Hver er hann þessi Alexis Sanchez? 16. ágúst 2014 10:00 Miklar væntingar eru gerðar til Alexis Sanchez á þessu tímabili. Vísir/Getty
Annað sumarið í röð dustaði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, rykið af lítið notuðu veski sínu og fjárfesti í stórstjörnu fyrir fúlgu fjár. Í fyrra var það Þjóðverjinn Mesut Özil en nú var það Síle-maðurinn Alexis Sanchez sem var keyptur fyrir sex milljarða. Stuðningsmenn Arsenal og aðrir aðdáendur enska boltans fengu forsmekk af getu piltsins í leiknum gegn Manchester City um Samfélagsskjöldinn á sunnudaginn. Sanchez var gríðarlega ógnandi þær 45 mínútur sem hann spilaði og átti sinn þátt í öruggum sigri Arsenal. Ljóst er að þar er maður á ferð sem getur unnið leiki upp á eigin spýtur og fært Arsenal nær hinu endanlega takmarki, sem er að vinna deildina í fyrsta sinn síðan 2004. „Frammistaða Sanchez á undanförnum tímabilum hefur stöðugt verið í hæsta gæðaflokki og við hlökkum til að fá hann í liðið,“ sagði Wenger þegar tilkynnt var um kaupin á Síle-manninum. Og það er kannski ekki furða að Wenger sé glaður. Sanchez skoraði 19 mörk á síðasta tímabili fyrir Barcelona, flest í fjarveru Lionels Messi. Hann lék sér að enska landsliðinu á Wembley í nóvember á síðasta ári þegar hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri. Og þessi 25 ára leikmaður, sem á að baki leiki með Colo-Colo í Síle, Rive Plate í Argentínu og Udinese á Ítalíu þar sem hann sló fyrst í gegn, er ekki bara hæfileikaríkur með boltann. „Hann getur spilað allar þrjár sóknarstöðurnar á vellinum, er gríðarlega duglegur í vörn, beinskeyttur og vandaður drengur,“ sagði Pep Guardiola, sem keypti hann til Barcelona árið 2011. Af þessu má sjá að Arsenal hefur fengið toppleikmann, ekki bara í sóknina heldur líka í vörnina.Alexis Sanchez......er 25 ára gamall...er frá Chile...er 1,69 metrar á hæð...skoraði 19 mörk á síðasta tímabili fyrir Barcelona....hefur spilað 71 landsleik fyrir Chile og skorað 24 mörk...hefur verið keyptur fyrir samtals 12 milljarða á ferlinumTólf síðna sérblað um ensku úrvalsdeildina fylgir helgarblaði Fréttablaðsins á morgun. Í blaðinu er meðal annars rætt við Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Swansea, Grétar Rafn Steinsson fjallar um fyrrverandi læriföður sinn, Louis van Gaal, og fjallað er um sóknarlínu Liverpool eftir brotthvarf Luis Suárez svo fátt eitt sé nefnt. Ekki missa af því. Stöð 2 Sport 2 sýnir 380 beinar útsendingar frá Enska boltanum á komandi tímabili. Net og heimasími fylgir með Enska pakkanum. Fáðu þér áskrift á 365.is.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi snýr aftur með Swansea á stóra sviðinu Gylfi Þór Sigurðsson verður í sviðsljósinu í hádeginu þegar Swansea heimsækir Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar. Fyrir áratug átti íslenskur knattspyrnumaður sviðið í fyrstu umferð á móti United. 16. ágúst 2014 08:30 Sturridge stígur úr skugga Suárez Raheem Sterling, Philippe Coutinho og Daniel Sturridge verða í stóru hlutverki í sóknarleik Liverpool á þessu tímabili í fjarveru Luis Suárez. 16. ágúst 2014 10:00 Leikmenn City miskunnarlausir á heimavelli Eins og lömb leidd til slátrunar er líklega orðatiltæki sem á við flesta andstæðinga Manchester City á heimavelli þeirra, Etihad-leikvanginum, í ensku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú ár. 15. ágúst 2014 23:00 Lykilatriðið er að fá að spila Gylfi Þór Sigurðsson verður eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Gylfi gekk til liðs við Swansea á ný í sumar eftir tvö ár hjá Tottenham en hann hafði fengið nóg af því að sitja á bekknum eða vera út á kanti. Gylfi verður í eldlínunni með Swansea í hádegisleiknum gegn Manchester United. 16. ágúst 2014 08:00 Ramsey bjargvættur Arsenal Ramsey skoraði sigurmark Arsenal í uppbótartíma. 16. ágúst 2014 16:00 Costa verður að haldast heill í vetur Guðmundur Benediktsson hefur trú á því að lærisveinar Mourinho standi uppi sem sigurvegarar í vor þegar ensku úrvalsdeildinni lýkur. 15. ágúst 2014 22:15 Draumalið Ólafs Kristjánssonar í enska boltanum í vetur Ólafur Kristjánsson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Nordsjælland valdi draumalið sitt í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili. 16. ágúst 2014 06:00 Hvor er betri: Cech eða Courtois? Ljóst er að Tékkinn Petr Cech fær mikla samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Chelsea á komandi tímabili frá Belganum unga Thibaut Courtois. Fréttablaðið fékk að vita skoðun landsliðsmarkvarins Gunnleifs Gunnleifssonar á því hver eigi að vera í marki Chelsea á leiktíðinni. 16. ágúst 2014 07:00 Komið að því að Arsenal taki titilinn Stuðningsmenn Arsenal krefjast þess að Arsenal berjist um titilinn í ár og telur Hjörvar Hafliðason að loksins takist liðinu að landa Englandsmeistaratitlinum. 15. ágúst 2014 18:30 Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Handbolti Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Handbolti Thun - Víkingur | Vængbrotnir Víkingar mæta spútnikliði Sviss Fótbolti Vantraust UEFA á Infantino stendur sem og sniðganga Fótbolti Fótboltamaður varð fyrir eldingu Fótbolti Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Íslenski boltinn Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn FIFA skuldar keppnisborgum á HM mörg hundruð milljónir Fótbolti Leikmannasamtökin segja um djúpstæða misbeitingu á valdi forsetans að ræða Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Sjá meira
Gylfi snýr aftur með Swansea á stóra sviðinu Gylfi Þór Sigurðsson verður í sviðsljósinu í hádeginu þegar Swansea heimsækir Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar. Fyrir áratug átti íslenskur knattspyrnumaður sviðið í fyrstu umferð á móti United. 16. ágúst 2014 08:30
Sturridge stígur úr skugga Suárez Raheem Sterling, Philippe Coutinho og Daniel Sturridge verða í stóru hlutverki í sóknarleik Liverpool á þessu tímabili í fjarveru Luis Suárez. 16. ágúst 2014 10:00
Leikmenn City miskunnarlausir á heimavelli Eins og lömb leidd til slátrunar er líklega orðatiltæki sem á við flesta andstæðinga Manchester City á heimavelli þeirra, Etihad-leikvanginum, í ensku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú ár. 15. ágúst 2014 23:00
Lykilatriðið er að fá að spila Gylfi Þór Sigurðsson verður eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Gylfi gekk til liðs við Swansea á ný í sumar eftir tvö ár hjá Tottenham en hann hafði fengið nóg af því að sitja á bekknum eða vera út á kanti. Gylfi verður í eldlínunni með Swansea í hádegisleiknum gegn Manchester United. 16. ágúst 2014 08:00
Costa verður að haldast heill í vetur Guðmundur Benediktsson hefur trú á því að lærisveinar Mourinho standi uppi sem sigurvegarar í vor þegar ensku úrvalsdeildinni lýkur. 15. ágúst 2014 22:15
Draumalið Ólafs Kristjánssonar í enska boltanum í vetur Ólafur Kristjánsson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Nordsjælland valdi draumalið sitt í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili. 16. ágúst 2014 06:00
Hvor er betri: Cech eða Courtois? Ljóst er að Tékkinn Petr Cech fær mikla samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Chelsea á komandi tímabili frá Belganum unga Thibaut Courtois. Fréttablaðið fékk að vita skoðun landsliðsmarkvarins Gunnleifs Gunnleifssonar á því hver eigi að vera í marki Chelsea á leiktíðinni. 16. ágúst 2014 07:00
Komið að því að Arsenal taki titilinn Stuðningsmenn Arsenal krefjast þess að Arsenal berjist um titilinn í ár og telur Hjörvar Hafliðason að loksins takist liðinu að landa Englandsmeistaratitlinum. 15. ágúst 2014 18:30