Innlent

Nýja Hvítárbrúin opnuð í næsta mánuði

Flúðir.
Flúðir.
Starfsmenn verktakafyrirtæksins Jáverks, sem smíða nýju Hvítárbrúna við Bræðratungu, eru nú langt komnir með að rífa steypumótin af síðari áfanga brúarinnar, sem steyptur var 1. og 2. september. Á sama tíma vinna starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða að vegagerð að brúnni.

Brúarsmíðin hófst vorið 2009 og var þá stefnt að því að brúin yrði opnuð umferð nú í haustbyrjun. Axel Davíðsson, verkefnastjóri Jáverks, gerir nú ráð fyrir að unnt verði að opna brúna fyrir almenna umferð í síðari hluta nóvembermánaðar. Ólokið sé að setja upp vegrið og annan öryggisbúnað. Þá hafi vegagerð tafist við Flúðir, meðal annars vegna skipulagsmála hjá sveitarfélaginu. Slitlag verður hins vegar ekki lagt á veginn fyrr en næsta sumar.

Með nýju brúnni styttast vegalengdir milli sveita í Árnessýslu. Þannig styttist leiðin milli Reykholts og Flúða um 26 kílómetra. Líklegt er að margir sumarhúsaeigendur bíði ekki síður spenntir en Árnesingar enda eru einhverjar fjölmennustu orlofsbyggðir landsins í stuttu ökufæri við nýju brúna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×