Ástralía

Ástralía

Höfuðborg: Canberra. Mannfjöldi: 26,3 milljónir (2025). Flatarmál: 7.692.024 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu

Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Nicole er fyrir norðan

Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar.

Lífið
Fréttamynd

Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan

„Maður verður að treysta fólkinu í kringum sig, öðrum leikurum, og mér líkar sá hluti starfsins, að geta horft í augun á einhverjum og veist svo að þeim, á öruggan hátt,“ segir Ólafur Darri í nýlegu viðtali en hann fer með eitt aðalhlutverkið í spennuþáttunum The Tourist. Þættirnir eru framleiddir fyrir BBC og HBO Max en á móti honum leikur meðal annars írski leikarinn Jamie Dornan.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Baðst af­sökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um áströlsku poppstjörnuna Kylie Minogue í hlaðvarpsviðtali í síðustu viku. Albanese spilaði útgáfu af Ríða, drepa, giftast þar sem hann sagðist vilja giftast, deita og ríða Minogue.

Lífið
Fréttamynd

Stór hluti barna enn á sam­félags­miðlum hálfu ári eftir bannið

Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna. 

Erlent
Fréttamynd

Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðan­jarðar­byrgi í Ástralíu

Lögreglan í Ástralíu hefur lagt hald á 2,7 tonn af kókaíni. Um er að ræða mesta magn kókaíns sem hefur verið lagt hald á í Ástralíu. Í frétt BBC segir að það hafi fundist í neðanjarðarbyrgi í vestanverðri Sidney. Götuvirði efnanna er um 500 milljónir evra eða 72 milljarðar íslenskra króna.

Erlent
Fréttamynd

Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar á­rásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“

Kona var á sundi skammt frá landi á einni vinsælustu strönd Sydney í Ástralíu þegar gríðarstór hákarl réðst á hana en hún er nú í lífshættu. Íslendingur sem var á ströndinni þegar atvikið átti sér stað segist enn þá vera að meðtaka það, enda „eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd“. Hún segir mikla umræðu hafa skapast meðal íbúa svæðisins en ótrúlegt þyki að hákarlinn hafi komist svona nálægt landi án þess að til hans sæist.

Erlent
Fréttamynd

Óboðni sturtugesturinn sex­tán sentí­metra kóngu­ló

„Ég var komin með smá nóg af Íslandi og nýtt upphaf og ný ævintýri voru farin að kalla á mig. Ég hef alltaf elskað að ferðast og hugsaði: Af hverju ekki að flytja til lands sem er lengst í burtu og algjör andstæða við Ísland?“ segir hin tuttugu ára gamla Hrafney Reynaga sem er nú búsett í Sydney en hún flutti hinum megin á hnöttinn fyrir átta mánuðum síðan. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti.

Lífið
Fréttamynd

Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu

Fleiri ástralskar konur, sem gengu á árum áður til liðs við Íslamska ríkið, og börn þeirra hafa ferðast til Ástralíu. Um er að ræða sex konur og þrettán börn sem lentu í Sydney og í Melbourne í morgun. Þær hafa ekki verið ákærðar enn en lögreglan segir það til skoðunar. Þrjár af fjórum konum sem sneru aftur til Ástralíu fyrr í mánuðinum hafa verið ákærðar fyrir þrælahald og hryðjuverkastarfsemi og sitja nú í gæsluvarðhaldi.

Erlent
Fréttamynd

Tala við pabba sinn þvert á full­yrðingar slúðurmiðla

Tvær dætur kántrírokkarans Keith Urban og Hollywoodstjörnunnar Nicole Kidman þær Sunday Rose og Faith Margaret eiga í góðu sambandi við pabba sinn og tala reglulega við hann, þvert á fullyrðingar í slúðurmiðlum. Hjónin skildu að borði og sæng í fyrra og gekk hann að fullu í gegn í janúar.

Lífið
Fréttamynd

Lítið kjöt á beinum rándýrsins

Nýjasta mynd Baltasars Kormáks er Netflix-óbyggðatryllir sem inniheldur hressandi hasarsenur, skemmtilega ruglað illmenni og fallega náttúru. Ómerkileg söguhetja, næfurþunnur söguþráður, fyrirsjáanlega vendingar og endurtekningasamur eltingarleikur gerir að verkum að myndin skilur lítið eftir sig að áhorfi loknu.

Gagnrýni
Fréttamynd

Þrjár „brúðir ISIS“ á­kærðar fyrir hryðju­verk og þræla­hald

Þrjár konur sem dvalið hafa um árabil í búðum fyrir fjölskyldur erlendra vígamanna Íslamska ríkisins lentu í Ástralíu í dag. Ein verður ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og hinar tvær fyrir þrælahald. Konurnar eru hluti af stærri hópi kvenna frá Ástralíu sem ferðuðust á sínum tíma til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og börn þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu

Fjórar konur og níu börn þeirra, sem dvalið hafa í búðum fyrir fjölskyldur erlendra meðlima Íslamska ríkisins í um sjö ár, eru á leið til Ástralíu. Til stendur að handtaka einhverjar kvennanna þegar þær koma aftur til landsins en þaðan ferðuðust þær á árum áður til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og giftast vígamönnum hryðjuverkasamtakanna.

Erlent
Fréttamynd

Bestu kvik­myndir 21. aldarinnar

Fyrsti fjórðungur 21. aldarinnar er liðinn og af því tilefni ákváðu tveir íslenskir háskólaprófessorar að taka saman lista yfir 25 bestu kvikmyndir tímabilsins. Þeir leituðu til 149 íslenskra álitsgjafa og úr varð forvitnilegur listi með afgerandi sigurvegara og miklum kynjahalla.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Banda­menn taka fá­lega í aðstoðarkröfur Trumps

Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran.

Erlent
Fréttamynd

Galdra­karlinn í AUS

Íslendingur var lykilmaður í einstöku máli hinum megin á hnettinum þar sem það tókst að lækna hundinn Rosie af krabbameini með hjálp gervigreindar. Þetta kemur fram í ástralska spjallþættinum Today Show þar sem Páll Þórðarson mætti ásamt Paul Conyngham, tæknifrumkvöðli frá Ástralíu. Þar vörpuðu þeir ljósi á þróun bóluefnisins.

Innlent