Shearer: Barnalegt hjá Arsenal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. nóvember 2014 22:30 Leikmenn Arsenal voru niðurlútir eftir að hafa fengið á sig tvö mörk með skömmu millibili gegn Swansea í gær. Vísir/Getty
Arsenal missti enn einu sinni niður forystu þegar liðið sótti Swansea heim í ensku úrvalsdeildinni í gær. Alexis Sánchez kom Arsenal yfir á 63. mínútu eftir sendingu frá Danny Welbeck en velska liðið tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrra markið með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og það var síðan varamaðurinn Bafétimbi Gomis sem skoraði sigurmark Swansea með skalla eftir fyrirgjöf Ekvadorans Jeffersons Montero. Lokatölur 2-1, Swansea í vil. Arsenal hefur nú tapað níu stigum í eftir að hafa verið í forystu, mest allra í úrvalsdeildinni. Lundúnaliðið tapaði einnig niður þriggja marka forystu gegn Anderlecht í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Alan Shearer og Martin Keown, sem voru sérfræðingar í Match of the Day í gær, voru ekki hrifnir af varnarleik Arsenal gegn Swansea. Shearer gagnrýndi liðið sérstaklega fyrir að vera með átta leikmenn inni á vallarhelmingi Swansea rétt áður en Gylfi jafnaði metin. „Arsenal lagði hart að sér til að ná forystunni. Tíu mínútum síðar voru sjö leikmenn þeirra inni á síðasta þriðjungi vallarins. „Per Mertesacker ætti að öskra á a.m.k. tvo eða þrjá þeirra að koma til baka. Þetta var barnaleg nálgun,“ sagði Shearer, en svipað atvik átti sér stað í leiknum gegn Anderlecht þegar Arsenal var með fimm leikmenn á síðasta þriðjungi vallarins skömmu áður en Belgarnir jöfnuðu leikinn í 3-3. Keown, sem spilaði lengi með Arsenal, baunaði einnig á Mertesacker sem bar fyrirliðabandið hjá Lundúnaliðinu í gær. „Mertesecker er í liðinu til að skipa fyrir og skipuleggja liðið. Það er ótrúlegt að Arsenal skyldi kasta frá sér sigrinum eftir að hafa verið yfir, sérstaklega í ljósi þess sem gerðist á miðvikudaginn,“ sagði Keown. Calum Chambers, hægri bakvörður Arsenal, átti mjög erfitt uppdráttar í gær en hann réði nákvæmlega ekkert við hinn fljóta og flinka Montero sem átti skínandi leik. Shearer sagði að Chambers hafa verið í vandræðum allan tímann. „Mér finnst ótrúlegt að Chambers skyldi vera svona lengi inni á vellinum. Hann er ungur og er enn að læra, en hann átti í erfiðleikum frá fyrstu mínútu. „Það er óskiljanlegt að hann skyldi ekki hafa verið tekinn af velli,“ sagði framherjinn fyrrverandi sem er markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Arsenal féll niður í 6. sæti með tapinu í gær. Liðið er nú með 17 stig, einu minna en West Ham og Swansea sem eru í næstu sætum fyrir ofan.Mörkin í leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan.Alex Sánchez 0-1 Gylfi Þór Sigurðsson 1-1 Bafétimbi Gomis 2-1
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi hefur búið til sjö af tíu mörkum Swansea í sigurleikjum tímabilsins Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu í endurkomusigri Swansea á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann hefur komið að 60 prósent marka Swansea-liðsins á leiktíðinni. 10. nóvember 2014 07:00 Gylfi: Sérstakt að skora í dag | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea, skoraði stórglæsilegt jöfnunarmark beint úr aukaspyrnu gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hann var að vonum hæstánægður eftir leikinn. 9. nóvember 2014 18:39 Sjáið Gylfa skora stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu á móti Arsenal Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-1 sigri Swansea á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. 9. nóvember 2014 17:45 Gylfi valinn í lið umferðarinnar hjá BBC Gylfi Þór Sigurðsson var einn af aðalmönnunum á bak við sigur Swansea City á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og skoraði meðal annars stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-1 sigri. 9. nóvember 2014 21:48 Magnað jöfnunarmark Gylfa gegn Arsenal | Myndbönd Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar Swansea lagði Arsenal að velli í lokaleik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Með sigrinum komst Swansea upp fyrir Arsenal í 5. sæti deildarinnar. 9. nóvember 2014 00:01 Hörður Björgvin eini nýliðinn Litlar breytingar á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Belgíu og Tékklandi. 7. nóvember 2014 09:17 Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Gylfi hefur búið til sjö af tíu mörkum Swansea í sigurleikjum tímabilsins Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu í endurkomusigri Swansea á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann hefur komið að 60 prósent marka Swansea-liðsins á leiktíðinni. 10. nóvember 2014 07:00
Gylfi: Sérstakt að skora í dag | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea, skoraði stórglæsilegt jöfnunarmark beint úr aukaspyrnu gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hann var að vonum hæstánægður eftir leikinn. 9. nóvember 2014 18:39
Sjáið Gylfa skora stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu á móti Arsenal Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-1 sigri Swansea á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. 9. nóvember 2014 17:45
Gylfi valinn í lið umferðarinnar hjá BBC Gylfi Þór Sigurðsson var einn af aðalmönnunum á bak við sigur Swansea City á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og skoraði meðal annars stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-1 sigri. 9. nóvember 2014 21:48
Magnað jöfnunarmark Gylfa gegn Arsenal | Myndbönd Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar Swansea lagði Arsenal að velli í lokaleik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Með sigrinum komst Swansea upp fyrir Arsenal í 5. sæti deildarinnar. 9. nóvember 2014 00:01
Hörður Björgvin eini nýliðinn Litlar breytingar á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Belgíu og Tékklandi. 7. nóvember 2014 09:17