Enski boltinn

Lampard: Við létum ekki reka Villas-Boas

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sögusagnir voru um að leikmenn Chelsea hefðu snúist gegn Villas-Boas.
Sögusagnir voru um að leikmenn Chelsea hefðu snúist gegn Villas-Boas. Vísir/Getty
Frank Lampard þvertekur fyrir það að leikmenn Chelsea hafi verið ábyrgir fyrir brottrekstri Andre Villas-Boas í mars 2012.

Portúgalski þjálfarinn var aðeins átta mánuði í starfi hjá Chelsea, en Roman Abramovich, eigandi félagsins, borgaði rúmlega 13 milljónir punda til að losa hann undan samningi hjá Porto sem hann gerði að þreföldum meisturum tímabilið 2010-11.

Talið var eldri og reyndari leikmenn Chelsea hafi grafið undan Villas-Boas, sem hafi gengið erfiðlega að öðlast virðingu þeirra, en Portúgalinn er á svipuðum aldri og margir þeirra.

„Aðferðir Villas-Boas virkuðu ekki. Ég veit ekki hvort hann var of ungur eða ekki tilbúinn í starfið strax,“ sagði Lampard í samtali við The Sun.

„Hvorki Villas-Boas, Luiz Felipe Scolari né nokkur annar þjálfari var rekinn vegna einhvers „leikmannavalds“. Það er kjaftæði.

„Ég viðurkenni það að við Villas-Boas vorum ekki mjög nánir, en ég þarf ekki að vera náinn þjálfaranum.

„Enginn af leikmönnunum myndi hlaupa upp til handa og fóta og krefjast þess að þjálfarinn yrði rekinn. Það er fáránlegt. Við erum fagmenn,“ sagði Lampard, sem var 13 ár í herbúðum Chelsea. 

Lampard var fyrirliði Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 2012.Vísir/Getty
Miðjumaðurinn lék 648 leiki fyrir Lundúnaliðið og skoraði 211 mörk, en hann varð þrívegis enskur meistari með liðinu, fjórum sinnum bikarmeistari, tvisvar deildarbikarmeistari, auk þess sem hann vann bæði Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina.

Lampard yfirgaf Chelsea í sumar og samdi við New York City FC, nýtt lið í bandarísku MLS-deildinni. Hann mun hins vegar spila með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni fyrir áramót.

Hann segist ekki vita hver tók þá ákvörðun að bjóða honum ekki nýjan samning hjá Chelsea.

„Ég ræddi við Jose Mourinho og bæði hann og félagið sjálft komu alltaf vel fram við mig. En ákvörðunin var tekin og ég veit ekki hver tók hana.“


Tengdar fréttir

Lampard gæti lagt skóna á hilluna eftir HM

Miðjumaðurinn Frank Lampard heldur á HM í Brasilíu alls óviss um hvar hann spilar fótbolta næsta vetur eða hvort hann spilar fótbolta yfir höfuð.

Lampard hættur með landsliðinu

Frank Lampard ákvað í dag að leggja landsliðsskónna á hilluna eftir að hafa leikið 106 leiki fyrir þjóð sína.

Lampard á leiðinni til Manchester City

Breski miðillinn Guardian greinir frá því í kvöld að Frank Lampard, fyrrum leikmaður Chelsea sé á leiðinni til Manchester City á lánssamning frá New York City.

Frank Lampard verður varafyrirliði Englands á HM

Frank Lampard verður varafyrirliði Englands á HM í Brasilíu í sumar.Landsliðsþjálfarinn Roy Hodgson greindi frá þessu í viðtali sem birtist á heimasíðu enska knattspyrnusambandsins.

Rooney fór upp fyrir Lampard

Wayne Rooney skoraði tvö mörk fyrir Manchester United í 4-1 sigrinum á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag og hækkaði sig um leið á listanum yfir mesti markaskorara deildarinnar frá upphafi.

Lampard genginn til liðs við New York City FC

Frank Lampard gekk till liðs við New York City FC í dag en hann mun leika með Melbourne City FC næstu mánuði þangað til New York fær keppnisleyfi í MLS-deildinni á næsta ári.

Lampard staðfestir brottför

Frank Lampard, miðjumaður Chelsea og enska landsliðsins, staðfesti í dag að hann væri á förum frá Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×