Enski boltinn

Shearer: Barnalegt hjá Arsenal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Arsenal voru niðurlútir eftir að hafa fengið á sig tvö mörk með skömmu millibili gegn Swansea í gær.
Leikmenn Arsenal voru niðurlútir eftir að hafa fengið á sig tvö mörk með skömmu millibili gegn Swansea í gær. Vísir/Getty
Arsenal missti enn einu sinni niður forystu þegar liðið sótti Swansea heim í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Alexis Sánchez kom Arsenal yfir á 63. mínútu eftir sendingu frá Danny Welbeck en velska liðið tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla.

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrra markið með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og það var síðan varamaðurinn Bafétimbi Gomis sem skoraði sigurmark Swansea með skalla eftir fyrirgjöf Ekvadorans Jeffersons Montero. Lokatölur 2-1, Swansea í vil.

Arsenal hefur nú tapað níu stigum í eftir að hafa verið í forystu, mest allra í úrvalsdeildinni. Lundúnaliðið tapaði einnig niður þriggja marka forystu gegn Anderlecht í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn.

Alan Shearer og Martin Keown, sem voru sérfræðingar í Match of the Day í gær, voru ekki hrifnir af varnarleik Arsenal gegn Swansea.

Shearer gagnrýndi liðið sérstaklega fyrir að vera með átta leikmenn inni á vallarhelmingi Swansea rétt áður en Gylfi jafnaði metin.

„Arsenal lagði hart að sér til að ná forystunni. Tíu mínútum síðar voru sjö leikmenn þeirra inni á síðasta þriðjungi vallarins.

„Per Mertesacker ætti að öskra á a.m.k. tvo eða þrjá þeirra að koma til baka. Þetta var barnaleg nálgun,“ sagði Shearer, en svipað atvik átti sér stað í leiknum gegn Anderlecht þegar Arsenal var með fimm leikmenn á síðasta þriðjungi vallarins skömmu áður en Belgarnir jöfnuðu leikinn í 3-3.

Keown, sem spilaði lengi með Arsenal, baunaði einnig á Mertesacker sem bar fyrirliðabandið hjá Lundúnaliðinu í gær.

„Mertesecker er í liðinu til að skipa fyrir og skipuleggja liðið. Það er ótrúlegt að Arsenal skyldi kasta frá sér sigrinum eftir að hafa verið yfir, sérstaklega í ljósi þess sem gerðist á miðvikudaginn,“ sagði Keown.

Calum Chambers, hægri bakvörður Arsenal, átti mjög erfitt uppdráttar í gær en hann réði nákvæmlega ekkert við hinn fljóta og flinka Montero sem átti skínandi leik. Shearer sagði að Chambers hafa verið í vandræðum allan tímann.

„Mér finnst ótrúlegt að Chambers skyldi vera svona lengi inni á vellinum. Hann er ungur og er enn að læra, en hann átti í erfiðleikum frá fyrstu mínútu.

„Það er óskiljanlegt að hann skyldi ekki hafa verið tekinn af velli,“ sagði framherjinn fyrrverandi sem er markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Arsenal féll niður í 6. sæti með tapinu í gær. Liðið er nú með 17  stig, einu minna en West Ham og Swansea sem eru í næstu sætum fyrir ofan.

Mörkin í leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan.

Alex Sánchez 0-1 Gylfi Þór Sigurðsson 1-1 Bafétimbi Gomis 2-1

Tengdar fréttir

Gylfi: Sérstakt að skora í dag | Myndband

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea, skoraði stórglæsilegt jöfnunarmark beint úr aukaspyrnu gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hann var að vonum hæstánægður eftir leikinn.

Gylfi valinn í lið umferðarinnar hjá BBC

Gylfi Þór Sigurðsson var einn af aðalmönnunum á bak við sigur Swansea City á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og skoraði meðal annars stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-1 sigri.

Magnað jöfnunarmark Gylfa gegn Arsenal | Myndbönd

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar Swansea lagði Arsenal að velli í lokaleik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Með sigrinum komst Swansea upp fyrir Arsenal í 5. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×