Sport

Dag­skráin: Arsenal og Liverpool í Meistara­deildinni og NFL byrjar

Aron Guðmundsson skrifar
Kai Havertz hefur byrjað tímabilið vel með Arsenal. Hann mætir með liðinu í Meistaradeildinni í kvöld.
Kai Havertz hefur byrjað tímabilið vel með Arsenal. Hann mætir með liðinu í Meistaradeildinni í kvöld. Vísir/getty/Julian Finney

Það er nóg um að vera á sportrásum Sýn Sport í dag. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla heldur áfram að rúlla með frábærum leikjum og Lokasóknin hefur göngu sína þetta tímabilið fyrir NFL deildina.

Fyrstu leikir dagsins í Meistaradeildinni hefjast klukkan korter í fimm og í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay tekur Barcelona á móti Feyenoord. Á sama tíma mætast Stuttgart og norska liðið Víking í leik sem verður sýndur á Sýn Sport 2. 

Meistaradeildarmessan, þar sem að Gummi Ben og sérfræðingar hans, fylgast með öllu því helsta í leikjum kvöldsins hefst klukkan hálf sjö á Sýn Sport.

Leikir kvöldsins hefjast svo klukkan sjö og mæta ensku liðin Arsenal og Liverpool þar til leiks. 

Liverpool - Atletico Madrid (Sýn Sport 2)

Napoli - Arsenal (Sýn Sport Viaplay) 

Sporting Galatasaray (Sýn Sport 3)

Meistaradeildarmörkin taka síðan við að leikjunum loknum klukkan níu á Sýn Sport. 

Dagskrá kvöldsins verður síðan lokað með upphitunarþætti Lokasóknarinnar fyrir NFL tímabilið í Bandaríkjunum. Þátturinn hefst klukkan tíu og verður í beinni á Sýn Sport. 

Klukkan 00.20 hefst svo NFL-tímabilið í beinni. Liðin sem mættust í Super Bowl, Seattle Seahawks og New England Patriots, mætast í fyrsta leik tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×