Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reykkafarar fóru inn í brennandi húsið Tveir reykkafarar fóru inn í einbýlishúsið á Marbakkabraut í Kópavogi. Tilgangurinn var að ganga úr skugga um að enginn væri í húsinu. Samkvæmt fréttamanni Vísis sem er á vettvangi reyndist húsið mannlaust. 14.10.2010 14:30
Eldsvoði í Kópavogi Talsverðan eld leggur frá húsi á Marbakkabraut í Kópavogi. Slökkviliðið er komið á vettvang. Eldurinn er í einbýlishúsi en samkvæmt fréttamanni fréttastofunnar eru nærliggjandi hús ekki í hættu. 14.10.2010 14:18
Kreppan hefur veruleg áhrif í framhaldsskólum Út eru komnar niðurstöður rannsókna á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara sem voru unnar af Guðrúnu Ragnarsdóttur lýðheilsufræðingi, framhaldsskólakennara og kennslustjóra í Borgarholtsskóla í samstarfi við Félag framhaldsskólakennara. 14.10.2010 14:04
Efast um að þyngja eigi refsingar í nauðgunarmálum Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs, hefur efasemdir um frumvarp þess efnis að lágmarksrefsing vegna nauðgana verði hækkuð úr eins árs fangelsi í tveggja ára fangelsi. Þetta kom fram í ræðu Álfheiðar eftir að flokkssystir hennar, Jórunn Einarsdóttir, mælti fyrir frumvarpinu í morgun. 14.10.2010 14:00
Álfheiður vill að ÁTVR heyri undir heilbrigðisráðherra Álfheiður Ingadóttir, þingkona VG, vill að Áfengis og tóbaksverslun ríkisins heyri í framtíðinni undir heilbrigðisráðuneytið en ekki fjármálaráðuneytið eins og nú er. Vísar hún til lýðheilsusjónarmiða í því sambandi. 14.10.2010 13:42
Ekkert bruðl í kveðjuveislu Evu Joly „Þetta var ekkert bruðl. Ég pantaði bara ódýrasta pakkann," segir Jón Þórisson sem skipulagði kveðjuveislu Evu Joly í Norræna húsinu sem haldin var í gær. Jón hefur starfað náið með Evu og verið tengiliður hennar hér á landi. 14.10.2010 13:25
Hætt að senda flóttamenn til Grikklands Dómsmála- og mannnéttindaráðherra hefur ákveðið að stöðva að svo stöddu endursendingar hælisleitenda til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar samkvæmt tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins. 14.10.2010 13:25
Sala á sígarettum dregst saman Sala á sígarettum hefur dregist saman um tæp 13% í magni á tímabilinu janúar - september í samanburði við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma hefur sala á neftóbaki aukist um 9,2% en í lok september höfðu selst tæplega 18,8 tonn af neftóbaki. 14.10.2010 13:11
Heitavatnslaust á Akranesi í kvöld Í dag, 14. október, verður unnið að viðgerð á aðveituæð Orkuveitu Reykjavíkur sem liggur frá Deildartungu niður á Akranes. 14.10.2010 11:49
Hnífurinn enn í rannsókn Bráðabirgðarniðurstöður lífsýna sýndu ekki fram á með óyggjandi hætti að blóðið, sem fannst á skó Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, hafi verið úr Hannesi Þór Helgasyni, sem Gunnar hefur játað að hafa myrt í ágúst síðastliðnum. 14.10.2010 11:23
Ósátt móðir segir einelti líðast í Vesturbæjarskóla Móðir tólf ára drengs með ódæmigerða einhverfu er afar ósátt við skólayfirvöld í Vesturbæjarskóla þar sem drengurinn var við nám. Hún segir að foreldrar í skólanum hafi beinlínis hvatt til eineltis gegn syni hennar án þess að yfirvöld skólans hafi skorist í leikinn. 14.10.2010 11:11
Voru á of löngum bátum Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt þrjá skipstjórnarmenn til sektar upp á 30 þúsund krónur hvern, fyrir brot á lögum um skipstjórnarréttindi. 14.10.2010 11:10
Mótmæla hugmyndum um gjald á nettengingar Undirskriftasíða hefur verið sett upp á Netinu þar sem hugmyndum STEFs, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar er mótmælt. Samtökin kynntu á dögunum hugmyndir um álagningargjöld á nettengingar landsmanna til þess að borga höfundaréttarhöfum fyrir tónlist sem er notuð ólöglega á Netinu. 14.10.2010 11:00
Svandís styður fjárlagafrumvarpið Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra styður fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 14.10.2010 10:59
Kirkjan beinir athyglinni að fátækt Næsta sunnudag er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Þjóðkirkjan tekur þátt í að vekja athygli á deginum og mun helga prédikanir sunnudagsins og fyrirbænir baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. 14.10.2010 10:05
Vill harðari refsingu fyrir nauðgun Gert er ráð fyrir að Jórunn Einarsdóttir varaþingmaður mæli í dag fyrir frumvarpi sínu um þyngri lágmarksrefsingu fyrir nauðgun. 14.10.2010 09:42
Ókeypis öndunarmæling í dag Alþjóðlegur dagur öndunarmælinga er í dag. Af því tilefni verður boðið upp á ókeypis öndunarmælingar milli klukkan þrjú og fimm húsakynnum SÍBS við Síðurmúla 6 í Reykjavík. Hjúkrunarfræðingar og læknar verða á staðnum og munu veita upplýsingar og ráðgjöf. 14.10.2010 09:31
Ekkert þokast í makrílviðræðum Tilraunir til þess að leysa makríldeiluna á milli Evrópusambandsins, Noregs, Íslands og Færeyja, hafa engan árangur borið eftir tveggja daga fundarhöld í London. Þetta kemur fram í breska ríkisútvarpinu í dag. 14.10.2010 08:51
Skúta til Reykjavíkur eftir að hafa siglt umhverfis Norðurpólinn Rússneska seglskútan "Pétur fyrsti" lagðist að Miðbakka Reykjavíkurhafnar í upphafi vikunnar eftir frækilega för umhverfis Norðurpólinn á mettíma. Pétur fyrsti var að koma frá Nanartalik á Grænlandi en ferðin lá í gegnum Norðvestur svæðið, norður af Kanada. 14.10.2010 08:36
Óku á staur í Hafnarfirði Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild Landsspítalans, eftir að ökumaðurinn missti stjórn á bíl sínum í hringtorgi í Vallahverfi í Hafnarfirði um klukkan ellefu í gærkvöldi. Bíllinn hafnaði á ljósastaur, sem brotnaði við höggið. Starfsmenn orkufyrirtækis voru kallaðir út til að aftengja staurinn. 14.10.2010 07:36
Japanir vilja að Xiaobo fái frelsi Japanir hafa nú tekið upp hanskann fyrir Liu Xiaobo, friðarverðlaunahafa Nóbels sem situr í kínversku fangelsi fyrir pólitískar skoðanir sínar. Forsætisráðherra Japan, Naoto Kan, sagði í gær að það væri "eftirsóknarvert" að Kínverjar létu Xiaobo lausan. 14.10.2010 07:30
Ölvaður unglingur rústaði strætóskýli Unglingspiltur var handtekinn upp úr klukkan fimm í morgun eftir að hafa brotið rúður í strætisvagnabiðskýlii við Suðurlandsbraut. Vitni sá til piltsins og lét lögrelgu vita, sem náði honum skammt frá skýlinu og færði á lögreglustöðina. 14.10.2010 07:28
Fólk kaupir miklu dýrari síma Söluandvirði seldra símtækja hjá Vodafone á Íslandi er 33 prósentum hærra fyrstu níu mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. 14.10.2010 06:30
Hundrað króna gjald á mánuði Einungis er greitt fyrir um fimm prósent þeirrar tónlistar sem notendur hlusta á og sækja á Netinu. Þetta segir Jakob Frímann Magnússon, varaformaður STEF. 14.10.2010 06:30
Sumarveiðin er 75 þúsund laxar Verndarsjóður villtra laxastofna, NASF, spáir að laxveiði á stöng á Íslandi í sumar hafi numið 75 þúsund fiskum. Spáin um heildarveiðina er byggð á lokatölum sem þegar liggja fyrir úr tilteknum ám. Samsvarandi spár fyrri ára hafa ekki skeikað um meira en eitt prósent. 14.10.2010 05:45
Líklegt að ástandið lagist í næstu viku Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur undanfarna daga fengið fyrirspurnir frá tveimur heildsölum um aukningu á innflutningskvóta á kjúkling. Ástæðan er skortur á innlendum kjúklingi á landinu sem hefur verið viðvarandi sökum skæðrar salmonellusýkingar sem herjaði á kjúklingabú í vor. 14.10.2010 05:30
Eitt af hverjum fimm heimilum yfirveðsett Miðað við álagningarskrá 2010 eru heildarskuldir heimila með veði í fasteignum 1.201 milljarður króna. 14.10.2010 05:00
Smíðaði hring handa Ono og eignaðist son „Ég setti Fimmvörðuhálshraun í hringinn til að hafa hluta af nýja Íslandi í honum,“ segir Sigurður Ingi Bjarnason, gullsmiður og skartgripahönnuður í Sign í Hafnarfirði, sem sérsmíðaði afmælisgjöf fyrir Sean Ono Lennon samkvæmt pöntun Yoko Ono um síðustu helgi. 14.10.2010 04:45
Bíða með leit fram á sumar Þyrla Landhelgisgæslunnar þurfti að hverfa frá við Hvannadalshnúk á dögunum þar sem litast var um eftir klifurlínu og öðrum hlutum sem gætu tengst þýskum fjallgöngumönnum sem hurfu á þessum slóðum árið 2007. Aðstæður voru erfiðar og ekkert skyggni, að sögn lögreglunnar í Höfn, og verður beðið með könnunarferðir fram á næsta sumar. 14.10.2010 04:00
Dýrara að nota íslenskan sand Búið er að koma upp strandblakvelli í Neskaupstað með innfluttum sandi frá Póllandi. Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, formaður blakdeildarinnar í Neskaupstað, segir að mun dýrara hafi verið að flytja sand frá Suðurlandi sökum þess að flutningurinn frá Póllandi var ókeypis. 14.10.2010 04:00
Skottur selja kynjagleraugu Stígamót og Skotturnar, samstarfsvettvangur íslensku kvennahreyfingarinnar, efna til mikils söfnunarátaks sem hefst í dag. Er átakið í kjölfar þess að loka þurfti þjónustumiðstöðvum Stígamóta utan höfuðborgarsvæðisins vegna niðurskurðar, en þjónusta á Egilsstöðum, 14.10.2010 03:45
Allir sammála um að leysa skuldavandann Allir voru sammála um að taka þurfi á skuldavanda heimilanna en mikið bar á milli um aðferðirnar á samráðsfundi um skuldavanda heimilanna í Þjóðmenningarhúsinu í gærkvöldi. Fundinn sátu stjórnendur fjármálafyrirtækja, hagsmunagæsluaðilar almennings og þingmenn allra flokka. 14.10.2010 03:15
Opnunartími vínveitingastaða verður styttur Meirihlutinn í borgarráði vill að opnunartími áfengisveitingastaða í miðborginni, þar sem heimilaður hefur verið lengri veitingatími áfengis um helgar, verði styttur um klukkustund í tveimur áföngum. Frá og með næstu áramótum verði opnunartíminn styttur um hálftíma, til klukkan fimm, og að sex mánuðum liðnum aftur um hálftíma, til klukkan hálffimm. 13.10.2010 17:59
Íslendingur vann 10 milljónir í Víkingalottóinu Íslendingur var með fimm rétta auk þess sem hann hafði bónustölu rétta í Víkingalottóinu í kvöld. Hann fær rúmar tíu milljónir króna í sinn hlut. Miðinn hans var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni. Dani og Norðmaður skiptu með sér fyrsta vinningi og fær hvor um sig rúmar 62 milljónir. 13.10.2010 20:01
Efast um að almenn niðurfærsla sé rétta leiðin Bankastjóri Landsbankans efast um almenn niðurfærsla skulda sé rétta leiðin til að taka á skuldavanda heimilanna. Íbúðalánasjóður fari rakleitt á hausinn og kostnaður lendi á skattgreiðendum. Það ræðst væntanlega í kvöld hvaða leið verður fyrir valinu. 13.10.2010 18:30
Sveppi í skýrslutöku hjá lögreglu Lögregla boðaði Sverri Þór Sverrisson, sem er betur þekktur sem Sveppi, til skýrslutöku í dag eftir að hann ók bifreið upp Bankastræti og Laugaveg gegn einstefnu. Hann ók auk þess ítrekað upp á gangstétt. 13.10.2010 17:03
Eva Joly: „Mál gegn sjömenningum á heima í New York“ Eva Joly, fráfarandi ráðgjafi sérstaks saksóknara vék að máli slitastjórnar Glitnis gegn fyrrverandi eigendum og stjórnendum bankans á blaðamannafundi um starfslok sín í dag. 13.10.2010 16:37
Klippt á borðann á Lyngdalsheiði Nýi vegurinn um Lyngdalsheiði verður formlega opnaður fyrir umferð við hátíðlega athöfn á föstudag með því að Ögmundur Jónasson samgönguráðherra ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra klippir á borða. Athöfnin fer fram austast á kaflanum, nálægt Laugarvatni, og hefst klukkan 15:30. 13.10.2010 16:36
Deilt um skrifstofustjóra borgarstjóra Borgarstjóri hefur farið þess á leit við skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra að hún taki að sér aukin verkefni og og verkstjórn fyrir hans hönd, tímabundið, meðan að unnið er að breytingum á stjórnkerfi borgarinnar. Segir í tilkynningu frá borginni að með þeim breytingum sem unnð sé að sé hugsunin að fækka stjórnendum sem heyra beint undir borgarstjóra. 13.10.2010 16:05
Tugir hafa boðið sig fram til stjórnlagaþings Frestur til að skila inn framboðum til stjórnalagaþings rennur út á hádegi á mánudag. Ekki fást nákvæmar upplýsingar um hversu margir hafa þegar boðið sig fram en framboðin skipta nokkrum tugum. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu er búist við á annað hundrað framboðum hið minnsta. 13.10.2010 15:17
Eva Joly: „Enginn getur ráðskast með embættið” Eva Joly, fráfarandi ráðgjafi sérstaks saksóknara, sagði við starfslok sín í dag að enginn gæti ráðskast með embætti sérstaks saksóknara. Starfslið sérstaks saksóknara sé sterkt og öflugt og það muni leiða til ákæra. 13.10.2010 15:01
Nýja Hvítárbrúin opnuð í næsta mánuði Starfsmenn verktakafyrirtæksins Jáverks, sem smíða nýju Hvítárbrúna við Bræðratungu, eru nú langt komnir með að rífa steypumótin af síðari áfanga brúarinnar, sem steyptur var 1. og 2. september. Á sama tíma vinna starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða að vegagerð að brúnni. 13.10.2010 14:15
Eva Joly er hætt Eva Joly er hætt störfum fyrir sérstakann saksóknara. Hún hefur gert starfslokasamning við embættið. 13.10.2010 13:46
Lagt til að rökstyðja verði uppsögn Þingmenn úr fjórum flokkum af fimm á Alþingi, hafa lagt fram tillögu til þingslályktunar, um að samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um uppsögn starfs verði fullgilt hér á landi. Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins er á tillögunni. 13.10.2010 13:12
Gekk berserksgang hjá umboðsmanni skuldara Ungur karlmaður gekk berserksgang á skrifstofu umboðsmanns skuldara nú rétt fyrir hádegið og braut bæði rúðu og skilrúm sem skilur að ráðgjafa embættisins. Karlmaðurinn átti fund með ráðgjafa en reiddist mjög í viðtalinu og kastaði tölvu ráðgjafans í gólfið. Á leið hans út skellti hann síðan hurðinni svo harkalega að rúða brotnaði. 13.10.2010 12:58