Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herjólfur til Þorlákshafnar út þessa viku Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fram til sunnudagsins 17. nóv. næstkomandi. Í tilkynningu frá rekstraraðila ferjunnar segir að ástæðan sé dýpi í Landeyjahöfn, eða skortur á því öllu heldur, og mikill öldugangur sem geri það að verkum að ekki hefur verið hægt að mæla dýpið hvað þá að vinna við dýpkun. 14.11.2011 14:20
Erlingur dæmdur í ellefu ára fangelsi í Litháen Erlingur Örn Arnarson var dæmdur í ellefu ára fangelsi í Vilnius í Litháen í júní síðastliðnum fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið. 14.11.2011 14:02
Rúnar sigraði Kaurismäki, Cronenberg og Lars von Trier Kvikmyndin Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson vann aðalverðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Denver í gærkvöldi. Rúnar sló þar með við meisturum á borð við við Lars von Trier, David Cronenberg, Aki Kaurismäki og fleiri. Verðlaunin eru kennd við pólska leikstjórann Krzysztof Kieslowski sem líklega er þekktastur fyrir þríleikinn Hvítan, Rauðan og Bláan. Að þessu sinni kepptu tæplega hundrað myndir um verðlaunin að því er fram kemur í tilkynningu. 14.11.2011 13:44
Enn leitað að samlokuperra á Land Cruiser Lögreglan hefur ekki haft hendur í hári manns sem reyndi að tæla tólf ára dreng upp í Land Crusier-jeppa sem hann ók á í gær. Samkvæmt frásögn drengsins reyndi maðurinn að lokka hann upp í bílinn með því að bjóða honum samloku. 14.11.2011 13:14
Hannes hunsaður af gömlum kommúnistum "Ég bar þetta undir nokkra en fékk engin svör,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, en hann hefur skrifað bókina "Íslenskir kommúnistar 1918–1998“, en þar er talsvert fjallað um njósnir á Íslandi. Hannes bar nokkur atriði undir gamla kommúnista og þá sem við sögu koma í bókinni. 14.11.2011 13:00
Alkar kosta þjóðfélagið 50 - 80 milljarða króna á ári Alkahólismi kostar þjóðfélagið fimmtíu til áttatíu milljarða króna á ári samkvæmt meistarannsókn í heilsuhagfræði. Aðilar þurfi að hugsa um afleiðingarnar áður en frelsi er aukið í áfengissölu segir höfundur rannsóknarinnar. 14.11.2011 12:14
Útgjöld ríkisins hafa lítið sem ekkert hækkað í nítján ár Gjaldskrá sjúkratrygginga Íslands er alltof lág miðað við gjaldskrá tannlækna hér á landi. Útgjöld ríkisins til tannlækninga hafa einungis hækkað um tvö prósent á síðustu nítján árum samanborið við yfir hundrað og þrjátíu prósenta verðlagshækkun á sama tíma. 14.11.2011 12:04
Reyndi að tæla dreng upp í Landcruiser-jeppa Tólf ára drengur varð fyrir því í gær að maður reyndi að lokka hann upp í bíl í Grindavík. Lögreglunni var strax gert viðvart um atvikið og að hennar sögn bauð maðurinn drengnum samloku ef hann settist upp í bílinn. 14.11.2011 12:00
Segjast dafna betur og basla minna Miklu fleiri Íslendingar segjast nú dafna og miklu færri vera í basli en fyrir ári. Þetta kemur fram í könnun Capacent sem ætlað að varpa ljósi á líðan íslensku þjóðarinnar. 14.11.2011 11:30
Innkalla kjúklinga - grunur um salmonellusmit Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að frekari rannsókna sé þörf en þangað til þyki rétt að innkalla vöruna. 14.11.2011 11:27
TF Sif fann hátt í 40 flóttamenn - smyglarar handteknir Í eftirlitsflugi Sifjar, flugvélar Landhelgisgæslunnar aðfaranótt föstudags, fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins, greindist í eftirlitsbúnaði flugvélarinnar grunsamlegur bátur sem staðsettur var 16,6 sjómílur suðaustur af Otranto, í Pugliu á Ítalíu. 14.11.2011 11:15
Vill eftirlitsheimildir vegna barnaníðinga Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, segir knýjandi að Alþingi samþykki lög sem geri kleift að hafa eftirlit með þeim kynferðisbrotamönnum sem hættulegastir séu börnum. 14.11.2011 11:15
Níu dauðsföll vegna offitu á Íslandi Átta konur og einn karl hafa dáið úr offitu hér á landi síðan árið 2002, samkvæmt dánarmeinaskrá Landlæknis. Þrjár konur létust árið 2009 og er það mesti fjöldi sem skráður hefur verið. Ekki eru komnar tölur frá Landlækni fyrir árið 2010. 14.11.2011 10:45
Þarf að sitja inni og greiða fórnarlambinu tæpar fimm milljónir Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa slegið íþróttamanna fyrirvaralaust á Laugaveginum um síðustu áramót. Þá er árásarmanninum gert að greiða manninum á fimmtu milljón. 14.11.2011 10:23
Skilaði inn tilhæfulausri tjónstilkynningu Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag, fyrir skjalafals, fjársvik og fíkniefnalagabrot. Maðurinn, sem er fæddur 1984, var meðal annars dæmdur fyrir að hafa skilað til tryggingafélagsins Sjóvá-Almennar tryggingar falsaðri og tilhæfulausri tjónstilkynningu um árekstur bifreiða í eigu systur sinnar og annars karlmanns. Maðurinn játaði brot sín skýlaust. 14.11.2011 10:01
Börn Sævars Ciesielski afhenda ráðherra gögn Börn Sævar Ciesielski, sem var dæmdur fyrir að hafa orðið Guðmundi og Geirfinni að bana, ætla að afhenda Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, mikið magn málsskjala og gagna sem tengjast málinu, og voru í vörslu Sævars þegar hann lést. Þau munu afhenda ráðherranum skjölin klukkan eitt í dag 14.11.2011 09:26
Sex manns sluppu ótrúlega vel úr bílveltu Sex manns sluppu ótrúlega vel, að sögn lögreglu, þegar fólksbíll þeirra valt út af veginum í Biskupsbrekku í sunnanverðri Holtavörðuheiðinni á tólfta tímanum í gærkvöldi. 14.11.2011 07:41
Ferðamaður stal dollurum af flugfreyju Icelandair Bandarískur ferðamaður var handtekinn á Logan flugvelli í Boston í Bandaríkjunum í gær, sakaður um að hafa stolið 300 dollurum af íslenskri flugfreyju um borð í vél Icelandair, þegar vélin var á leið til Logan. 14.11.2011 07:28
Kannabisefni komu þrisvar við sögu Íslenskt kannabisefni kom við sögu í þremur verkefnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 14.11.2011 07:26
Tveir síbrotamenn teknir í innbroti Lögreglan handtók í nótt tvo síbrotamenn, sem höfðu brotist inn i vídeóleigu í Árbæjarhverfi í Reykjavík. 14.11.2011 07:23
Mæðgin sluppu nær ómeidd úr umferðarslysi Ung kona slapp lítið meidd og barn hennar á öðru ári, alveg ómeitt, þegar hún missti stjórn á bíl sínum á Drottningarbraut á Akureyri í gærkvöldi og bíllinn hafnaði á ljósastaur. 14.11.2011 07:21
Jólatréið frá Hamborg á leiðinni til landsins Hamborgarbúar senda jólatré til Reykjavíkur að venju um þessi jóla og er tréið nú á leiðinni til Íslands. Tréð fór í skip síðastliðinn mánudag og er væntanlegt til Reykjavikur með Goðafossi á morgun þriðjudag. 14.11.2011 07:20
Lyf í verslanir og frjálsari auglýsingar Hagsmunaaðilar á lyfjamarkaði vilja að heimilt verði að auglýsa lausasölulyf í sjónvarpi og sala á lyfjum verði leyfð í almennum verslunum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu Félags atvinnurekenda, Frumtaka og Samtaka verslunar og þjónustu, þar sem hinar ýmsu tillögur um breytingar á íslenska lyfjamarkaðnum eru lagðar fram. 14.11.2011 07:00
Stikuðu tugi kílómetra gönguleiða Tugir kílómetra gönguleiða voru stikaðir og merktir í Vonarskarði og nágrenni í sumar. „Það var mikið verk að ganga með stikurnar og setja þær niður en frábært að vera úti við og vinna þetta þarfa verk,“ segir Gunnar Njálsson, landvörður í Nýjadal á Sprengisandi, sem vann verkið ásamt Guðmundi Árnasyni landverði auk sjálfboðaliða frá Veraldarvinum og Ingimar Eydal landverði. 14.11.2011 06:00
Kirkjukórar hætta að syngja vegna þreytu „Þetta var orðin kvöð og við eiginlega gáfumst bara upp," segir Margrét Böðvarsdóttir, formaður kirkjukórs Hvalsnessóknar sem nú er hættur að syngja við guðsþjónustur í Sandgerði. 14.11.2011 06:00
Íslenskar vörur oft ódýrari í krónum talið Íslenskar landbúnaðarvörur eru oft ódýrari hér á landi en aðrar landbúnaðarvörur á Norðurlöndunum sé verðinu breytt í íslenskar krónur. Hafa ber í huga að tölurnar eru ekki kaupmáttarleiðréttar, en kaupmáttur hefur rýrnað hér á landi á síðustu árum á meðan hann hefur aukist á Norðurlöndunum. 14.11.2011 05:00
Endurskoðun fresti málinu Stjórn Akureyrarstofu furðar sig á ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um að senda forsendur fyrir framkvæmdum Vaðlaheiðarganga til Ríkisendurskoðunar. 14.11.2011 04:00
Ætla að máta óvissa framtíð Vinafélagið stendur að Vinaskákmótinu í dag í samvinnu við velunnara félagsins; Forlagið, Henson og Sögur útgáfu. Mótið er haldið í Vin, athvarfi Rauða krossins Hverfisgötu 47, en þar er mjög blómlegt skáklíf. Æfingar eru alla mánudaga og reglulega er slegið upp stórmótum. Skákfélag Vinjar teflir meðal annars fram tveimur sveitum á Íslandsmóti skákfélaga. 14.11.2011 04:00
Borgin skýri hömlur á tjáningarfrelsi Umboðsmaður Alþingis vill að Reykjavíkurborg svari því hvort leikskólastjórum hafi verið skipað að svara ekki spurningum Ríkisútvarpsins um laus pláss á leikskólum og hver hafi þá gefið þau fyrirmæli og á hvaða grundvelli. 14.11.2011 03:15
Verðhækkanir á kjötvörum ekki eðlilegar Verð á kjötvörum hefur hækkað langt umfram það sem eðlilegt má teljast að mati forstjóra Haga. Hann segir fákeppni og innflutningshöft á kjötmarkaði skaða almenning í landinu. 13.11.2011 19:30
Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa komið í veg fyrir ríkisábyrgð Jón Óttar Ragnarsson, stofnandi Stöðvar 2, fullyrðir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi með pólitískum vélabrögðum sölsað stöðina undir sig í lok árs 1989 þegar þeir misstu fyrirtækið. Flokkurinn hafi komið í veg fyrir að ríkisábyrgð fengist á lán til Stöðvarinnar. 13.11.2011 19:00
Lögreglan lýsir eftir Sævaldi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sævaldi Herði Harðarsyni, 31 ára. Talið er að hann sé klæddur í dökka yfirhöfn,bláar gallabuxur og sé í svörtum skóm. 13.11.2011 16:59
Nokkuð brattur eftir köfunarslys í Silfru Lögreglan á Selfossi fór ásamt sjúkraflutningarmönnum að Silfru á Þingvöllum eftir hádegi í dag. Kafari þurfti að skjóta sér upp á yfirborðið af 18 metra dýpi en svo virðist sem einhver bilun hafi komið í köfunarbúnað mannsins. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að maðurinn hafi verið nokkuð brattur eftir þessa reynslu en þegar farið er upp á yfirborðið af svona miklu dýpi er hætta á að menn slasist. 13.11.2011 13:57
Hanna Birna vill ekki í ríkisstjórn með Samfylkingunni vegna ESB Hanna Birna Kristjánsdóttir telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi ekki að mynda ríkisstjórn með Samfylkingu fyrr en samfylkingarmenn breyta um kúrs í evrópumálum. Hún telur vænlegast að halda í krónuna áfram. 13.11.2011 13:09
Dirty Night fór fram á Players þrátt fyrir kæru Kópavogsbæjar Hinn margumtalaði viðburður Dirty Night var haldinn á skemmtistaðnum Players í Kópavogi í gær þrátt fyrir kæru bæjarins. 13.11.2011 12:14
Ölvaður velti bíl í Þverholti Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og töluvert mikið af fólki í miðborg Reykjavíkur, enda fullt tungl, að sögn varðstjóra. 13.11.2011 09:39
Skjálftar í Mýrdalsjökli Um tíu grunnir jarðskjálftar í Mýrdalsjökli komu fram á mælum Veðurstofunnar á um fjörutíu mínútna kafla í kringum klukkan sex í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er skjálftahrina sem þessi ekki óalgeng en undanfarnavikur hafa skjálftar mælst á svæðinu. Enginn af skjálftunum í morgun var stærri en 3 á richter og segir vaktmaður á spádeild að enginn gosórói sé í eldsstöðinni. 13.11.2011 11:57
Ekki í belti og kastaðist út úr bílnum Ökumaður missti stjórn á bíl sínum við Kálfholt á Hellu rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi voru tveir í bílnum, kona og karl, og kastaðist annað þeirra út úr bílnum. Samkvæmt varðstjóra var sá sem kastaðist úr úr bílnum ekki í bílbelti en hann lenti í mýri. 13.11.2011 11:28
Tónleikum Costello í Hörpu frestað Fyrirhuguðum tónleikum Elvis Costello í Hörpu hefur verið frestað. Tónleikarnir áttu að fara fram mánudaginn 21. nóvember. 13.11.2011 09:52
Grunur um íkveikju Um þrjú leytið í nótt barst tilkynning um eld í nýbyggingu við Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur. Töluverður eldur var í klæðningu og stillösum þegar slökkvilið kom á vettvang og fóru dælubíll, körfubíll og sjúkrabíll á staðinn. Mikið tjón varð á húsinu en lögreglu grunar að um íkveikju sé að ræða. Málið er í rannsókn. 13.11.2011 09:41
Umfangsmesta leit síðari ára Sænski ferðamaðurinn sem leitað hafði verið á Sólheimajökli í tæpa tvo sólarhringa fannst látinn rétt fyrir hádegi í dag. Hann var ofan í jökulsprungu en ekki er hægt að fullyrða hvort hann féll ofan í sprunguna eða fór þar ofan í til að leita skjóls. 12.11.2011 20:00
Efnilegir kvikmyndagerðarmenn Hrekkjóttir legókallar og sönglandi nunnur fóru með aðalhlutverk í myndböndum ungra og upprennandi kvikmyndagerðarmanna sem voru verðlaunaðir fyrir verk sín við hátíðlega athöfn í dag. 12.11.2011 18:51
Eyði jólagjöf í heimabænum Jólagjöf starfsmanna Grindavíkurbæjar á þessu ári verður gjafabréf sem virkar sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Grindavík. Að því er segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar er stefnt að því að starfsmennirnir fái gjafabréfin í lok nóvember svo þeir geti nýtt þau fyrir jólin. „Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Grindavíkurbæjar gegn framvísun gjafabréfsins,“ segir á vef sveitarfélagsins- 12.11.2011 04:00
Aðeins 17 prósent yfir kostnaðaráætlun Kostnaður vegna Héðinsfjarðarganga reyndist 17,2 prósentum meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir, aðallega vegna vatnsaga. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, en þar er tekið fram að rangar tölur þar um hafi verið í gangi. Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis hafi til dæmis „ranglega verið haldið fram að umframkostnaður við þessi göng hlaupi á jafnvel 80 til 90 prósentum. Því fer fjarri," segir á vef Vegagerðarinnar. Þar segir jafnframt að misskilninginn megi rekja til þess að fólki hafi láðst að umreikna upphæðir með tilliti til verðlagsþróunar. - þj 12.11.2011 21:30
Norrænir slökkviliðsmenn funda í Reykjavík Stjórn samtaka norænna slökkviliðsmanna fundaði í dag vegna ráðstefnu sem haldin verður í Bergen í Noregi á næsta ári. Á ráðstefnunni koma saman um 120 slökkviliðsmenn frá höfuðborgum allra Norðurlandanna, ásamt Gautaborg og Bergen, en ráðstefnan er haldin einu sinni á ári. 12.11.2011 17:07