Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2026 23:02 Steve Witkoff og Vladimír Pútín í Moskvu í síðasta mánuði. AP/Gavriil Grigorov, Sputnik Bandarískir erindrekar og embættismenn hafa lagt til að Evrópa hefji á nýjan leik að kaupa jarðgas frá Rússlandi. Gasið verði flutt gegnum úkraínskar leiðslur og keypt af bandarískum milliliðum til að komast hjá refsiaðgerðum Evrópuríkja. Ráðamenn í Evrópu hafa tekið illa í þessa hugmynd, sem þeir Steve Witkoff og Jared Kushner hafa verið að stinga upp á á undanförnum vikum.
Bandaríkjamenn hafa um nokkurt skeið gagnrýnt Evrópu harðlega á þeim grunni að nokkur ríki heimsálfunnar hættu ekki að kaupa jarðgas af Rússum eftir innrásina í Úkraínu 2022. Á fyrra kjörtímabili Trumps gagnrýndi hann Angelu Merkel, þáverandi kanslara, sérstaklega vegna Nord Stream 2 gasleiðslunnar og sagði að hún myndi gera Þýskaland að gísl Rússlands. Árið 2019 beitti hann refsiaðgerðum vegna gasleiðslunnar. Núna vilja ráðamenn í Bandaríkjunum græða á sölunni, samkvæmt heimildum blaðamanna Wall Street Journal. Ríki Evrópu hafa á undanförnum árum dregið verulega úr kaupum á jarðgasi frá Rússlandi síðan innrásin í Úkraínu hófst. Evrópa var á þessum tíma mjög háð Rússlandi þegar kemur að orku en gripið hefur verið til umfangsmikilla aðgerða til að breyta því. Um 42 til 45 prósent af orkueyðslu Evrópu fór til Rússlands en hún er nú komin í tólf prósent og stendur til að draga enn frekar úr þessum kaupum. Þau ríki sem hafa keypt hvað mest af olíuafurðum frá Rússlandi eru Ungverjaland og Slóvakía, sem hafa haft fáa aðra kosti. Önnur ríki sem höfðu áður gert langtímasamninga við Rússa fengu einnig undanþágur. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins á þessum kaupum að vera alfarið hætt fyrir lok næsta árs. Í frétt WSJ segir að leiðtogar stærstu ríkja Evrópu hafi lítinn áhuga á því að gera sig aftur háða olíu frá ríki sem þeir telja meðal helstu ógna sem steðja að ríkjum Evrópu um þessar mundir. Eiga í miklum viðskiptaviðræðum við Rússa Kushner er tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Witkoff er vinur hans. Þeir hafa farið víða um heim á undanförnum tveimur árum sem sérstakir erindrekar forsetans og hafa meðal annars haft það hlutverk að reyna að koma á friði í Úkraínu. Hingað til hefur það engum árangri skilað. Rússar hafa ekkert komið til móts við þá eða látið af kröfum sínum í garð Úkraínu á undanförnum tveimur árum. Á undanförnum mánuðum hafa fregnir borist af því að tvímenningarnir hafi breytt um stefnu. Þeir eru hættir að reyna að tæla Rússa til samninga með því að heita umfangsmiklum viðskiptasamningum eftir að friður næst og eru þess í stað að reyna að eiga í viðskiptum við Rússa, án þess að þeir þurfi fyrst að binda enda á stríðið. Með þessu vilja Trump-liðar sefa meintar áhyggjur Rússa af því að þeim sé ekki alvara með viðskiptasamningum. Sjá einnig: Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Einnig hafa borist fregnir af því að Bandaríkjamenn vilji veita Rússum aftur aðgang að eigum þeirra sem hafa verið frystar í Bandaríkjunum og í Evrópu. Þetta eiga þeir Kushner og Witkoff að hafa lagt til við ráðamenn í Evrópu en mestallar eignirnar sem um ræðir eru í evrópskum bönkum. Þetta er á sama tíma og Kushner og Witkoff eru að semja um kaup viðskiptafélaga þeirra í Mið-Austurlöndum um kaup á erlendum eignum rússneska orkufyrirtækisins Lukoil. Þar á meðal eru olíuvinnslur í Austur-Evrópu. Hættu að tala um gas þegar Úkraínumenn hættu árásum Eftir að Kushner og Witkoff fóru til Moskvu og Kænugarðs fóru þeir að leggja til áðurnefnd jarðgaskaup Evrópu. Var markmiðið samkvæmt WSJ að vinna að því að koma á svokölluðu orkuvopnahléi. Þegar hann var í Moskvu kallaði Witkoff Vladimír Pútín Rússlandsforseta mikinn mannvin. Það vakti víða hörð viðbrögð. Sjá einnig: „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Bandaríkjamenn hafa lagt nokkuð púður í að reyna að fá Úkraínumenn til að hætta árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Trump og fleiri hafa ranglega haldið því fram að þessar árásir hafi valdið miklum hækkunum á eldsneytismörkuðum en ekki stríð Bandaríkjanna gegn Íran. Árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi þykja vel heppnaðar en sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðið gegn Úkraínu. Vólódímír Sleneskí, forseti Úkraínu, hefur sagt að Úkraínumenn geti hætt þessum árásum en í staðinn þyrftu Rússar að hætta árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Það hafa Rússar ekki viljað gera. Eftir að Trump ákvað upp á sitt eindæmi að lýsa yfir orkuvopnahléi og laug því að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars, hættu Úkraínumenn árásum sínum í nokkra daga. Það gerðu Rússar ekki. Sjá einnig: „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Evrópskir bakhjarlar Úkraínu höfðu í kjölfarið hvatt Selenskí til að draga úr árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi, þar til eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Þrátt fyrir árásir Rússa hættu Úkraínumenn þessum árásum í hljóði um miðjan október og hættu Bandaríkjamenn þá að tala um kaup Evrópu á jarðgasi frá Rússlandi. Það breyttist svo aftur í síðustu viku þegar Úkraínumenn hófu aftur árásir á olíuvinnsluinnviði. Það gerðu þeir eftir að Rússar felldu fjölda óbreyttra borgara í eldflauga- og drónaárásum víðs vegar um Úkraínu. Tekjurnar færu á vörslureikning Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við blaðamenn í morgun að eins og staðan væri núna gætu Rússar ekki byrjað að selja jarðgas aftur til Evrópu. Það væri þó hægt ef allir yrðu sammála um viðskiptin. Eins og Bandaríkjamenn sjá þetta fyrir sér gæti Pútín samþykkt söluna í ljósi teknanna sem eru í boði og þá myndu Úkraínumenn einnig hagnast á sölunni, þar sem gasið yrði flutt með leiðslum sem liggja gegnum Úkraínu. Tekjurnar af sölunni ættu að fara á sérstakan vörslureikning í Evrópu, sem yrði stýrt af þriðja aðila. Þannig væri hægt að tryggja að Rússar notuðu tekjurnar ekki til að fjármagna stríðið í Úkraínu. Þá eru Bandaríkjamenn sagðir sjá fyrir sér að enduropnun Nord Stream 2 gasleiðslunnar sé mikilvægur liður í umfangsmiklum viðræðum við Rússa. Einn heimildarmaður WSJ sagði að Merkel hefði á sínum tíma gert þau mistök að semja ekki fyrst við Rússa um öryggismál og koma á öryggissamkomulagi sem Rússar væru sáttir við. Fyrir innrásina í Úkraínu í febrúar 2022 lagði Pútín fram þá kröfu að NATO hyrfi alfarið frá ríkjum Austur-Evrópu, eða öllum þeim ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir 1991.
Bandaríkin Donald Trump Rússland Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Evrópusambandið Úkraína Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira