Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Lovísa Arnardóttir skrifar 30. október 2026 07:18 Patterson myrti þrjá ættingja sína með því að eitra fyrir þeim. Vísir/EPA Þrír dómarar við áfrýjunardómstól Viktoríuríkis í Ástralíu vísuðu í dag frá áfrýjun Erin Patterson, ástralska sveppamorðingjans svokallaða, og þyngdu refsingu hennar með því að fjarlægja möguleikann á því að hún yrði einhvern tímann látin laus úr fangelsi.
Erin Patterson, 52 ára, var fundin sek í ágúst í fyrra um að hafa myrt þrjá ættingja sína og tilraun til manndráps með því að bera fram eitraða máltíð með sveppum árið 2023. Hún var dæmd í lífstíðarfangelsi, með 33 ára lágmarksafplánun áður en hún gæti sótt um reynslulausn. Dómarar hafa nú úrskurðað að hún losni aldrei úr fangelsi. Fjallað er um málið á vef BBC. Dauðahattasveppir. BC Center Dómarar sögðu brot hennar „einstaklega köld og úthugsuð“ og þau bæri að fordæma. „Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að um svo hrottafengna glæpi hafi verið að ræða að ekki sé við hæfi að ákveða lágmarksafplánun áður en hægt er að sækja um reynslulausn,“ sagði Stephen McLeish dómari fyrir hönd dómsins. Getur áfrýjað Patterson hefur nú 28 daga til að ákveða hvort hún leiti til Hæstaréttar Ástralíu og áfrýi þessari niðurstöðu áfrýjunardómstólsins. Það er hennar síðasta von í að fá dómi sínum hnekkt. Að loknum umfangsmiklum réttarhöldum á síðasta ári fann kviðdómur Patterson seka um að hafa myrt tengdaforeldra sína, Don og Gail Patterson, og Heather Wilkinson, móðursystur sína, með því að bera fram nautakjötsréttinn Beef Wellington. Í réttinum voru dauðahattarsveppir, sem eru baneitraðir. Patterson var einnig fundin sek um tilraun til manndráps á Ian Wilkinson, eiginmanni Heather og presti. Þeir borðuðu einnig eitraða máltíðina á heimili Patterson. Wilkinson lifði eitrunina af eftir að hafa dvalið vikum saman á sjúkrahúsi en glímir enn við heilsufarsvandamál. Patterson drap eiginkonu Ian Wilkinson, Heather, og reyndi að drepa hann. Vísir/EPA Simon Patterson, fyrrverandi eiginmaður Erin, átti að vera viðstaddur hádegisverðinn en afboðaði sig á síðustu stundu. Það gerði hann meðal annars vegna þess að hann taldi hana hafa ítrekað reynt að eitra fyrir sér. Patterson áfrýjaði dómnum skömmu eftir að hann féll og var í áfrýjun meðal annars vísað til hótelbókana sem hefðu haft „stórfelldar afleiðingar“ og grafið undan réttmæti réttarhaldanna en kviðdómendur höfðu gist á sama hóteli og saksóknarar, lykilvitni lögreglu og fjölmiðlafólk. Hótelbókun og áhugamál Lögmenn hennar héldu því einnig fram að ákveðin sönnunargögn sem lögð hefðu verið fyrir kviðdóminn hefðu verið óviðkomandi málinu og til þess fallin að hafa áhrif á afstöðu kviðdómenda. Þar á meðal voru gögn úr farsímasendum sem bentu til þess að Patterson hefði farið á svæði þar sem dauðahattarsveppi væri að finna, auk færslna á Facebook þar sem hún kvartaði undan tengdafjölskyldu sinni. Þá hefðu dómarar ranglega meinað verjendum að leggja fram önnur gögn sem hefðu sýnt fram á að sveppatínsla hefði lengi verið áhugamál Patterson, sem á tvö börn. Verjendur héldu því jafnframt fram að fimm daga yfirheyrsla ákæruvaldsins yfir Patterson hefði verið „ósanngjörn og þrúgandi“ og að ákæruvaldið hefði verið ósamkvæmt sjálfu sér í málflutningi sínum um hugsanlega ástæðu verknaðarins. Dómararnir höfnuðu þessu öllu þegar þeir tóku málið fyrir í dag.
Ástralía Sveppir Tengdar fréttir Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Simon Patterson, fyrrverandi eiginmaður morðingjans Erin Patterson, er sannfærður um að hún hafi að minnsta kosti þrisvar reynt að drepa hann með mat, áður en hún banaði foreldra hans og móðursystur með eitruðum sveppum. 8. ágúst 2025 10:15 Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Kviðdómur í Ástralíu hefur fundið Erin Patterson, 50 ára, seka um að hafa myrt þrjá ættingja og gert tilraun til að myrða þann fjórða, þegar hún gaf þeim beef wellington sem innihélt eitraða sveppi. 7. júlí 2025 07:40 Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Áströlsk kona sem er sökuð um að hafa myrt skyldmenni sín með baneitruðum sveppum viðurkenndi fyrir dómi að villtir sveppir kynnu að hafa verið í banvænni máltíð sem hún gaf þeim. Hún hefði bætt þurrkuðum sveppum út í réttinn vegna þess að hann hefði verið of bragðlaus. 4. júní 2025 10:56 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira
Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Simon Patterson, fyrrverandi eiginmaður morðingjans Erin Patterson, er sannfærður um að hún hafi að minnsta kosti þrisvar reynt að drepa hann með mat, áður en hún banaði foreldra hans og móðursystur með eitruðum sveppum. 8. ágúst 2025 10:15
Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Kviðdómur í Ástralíu hefur fundið Erin Patterson, 50 ára, seka um að hafa myrt þrjá ættingja og gert tilraun til að myrða þann fjórða, þegar hún gaf þeim beef wellington sem innihélt eitraða sveppi. 7. júlí 2025 07:40
Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Áströlsk kona sem er sökuð um að hafa myrt skyldmenni sín með baneitruðum sveppum viðurkenndi fyrir dómi að villtir sveppir kynnu að hafa verið í banvænni máltíð sem hún gaf þeim. Hún hefði bætt þurrkuðum sveppum út í réttinn vegna þess að hann hefði verið of bragðlaus. 4. júní 2025 10:56