinnar tegundar en markhópurinn er börn yngri en tveggja ára.

Valdamenn spila fótbolta

Það voru valdamiklir menn sem spörkuðu á milli sín knetti til styrktar góðu málefni í Vín í Austurríki í dag. Þá var efnt til góðgerðarleiks í knattspyrnu þar sem sjö evrópskir forsætisráðherrar og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, létu ljós sitt skína.

Börn mótmæltu við höfuðstöðvar SÞ á Gaza

Tugir palestínskra barna reistu tjald fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu í dag til þess að mótmæla því sem þau kalla efnahagslegt umsátur um palestínskt land.

Breska leyniþjónustan þekkti árásarmennina

Tveir þeirra fjögurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Lundúnir í fyrra voru undir takmörkuðu eftirliti fyrir árásirnar auk þess sem breska leyniþjónustan hafði hlerað síma þess þriðja. Þetta kemur fram í skýrslu þingnefndar um árásirnar sem birt var í dag.

Kona og barn myrt í Antwerpen

Svo virðist sem kynnþáttafordómar hafi ráðið ferð þegar 18 ára piltur varð svartri konu og barni í hennar gæslu að bana í miðborg Antwerpen í Belgíu í dag.

Norrænir friðargæslumenn í hættu

Vopnahlé, sem norrænir eftirlitsmenn fylgjast með á Sri Lanka, er í uppnámi eftir bardaga á sjó og landi í dag. Talið er að minnst 45 hafi fallið. Íslenskur upplýsingafulltrúi norrænu eftirlitssveitanna segir að tveir norrænir eftirlitsmenn hafi verið í hættu, en þá hafi ekki sakað.

Eldsneyti aftur flutt á sjálfsstjórnarsvæðin

Ísraelska orkufyrirtækið Dor Alon ætlar að hefja aftur flutning á eldsneyti til sjálfsstjórnarsvæða Palestínumanna á morgun. Fyrirtækið ákvað að hætta eldsneytisflutningum í gær vegna skulda heimastjórnar Palestínumanna.

50 manns drepnir í Bagdad

Allt að 50 manns eru drepnir í Bagdad, höfuðborg Íraks á hverjum sólarhring. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks, í gær og bað um að blóðbað landinu yrði stöðvað. Árásum hefur fjölgað mikið að undanförnu í Írak en hryðjuverkasamtökin Al Qaida hafa lýst því yfir að þannig verði það uns Bandaríkjamenn eru á bak og burt og samtökin hafa náð fullum völdum.

Börn á munaðarleysingjahælum í Rúmeníu vanrækt og misnotuð

Bandarísk mannréttindasamtök segja börn á munaðarleysingjahælum í Rúmeníu, sem skipta þúsundum, vera vanrækt og misnotuð í miklum mæli. Rúmensk stjórnvöld viðurkenna að eiga í miklum vandræðum með allan þann fjölda barna sem skilin eru eftir við dyr munaðarleysingjahæla og þær aðstæður sem þau búa við en neita þó ásökunum um misnotkun.

Veita Palestínumönnum tímabundna neyðaraðstoð

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði á blaðamannafundi í gærkvöld að Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússar og Sameinuðu þjóðirnar, kvartettinn svokallaði, hefði ákveðið að veita Palestínumönnum tímabundna neyðaraðstoð til að koma í veg fyrir að þeir fái það á tilfinninguna að verið sé að refsa þeim fyrir að kjósa Hamas-samtökin í lýðræðislegu kosningum.

Eldflaugum skotið að uppreisnarmönnum á Gaza

Ísraelar skutu tveimur eldflaugum á herbúðir uppreisnarmanna í suðurhluta Gaza seint í gærkvöldi. Ekki hafa borist neinar fréttir af mannfalli. Að sögn ísraelskra stjórnvalda var F16 þota send til að eyðileggja byggingu þar sem hryðjuverkamenn eru taldir vera þjálfaðir.

Goldsmith lávarður vill loka Guantanamo fangelsinu

Guantanamo fangelsið á Kúbu kemur óorði á frelsishefð Bandaríkjamanna og ætti að loka. Þetta sagði Goldsmith lávarður, ríkislögmaður Breta í ræðu í gær. Hann sagði tilvist fangelsisins óásættanlega.

Minnisvarði veitir upplýsingar

Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa fundið minnisvarða höggvinn úr steindranga í norður hluta landsins. Hann gæti veitt nýjar upplýsingar um eina elstu þjóðmenningu álfunnar.

Sirkusfílar á vappi í Svíþjóð

Það voru sirkusfílar sem mættu þeim sem áttu leið um nálægt vænum Väsby í Svíþjóð í gærkvöldi. Verið var að ferja fílana með flutningbíl þegar ökumaður missti bílinn útaf veginum þar sem hann valt síðan.

Sjá næstu 50 fréttir