Sádi-Arabía

Sádi-Arabía

Höfuðborg: Ríad. Mannfjöldi: 37,3 milljónir (2025). Flatarmál: 2.149.690 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Banda­ríkin og Sádi-Arabía undir­rita kjarnorkusaming

Bandaríkin og Sádi-Arabía hafa undirritað samning sín á milli um rekstur bandarískra fyrirtækja á kjarnorkuverum í Sádi-Arabíu. Ekkert í samningnum hindrar úranauðgun Sáda til að framleiða kjarnorku, að sögn bandarískra fjölmiðla.

Erlent
Fréttamynd

HM í fót­bolta: Sameiningaraflið sem sundrar

„Hér verða allir velkomnir árið 2026,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, við fjölmiðlamenn á síðasta ári um komandi heimsmeistaramót. Nú er ljóst að sú setning er eins röng og hún hljómaði vitleysisleg þegar hún var látin falla.

Fótbolti
Fréttamynd

Mesti fjöldi af­taka á heims­vísu í 44 ár

Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar.

Erlent
Fréttamynd

FIFA og Sádar í eina sæng

FIFA hefur gert styrktarsamning við fjárfestingarsjóð Sádi-Arabíu, PIF, sem verður stuðningsaðili komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. PIF bætist við sádíska olíufyrirtækið Aramco sem einn aðalstyrktaraðili mótsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Stór­mynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar

Eyðimerkurepíkin Desert Warrior átti að vera fyrsti liðurinn í menningarátaki Sádi-Arabíu og stórmynd sem gæti keppt við það besta í Hollywood en stefnir í að verða eitt stærsta flopp sögunnar. Framleiðsla myndarinnar kostaði 150 milljónir Bandaríkjadala en eftir fyrstu vikuna er aðeins hálf milljón komin í kassann.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Til­vistar­kreppa LIV-mótaraðarinnar heldur á­fram

Móti LIV-golfmótaraðarinnar í Lúisíana í Bandaríkjunum hefur verið frestað og óvíst er hvort af því verði. Talið er að sádiarabískir bakhjarlar mótaraðarinnar ætli að ætta að halda henni uppi á næstunni.

Golf
Fréttamynd

Al Hilal ekki lengur í eigu ríkis­sjóðsins

Ríkissjóður Sádi-Arabíu hefur selt fótboltafélagið Al Hilal til prinsins Alwaleed Bin Talal. Al Hilal hefur verið stórtækt á leikmannamarkaðnum en ríkissjóðurinn virðist vera að draga saman seglin. 

Fótbolti
Fréttamynd

LIV heldur sínu striki í miðjum stormi

Óvissa er uppi um framtíð LIV mótaraðarinnar í golfi. Sagt er að ríkissjóður Sádi-Arabíu muni draga úr eða jafnvel hætta öllum fjárframlögum en stjórnarmenn LIV blása á allar sögusagnir. Mótaröðin heldur áfram með móti í Mexíkó í dag.

Golf
Fréttamynd

Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag

Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu.

Erlent
Fréttamynd

Leyniklefi á­hafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla

Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um.

Innlent
Fréttamynd

Á­rásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp

Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“

Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki náð á 26 Ís­lendinga í Mið-Austurlöndum

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Innlent
Fréttamynd

Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna

Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu.

Innlent
Fréttamynd

Urðu vitni að því þegar maður var háls­höggvinn

Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina.

Innlent
Fréttamynd

Verk­falli Ronaldo lokið

Cristiano Ronaldo er mættur aftur til æfinga hjá Al-Nassr eftir að hafa ekki gefið kost á sér fyrir leik liðsins í Sádi-Arabíu í gær. 

Fótbolti
Fréttamynd

PGA-mótaröðin endur­heimtir helsta skúrkinn af LIV

Patrick Reed, siguvegari á Masters árið 2018, er hættur á LIV-mótaröðinni og fær að snúa aftur á PGA-mótaröðina seinna á þessu ári. Hann er annar þekkti kylfingurinn sem LIV missir á skömmum tíma en með honum endurheimtir PGA-mótaröðin eina umdeildustu stjörnu sína á síðari árum.

Sport
Fréttamynd

LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna

Engin af þeim þremur stjörnum LIV-mótaraðarinnar í golfi sem stendur tímabundið til boða að snúa aftur á PGA-mótaröðina ætla að taka boðinu. Brooks Koepka, margfaldur risamótsmeistari, fékk inngöngu á PGA-röðina á dögunum.

Golf
Fréttamynd

Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum

Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka snýr aftur á PGA-mótaröðina strax í lok þessa mánaðar eftir að hann samþykkti að gera yfirbót fyrir brotthvarf sitt til LIV-mótaraðarinnar. Undanþága sem er sérsniðin að stærstu stjörnum LIV stendur þeim tímabundið til boða.

Golf