Lagt til að rökstyðja verði uppsögn 13. október 2010 13:12
Þingmenn úr fjórum flokkum af fimm á Alþingi, hafa lagt fram tillögu til þingslályktunar, um að samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um uppsögn starfs verði fullgilt hér á landi. Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins er á tillögunni. Samþykktin er þekkt undir heitinu samþykkt númer 158. Hún felur í sér að atvinnurekandi verði að rökstyðja uppsögn starfsmanns, sé óskað eftir því. Þá megi ekki segja starfsmanni upp nema fyrir því séu gildar ástæður; í sambandi við hæfni eða hegðun starfsmannsins, eða rekstrarlegum ástæðum hjá viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Þá eru líka tilgreind í samþykktinni ýmis atriði sem ekki teljist gild ákvæði uppsagnar; þar eru nefndir þættir eins og aðild eða þátttaka í stéttarfélagi, að gegna stöðu trúnaðarmanns, að bera fram kæru eða taka þátt í málsókn á hendur atvinnurekenda. Enn fremur er nefnt að þjóðerni, þungun, fjarvistir í fæðingarorlofi, fjölskylduábyrgð og stjórnmálaskoðanir teljist aldrei gild ástæða uppsagnar úr starfi. Fleira er nefnt, en fram kemur í greinargerð, að fullgilding samþykktarinnar myndi gerbreyta stöðu íslensks launafólks til hins betra. Samþykkt alþjóðavinnumálastofnunarinnar er frá 1982. En tillaga um að hún verði fullgilt hefur verið flutt að minnsta kosti fjórum sinnum á Alþingi. Þrjátíu og fimm ríki hafa fullgilt hana; þar á meðal Svíþjóð og Finnland; byggt er á svipuðum reglum í Noregi og Danmörku. Flutningsmenn segja ljóst að samtök atvinnurekenda hafi verið andvíg því að samþykktin yrði fullgilt og talið að hún dragi úr sveigjanleika í íslensku atvinnulífi. ASÍ og SA létu raunar bóka, við kjarasamninga 2008, sátt um fyrirkomulag uppsagna. Bókunin sé nátengd efni samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira