Fleiri fréttir

Lauk 4800 kílómetra göngu frá Kaliforníu til New York.

Bandarískur karlmaður lauk í gær 4800 kílómetra göngu frá Kaliforníu til New York. Gangan hófst 10 apríl árið 2005 og sagði maðurinn, Steve Vaught, ástæðuna fyrir þessum óvenju langa göngutúr vera óánægja með eigin líkama og líðan en hann hafði lengi verið þunglyndur.

Dæmdur í lífstíðarfangelsi

Þjóðverjinn Arwin Meiwes var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið mann sem hann kynntist stuttu áður á netinu og lagt hann sér síðan til munns. Meiwes var reyndar dæmdur fyrir verknaðinn fyrir tveimur árum og þá í átta og hálfs árs fangelsi.

semja um frið

Samkomulag hefur náðst á milli Hamas og Fatah fylkinganna. Leiðtogi Palestínumanna, Ismail Haniyeh, bað leiðtoga Hamas og Fatah að mæta á sinn fund í Gaza í gær og varði fundurinn í rúma fjóra klukkutíma.

Palestínumenn fá hjálp

Samkomulag hefur náðst um tímabundnar aðgerðir til að tryggja það að neyðaraðstoð berist til palestínsku sjálfstjórnarsvæðanna

Tilbúnir að koma til móts við Írana

Fulltrúar þeirra ríkja sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna náðu samkomulagi í gærkvöldi um að gera Írönum tilboð um að þeir hljóti ákveðnar hagsbætur fallist þeir á kröfur Sameinuðu þjóðanna í kjarnorkudeilunni.

Ætla að veita Palestínumönnum stuðning

Fjórveldin sem standa að baki vegvísinum til friðar í Miðausturlöndum ætla að koma upp alþjóðlegu kerfi svo hægt sé að veita Palestínumönnum fjárhagslegan stuðning.

Námaverkamönnunum loks bjargað

Tveir ástralskir verkamenn sem setið höfðu fastir í gullnámu í hartnær hálfan mánuð sluppu loks úr prísund sinni í morgun. Þeir voru glorhungraðir þegar þeir komu upp úr námunni en að öðru leyti amaði ekkert að þeim.

Aðeins 30 prósent styðja Verkamannaflokkinn

Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, að greina ekki frá hvenær hann hyggst láta af embætti. Skoðanakannanir benda til að Verkamannaflokkurinn hafi ekki verið óvinsælli síðan 1992.

Fatah-liðar berjast við Hamas-liða

Níu palestínumenn særðust í átökum milli Fatah-hreyfingar Yassers Arafats og byssumanna Hamas-hreyfingarinnar á Gaza-svæðinu í morgun.

Mikill skortur á vinnuafli í Danmörku

Mikill skortur er á vinnuafli í Danmörku. Þetta sýna nýjustu tölur á helstu atvinnuauglýsingasíðu Danmerkur á Netinu sem greint er frá í Politiken. Mestur er skorturinn á hjúkrunarfræðingum og byggingarverkamönnum og iðnaðarmönnum og þá er mikil barátta um sérfræðinga í fjármálageiranum.

Blaine hætti við heimsmetstilraun

Bandaríski töframaðurinn David Blaine hætti í gær við að reyna að halda niðri í sér andanum í níu mínútur og setja þar með heimsmet.

Rice segir bréf Ahmadinejads ekki taka á kjarnorkudeilu

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gerði lítið úr bréfi sem Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti sendi George Bush Bandaríkjaforseta og sagði það ekki fjalla um kjarnorkudeiluna af neinni alvöru á blaðamannafundi í gærkvöldi.

Biður um meiri tíma til að handsama Mladic

Boris Tadic, forseti Serbíu, segir nauðsynlegt fyrir yfirvöld í landinu að fá meiri tíma til að handsama Ratko Mladic sem er eftirlýstur af stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna.

Moussaoui vill sanna sakleysi sitt

Zacarias Moussaoui, sem í síðustu viku var dæmdur í lífstíðarfangelsi vegna aðildar að árásunum á Bandaríkjum þann 11. september árið 2001, sagðist í gær ekki hafa sagt rétt og satt frá við réttarhöldin. Hann sagðist hafa játað sig sekan gegn vilja lögmanna sinna því hann hefði ekki skilið bandarískt réttarkerfi.

Ný ríkisstjórn kynnt til sögunnar í Írak

Ný ríkisstjórn verður að öllum líkindum mynduð í Írak á fimmtudag. Embættismenn þar í landi segja að Nuri Maliki, tilnefndur forsætisráðherra, ætli að kynna skiptingu ráðherra á fundi með fréttamönnum í dag.

Tvær milljónir barna deyja sama dag og þau fæðast

Tvær milljónir barna sem fæðast í þróunarlöndum árlega deyja sama daga og þau fæðast. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Save the Children um aðbúnað mæðra og barna í löndum heimsins.

Ekkert athugavert við endurgreiðsluna

Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ segir ekki hægt að bera ákvörðun um endurgreiðslu á hluta fasteignagjalda skömmu fyrir kosningar saman við það að borgarstjórinn í Reykjavík auglýsi viðtalsfundi fáeinum vikum fyrir kosningar. Lækkunin er kosningadúsa upp í kjósendur segir oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.

Ekkert á bréfinu að græða

Talsmaður Bandaríkjaforseta segir ekkert tekið á áhyggjuefnum alþjóðasamfélagsins í bréfi Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, til George Bush Bandaríkjaforseta. Bandarísk stjórnvöld fengu bréfið í hendur í dag.

Námumönnunum bjargað

Áströlsku námuverkamennirnir tveir sem hafa verið fastir í námu í tvær vikur gengu sigri hrósandi út úr námunni í kvöld. Björgunarmönnum tókst þá loksins að ná þeim upp eftir ítrekaðar tilraunir.

Hayden verður forstjóri CIA

George Bush Bandaríkjaforseti kynnti í dag ákvörðun sína um að skipa Michael Hayden, hershöfðingja úr flughernum, forstjóra leyniþjónustunnar CIA.

Vilja láta ógilda játninguna

Verjendur Zacarias Moussaoui höfðuðu í dag mál til að fá játningu hans ógilta. Moussaoui var í síðustu viku dæmdur til ævilangrar fangelsisvistar fyrir aðild sína að hryðjuverkunum 11. september 2001.

Apple tapaði fyrir Apple

Apple-plötufyrirtækið, sem Bítlarnir stofnuðu á sínum tíma, tapaði í morgun dómsmáli sem það höfðaði gegn Apple-tölvurisanum.

Íranar bjóða sættir

Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans, hefur sent Bush Bandaríkjaforseta bréf þar sem hann réttir fram sáttahönd.

Blaine reynir við metið í kvöld

Bandaríski töframaðurinn David Blaine ætlar í kvöld að reyna að halda niðri í sér andanum í níu mínútur og setja þar með heimsmet.

Engin tímaáætlun nefnd

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, svaraði mótstöðumönnum sínum fullum hálsi á blaðamannafundi í Downingstræti 10 í dag. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir ætlar hann ekki að svara því hvenær hann lætur af embætti.

Birkifrjókorn herja á Dani

Birkifrjókorn herja nú á Dani sem aldrei fyrr og eru fjölmargir ofnæmissjúklingar illa haldnir af þeirra völdum, að sögn Jótlandspóstsins.

Ætlar ekki að setja tímaáætlun um brotthvarf úr embætti

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands ætlar ekki að setja neina tímaáætlun um brotthvarf sitt úr stjórnmálum. Á blaðamannafundi í Downingstræti 10 sem lauk laust fyrir hádegi sagðist hann mundu láta völdin í hendur eftirmanni sínum, Gordon Brown, fjármálaráðherra, þegar rétti tíminn til þess rynni upp en núna væri mikilvægast fyrir Verkamannaflokkinn að einbeita sér að því að stýra landinu.

Birkifrjókorn herja á Dani

Birkifrjókorn herja nú á Dani sem aldrei fyrr og eru fjölmargir ofnæmissjúklingar illa haldnir af þeirra völdum, að sögn Jótlandspóstsins. Óvenju mikið votvirði í lok apríl, óvenju mikið sólskyn og hitar það sem af er þessum mánuði og frjókorn, sem berrast með austlægum áttum frá Póllandi og Svíþjóð, eru talin hafa skapað þessi skilyrði, en fjöldi frjókorna í andrúmsloftinu slær nú öll fyrri met.

Þrýst á Blair að gefa upp hvenær hann láti af embætti

Yfir fimmtíu þingmanna hafa undirritað skjal þar sem Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, er beðinn vinsamlegast um að tilkynna hvenær hann ætli að fara frá og láta Gordon Brown fjármálaráðherra taka við forsætisráðuneytinu.

Flýðu heimili sín vegna skógarelda á Flórída

Yfir eitt þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á Flórída í Bandaríkjunum um helgina vegna skógarelda. Yfir eitt hundrað slökkviliðsmenn vinna nú að því að slökkva eldana sem geisað hafa á yfir fjögur hundruð hektara svæði og eyðilagt að minnsta kosti eitt heimili.

Íranar hóta að hætta öllu samstarfi

Íranar hótuðu í bréfi til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær að hætta öllu samstarfi við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina ef Bandaríkin og bandamenn þeirra hættu ekki að þrýsta á Írana um að hætta við kjarnorkuáætlanir sínar.

Aðeins þriðjungur ánægður með störf Bush

Aðeins einn af hverjum þremur Bandaríkjamönnum er ánægður með störf George Bush forseta landsins. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun AP fréttastofunnar. Þá kemur þar fram að meirihluti þjóðarinnar vill skipta um valdhafa á Bandaríkjaþingi eftir kosningar í haust.

Sjö létust í bruna í Taílandi

Að minnsta kosti sjö manns létu lífið og yfir fimmtíu eru slasaðir eftir að eldur braust út á næturklúbbi í ferðamannabænum Pattaya í Taílandi í gærkvöld.

Saka Pfizer um að hafa notað börn sem tilraunadýr

Læknar í Nígeríu saka stærsta lyfjafyrirtæki heims, Pfizer, um að hafa fyrir tíu árum notað börn þar í landi sem tilraunadýr til að prófa ósamþykkt lyf án vitundar foreldra þeirra og án samþykkis stjórnvalda.

Fljúgandi diskar líklega ekki til

Engar vísbendingar eru um að fljúgandi furðuhlutir fyrirfinnist í veröldinni. Þetta er niðurstaða leynilegrar skýrslu breska landvarnaráðuneytisins um geimverur og farartæki þeirra sem lekið var til þarlendra fjölmiðla.

Cheney styður NATO-aðild Balkanlandanna

Aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins mun að líkindum fjölga um þrjú fyrir árið 2010. Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hét í dag Króötum, Albönum og Makedónum stuðningi sínum við inngöngu þeirra í bandalagið

Eldfjallið Merapi gýs enn

Eldfjallið Merapi á indónesísku eynni Jövu heldur áfram að gjósa en eldvirkni hefur verið nokkur í því síðustu vikur. Gosið hefur verið rólegt það sem af er, hraun rennur niður hlíðar fjallsins og aska stígur upp af því í nokkur hundruð metra hæð.

Ósáttir við að palestínskur ráðherra sæki ráðstefnu í Svíþjóð

Ísraelsmenn og Frakkar hafa brugðist ókvæða við þeirri ákvörðun sænskra stjórnvalda að veita ráðherra í heimastjórn Palestínumanna vegabréfsáritun svo hann geti sótt ráðstefnu í Malmö um málefni Palestínumanna. Ráðherrann þakkar Svíum og segir ákvörðun þeirra pólitísk skilaboð.

Prísund tekur enda á morgun

Útlit er fyrir að prísund tveggja ástralska námaverkamanna sem setið hafa fastir djúpt ofan í gullnámu í tæpar tvær vikur taki ekki enda fyrr en á morgun.

Mannskæðar sprengjuárásir í Írak

Tugir manna hafa farist í sprengjuárásum í Írak í morgun. 21 lést og 52 slösuðust, allt óbreyttir borgarar, þegar bílsprengja sprakk við rútustöð í hinni helgu borg Karbala og 8 manns dóu þegar uppreisnarmaður ók bíl sínum, fylltum sprengiefni, að varðstöð lögreglu í Bagdad.

Íranar hóta að segja sig frá sáttmála

Íranska þingið hótaði í morgun að ríkið segði sig frá sáttmála um takmörkun við útbreiðslu kjarnorkuvopna létu Vesturveldin ekki af þrýstingi sínum í þess garð. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í fyrramálið um kjarnorkuáætlun Írans.

Togstreita milli Blair og Brown

Togstreitan á milli þeirra Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Gordons Brown, fjármálaráðherra, hefur náð nýjum hæðum eftir útreiðina sem Verkamannaflokkurinn fékk í sveitarstjórnarkosningunum á Englandi í síðustu viku.

Blóðug átök í Basra

Til blóðugra átaka kom í borginni Basra í Írak í dag eftir að bresk herþyrla var skotin þar niður í morgun. Fregnir herma að minnst 4 hermenn sem voru um borð hafi farist en það hefur ekki verið staðfest.

Enn loga eldar í Noregi

Skógareldar loga enn á eyjunni Sotru í Noregi og óvíst hvenær slökkviliðsmönnum tekst að ráða niðurlögum þeirra. Flytja þurfti um sjötíu manns frá heimilum sínum í nótt af ótta við að eldarnir myndu læsa sig í heimili þeirra.

Sjá næstu 50 fréttir