Enski boltinn

Ramsey bjargvættur Arsenal

Leikmenn Arsenal fagna marki Ramsey.
Leikmenn Arsenal fagna marki Ramsey. Vísir/Getty
Aaron Ramsey skoraði sigurmark Arsenal gegn Crystal Palace, en sigurmarkið kom ekki fyrr en í uppbótartíma.

Brede Hangeland kom Crystal Palace yfir með skalla eftir 35. mínútna leik, en Laurent Koscielny jafnaði metin rétt fyrir leikhlé.

Jason Puncheon fékk sitt annað gula spjald hjá Crystal Palace rétt fyrir leikslok. Aaron Ramsey tryggði svo Arsenal sigur eftir mikinn darraðadans í teig Palace.

Dýrmætur sigur Arsenal staðreynd sem hafa oft spilað betur en í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×