Ungverjaland

Orban braut lög þegar hann úthýsti háskóla Soros
Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórn Viktors Orban í Ungverjalandi hefði brotið evrópsk lög þegar hún breytti reglum um æðri menntun í landinu sem leiddi til þess að alþjóðlegur háskóli sem milljarðamæringurinn George Soros stofnaði neyddist til þess að flytja nær alla starfsemi sína úr landi.

Gagnrýna Ungverja fyrir að loka landamærunum einhliða
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gagnrýnt ákvörðun ungverskra stjórnvalda um að loka landamærum sínum einhliða til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Skora á Íslendinga og utanríkisráðherra að fordæma ungversk stjórnvöld
Samtökin ‘78, Trans Ísland og Intersex Ísland skora á utanríkisráðherra Íslands að fordæma ný lög um kynskráningu í Ungverjalandi.

Ungverjar hætta að viðurkenna tilvist transfólks með nýjum lögum
Lög sem banna breytingu á kyni voru samþykkt með miklum meirihluta á ungverska þinginu í gær.

Orban kveðst hætta að stýra með tilskipunum síðar í mánuðinum
Forsætisráðherra Ungverjalands segist búast við að afsala sér þeim neyðarvöldum sem honum voru falin vegna kórónuveirunnar síðar í þessum mánuði.

Meðferð Ungverja á hælisleitendum talin ólögleg
Hælisleitendum sem hefur verið haldið á bráðabirgðasvæðum í Ungverjalandi gæti verið sleppt eftir að Evrópudómstóllinn dæmdi slíkt varðhald ólöglegt í dag. Skipaði dómstóllinn ríkisstjórn Viktors Orban að semja nýjar reglur um hælisleitendur.

Fundur ungverska ráðherrans muni ekki breyta afstöðu til mannréttinda
Szijjártó vísar með ásökunum sínum í bréf sem norrænu ráðherrarnir sendu framkvæmdastjóra Evrópuráðsins þann 6. maí. Í skeytinu lýsa ráðherrarnir yfir áhyggjum af þróun mála í Ungverjalandi og lögðu áherslu á að í neyðarástandi verði að forgangsraða grundvallargildum réttarríkisins.

Ungverjar kalla Þóri og hina norrænu sendiherrana á teppið
Utanríkisráðherra Ungverjalands hefur kallað sendiherra Íslands gagnvart Ungverjalandi og aðra sendiherra Norðurlandanna á teppið vegna bréfs sem utanríkisráðherrar Norðurlandanna sendu Evrópuráðinu í sameiningu þann 6. maí síðastliðinn.

Telja Ungverjaland ekki lengur lýðræðisríki
Ungverjaland, Svartfjallaland og Serbía eru ekki lengur lýðræðisríki. Þetta er mat bandarísku hugveitunnar Freedom House sem birti árlega skýrslu sína um stöðu lýðræðis í dag.

Taka lýðræðið úr sambandi í skjóli faraldursins
Eftirlit með símanotkun almennra borgara og þungir fangelsisdómar fyrir að hunsa útgöngubann er á meðal harðra aðgerða sem popúlískir þjóðarleiðtogar í Austur-Evrópuríkjum og víðar hafa gripið til vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Sumir þeirra eru sakaðir um að notfæra sér neyðarástandið til þess að sanka að sér völdum.

Orban fær ótímabunduð tilskipanavald
Ungverska þingið samþykkti að veita Viktori Orban, forsætisráðherra, leyfi til að stjórna landinu með tilskipunum ótímabundið vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Orban lofar því að beita valdinu sem honum var veitt „skynsamlega“.

Taugatrekkjandi þeysireið læknanema yfir lokuð landamæri lauk í sóttkví heima á Íslandi
Á fimmta tug íslenskra læknanema í Slóvakíu er líklega enn að ná sér niður eftir stressandi ferðalag yfir lokuð landamæri til að ná flugi heim til Íslands aðfaranótt þriðjudags

Réttarhöld í máli skipstjórans á Dóná hefjast
Úkraínski skipstjórinn stýrði skipi sem rakst á útsýnisbát með þeim afleiðingum að 28 fórust.

Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar 2022 fer fram í Búdapest
Búið er að samþykkja nokkra leikvelli fyrir komandi úrslitaleiki í keppnum á vegum UEFA.

Ungverjar draga sig úr Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Ungverjaland mun ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári en engin ástæða var gefin fyrir þeirri ákvörðun. Margir telja þó að ríkisstjórn landsins, sem er langt á hægri skalanum, finnist keppnin "of hýr.“

Sigursæll borgarstjóri Búdapest ætlar að mynda mótvægi við Viktor Orbán
Karacsony, sem tekur við embætti í dag, hefur heitið því að mynda mótvægi við ríkisstjórnina út á við og gagnvart Evrópusambandinu.

Pólitískur andstæðingur Orban nýr borgarstjóri Búdapest
Gergely Karacsony vann þar sigur á Istvan Tarlos, sem gegnt hefur embætti borgarstjóra frá árinu 2010 og sem naut stuðnings hægrimannsins og forsætisráðherrans Viktor Orban.

Heimsmeistarinn kom fyrstur í mark í Ungverjalandi eftir dramatík
Max Verstappen náði ekki að verja forystuna í ungverska kappakstrinum.

Phelps missti heimsmetið sem hann var búinn að eiga í átján ár
Afrek ungverska táningsins Kristof Milak á HM í sundi hefur vakið mikla athygli í sundheiminum. Hann rústaði heimsmeti sem flestir héldu að væri ekki í hættu.

Táningur rústaði tíu ára heimsmeti Michael Phelps
Ungverjinn Kristof Milak vann afrek dagsins á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Gwangju í Suður-Kóreu þegar hann setti nýtt heimsmet í 200 metra flugsundi.