Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akur­eyri

Árni Gísli Magnússon skrifar
Leikmenn jafnt og stuðningsmenn Þórs fögnuðu sigrinum vel.
Leikmenn jafnt og stuðningsmenn Þórs fögnuðu sigrinum vel. Þór Akureyri

Þórsarar fögnuðu sætum sigri á grönnum sinum í KA þegar liðin mættust í KA heimilinu í þriðju umferð Olís deildar karla í kvöld. Lokatölur 31-35 en úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamínútu leiksins.

Þórsarar skoruðu fyrsta markið en síðan tóku KA menn heldur betur við sér og hlupu yfir Þórsara fyrstu sjö mínútur leiksins en þá var staðan orðin 5-1 og var Ágúst Elí strax kominn með allavega fimm varða bolta. Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, tók eðlilega leikhlé til að gera liði sínu hreinlega grein fyrir því að leikurinn væri byrjaður.

Leikhléið virtist heldur betur hafa virkað því Þórsarar söxuðu vel á forskotið og jöfnuðu leikinn í 9-9 eftir 18 mínútna leik og komust yfir, 10-11, stuttu síðar.

Liðin skiptust á forystunni út hálfleikinn og Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði síðasta markið rétt áður en hálfleiks flautið gall og staðan jöfn, 16-16, þegar leikmenn gengu til búningsherbergja.

Síðari hálfleikur var gríðarlega jafn en Þórsarar komust þremur mörkum yfir, 18-21, þegar sex mínútur voru liðnar af hálfleiknum en KA menn tóku þá við sér og átti Bruno Bernat góða innkomu í markið ásamt því að Nikola Radovanovic hrökk í gang í marki Þórs.

Þórsarar urðu fyrir mikill blóðtöku þegar daninn Bertram Simonsen í liði Þórs fékk að líta beint rautt spjald eftir brot á Degi Árna Heimissyni. Simonsen hafði verið lykilmaður í sóknarleik Þórs og skorað fjögur mörk.

Landi hans, William Skovager, steig þá upp og hélt sóknarleik Þórs vel uppi.

Leikurinn var gríðarlega spennandi allt til enda og var staðan 31-31 þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. Næstu mínútur féllu vel fyrir Þórsara en Oliver Christensen skoraði úr víti eftir að Arnór Ísak Haddson fékk tveggja mínútna brottvísun og kom Þór yfir. Því næst varði Nikola Radovanovic skot Dags Árna og upp fór Oliver og tvöfaldaði forystu Þórs þegar um tvær mínútur lifðu leiks. Þórsarar skoruðu svo síðustu þrjú mörk leiksins og unnu 31-35 sigur.

Gríðarlegur fögnuður braust út á meðal stuðningsmanna og leikmanna Þórs og ljóst að Akureyri er rauð og hvít um sinn.

Atvik leiksins

Fögnuðurinn þegar leikurinn kláraðist var rosalegur og alltaf sérstaklega skemmtilegt fyrir útiliðið að fagna sigri í húsi erkifjendanna.

Góður handbolti var spilaður á löngum köflum í leiknum og gaman fyrir Akureyringa að eiga tvö góð handboltalið.

Stjörnur og skúrkar

William Skovager steig heldur betur upp eftir að landi hans, Bertram Simonsen, fékk að líta rautt spjald i upphafi síðari hálfleiks og endaði markahæstur með sex mörk.

Mikkel Jensen átti líka góðan inkomu og skoraði fimm mörk ásamt Hákoni Inga Halldórssyni.

Þórður Tandri Ágústsson og Sigurður Ringsted voru báðir með fjögur stopp í vörinni og stóðu hana virkilega vel á köflum. Auk þess tekur Þórður Tandri rosalega mikið til sín á línunni og skoraði tvö mörk ásamt því að fiska nokkur víti.

Að þessu öllu sögðu var liðsheildin hjá Þór algjörlega til fyrirmyndar og skóp þennan sigur á endanum.

Arnór Ísak Haddsson var markahæstur KA manna með átta mörk og var í raun þeirra langbesti maður í dag. Það vantaði þessa áræðni í fleiri liðsfélaga hans.

Dagur Árni Heimisson og Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoruðu fimm mörk hvor.

Stemning og umgjörð

Umgjörðin hjá KA mönnum alveg til fyrirmyndar og enn einn bæjarslagurinn sem við fáum sem tekst frábærlega.

Stemningin eins og verður best á kosið, svakaleg læti í húsinu allan tímann.

Dómarar

Ansi erfiður leikur að dæma fyrir fram en Sigurður Hjörtur og Svavar Ólafur komust ágætlega frá sínu.

Rauða spjaldið á Bertram Simonsen er líklega rétt þar sem hann fer harkalega í skothöndina á Degi Árna.

Það voru margar langar sóknir í þessum leik og fyrir minn smekk hefði mátt flauta einfaldlega leikleysu fyrr, því þó svo kannski ein eða tvær sendinga væru eftir var ógnin í átt að markinu engin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira