Toure hefði unnið til verðlauna ef hann væri hvítur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júlí 2014 17:49 Umboðsmaður Yaya Toure segir hann ekki njóta sammælis vegna hörundslitar síns. Vísir/Getty
Dimitri Seluk, umboðsmaður Yaya Toure, miðjumanns Englandsmeistara Manchester City og landsliðs Fílabeinsstrandarinnar, segir í samtali við The Times að ef skjólstæðingur sinn væri ekki dökkur á hörund hefði hann unnið til einhverra af þeim stóru einstaklingsverðlauna sem hann hefur verið tilnefndur til að undanförnu. "Ef hann væri hvítur er ég handviss um að hann hefði unnið til þessara verðlauna," sagði Seluk. "Ég vil ekki tala of mikið um rasisma og pólitíkina í fótboltanum, en Toure fær ekki það lof sem hann á skilið," sagði umboðsmaðurinn. Toure varð þriðji í vali á leikmanni ársins á Englandi, bæði hjá Leikmannasamtökunum og samtökum blaðamanna. Þá varð miðjumaðurinn í 12. sæti í valinu á besta leikmanni heims 2013, en Seluk segir með ólíkindum að Toure hafi ekki verið á meðal þeirra efstu í því vali. Leikmaðurinn hefur sjálfur sagt að það sé erfitt fyrir Afríkumenn að öðlast þá viðurkenningu sem þeir eiga skilið, og því er Seluk sammála. "Lionel Messi er besti leikmaður sögunnar og ég ber mikla virðingu fyrir bæði Cristiano Ronaldo og Franck Ribery. Það gerir Yaya einnig. En afrískir leikmenn eiga erfitt með að vinna til þessara verðlauna. FIFA verður að gera einhverjar breytingar." Seluk segir ennfremur ekki geta ábyrgst að Toure verði enn í herbúðum Manchester City þegar leikmannaglugginn lokast um mánaðarmótin ágúst/september. "Þú veist aldrei hvað gerist í fótboltanum. Ég mun hitta Yaya í nokkra daga áður en hann fer með Manchester City í æfingagerð til Bandaríkjanna og þá munum við tala saman. "Við sjáum hvað gerist. Manchester City þyrfti að taka ákvörðun ef tilboð bærist frá félögum á borð við PSG eða Real Madrid," sagði umboðsmaðurinn, en fregnir sem hafa borist að undanförnu benda ekki til þess að hann sé alsæll í herbúðum Englandsmeistaranna. Toure var t.a.m. ósáttur með að enginn hjá félaginu skyldi hafa óskað honum til hamingju með 31. árs afmælið hans. Þá sagði Fílbeinsstrendingurinn að hann hefði ekki fengið leyfi frá City til að vera við dánarbeð bróður síns sem lést í síðasta mánuði eftir baráttu við krabbamein.
Enski boltinn Tengdar fréttir Umboðsmaður Toure staðfestir fýluna Umboðsmaður Yaya Toure segir framferði forráðamanna Manchester City ógeðfellt en þeir óskuðu kappanum ekki til hamingju með afmælið á dögunum. 20. maí 2014 13:00 Toure sagður í fýlu út af afmæliskveðjum Umboðsmaður Yaya Toure segir að skjólstæðingur sinn sé reiðubúinn að finna sér nýtt félag. 20. maí 2014 09:53 Toure: Framtíð mín hjá City í óvissu Yaya Toure er enn í fýlu út í eigendur City. 21. maí 2014 09:15 Toure segist ekki metinn að verðleikum Yaya Toure segir að hann sé ekki talinn einn besti knattspyrnumaður heims vegna þess að hann er afrískur. 19. apríl 2014 09:00 Toure dregur úr fyrri yfirlýsingum Framtíð Yaya Toure hjá Man. City hefur verið í óvissu síðan umboðsmaður hans gerði allt vitlaust með ummælum um að hann nyti ekki virðingar hjá félaginu. 30. maí 2014 08:30 Yaya vill fá loforð um framtíðarvinnu hjá Man. City Stuðið í kringum Yaya Toure, leikmann Man. City, heldur áfram en umboðsmaður hans hefur farið mikinn síðustu daga og framtíð hans hjá félaginu virðist vera í óvissu. 22. maí 2014 09:00 Toure: Takk fyrir afmæliskveðjurnar Yaya Toure tjáir sig um stóra afmæliskveðjumálið. 20. maí 2014 13:20 Yaya óánægður með viðbrögð City Yaya Toure er óánægður að Manchester City skuli hafa skipað honum að ferðast með félaginu þegar hann óskaði þess að vera við dánarbeð bróður síns sem lést á dögunum. 24. júní 2014 13:00 Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Sport Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Fleiri fréttir Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sjá meira
Umboðsmaður Toure staðfestir fýluna Umboðsmaður Yaya Toure segir framferði forráðamanna Manchester City ógeðfellt en þeir óskuðu kappanum ekki til hamingju með afmælið á dögunum. 20. maí 2014 13:00
Toure sagður í fýlu út af afmæliskveðjum Umboðsmaður Yaya Toure segir að skjólstæðingur sinn sé reiðubúinn að finna sér nýtt félag. 20. maí 2014 09:53
Toure segist ekki metinn að verðleikum Yaya Toure segir að hann sé ekki talinn einn besti knattspyrnumaður heims vegna þess að hann er afrískur. 19. apríl 2014 09:00
Toure dregur úr fyrri yfirlýsingum Framtíð Yaya Toure hjá Man. City hefur verið í óvissu síðan umboðsmaður hans gerði allt vitlaust með ummælum um að hann nyti ekki virðingar hjá félaginu. 30. maí 2014 08:30
Yaya vill fá loforð um framtíðarvinnu hjá Man. City Stuðið í kringum Yaya Toure, leikmann Man. City, heldur áfram en umboðsmaður hans hefur farið mikinn síðustu daga og framtíð hans hjá félaginu virðist vera í óvissu. 22. maí 2014 09:00
Toure: Takk fyrir afmæliskveðjurnar Yaya Toure tjáir sig um stóra afmæliskveðjumálið. 20. maí 2014 13:20
Yaya óánægður með viðbrögð City Yaya Toure er óánægður að Manchester City skuli hafa skipað honum að ferðast með félaginu þegar hann óskaði þess að vera við dánarbeð bróður síns sem lést á dögunum. 24. júní 2014 13:00