LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. apríl 2026 09:02 Spánverjarnir Jon Rahm og Sergio Garcia þéna vel á LIV mótaröðinni. Angel Martinez/Getty Images Óvissa er uppi um framtíð LIV mótaraðarinnar í golfi. Sagt er að ríkissjóður Sádi-Arabíu muni draga úr eða jafnvel hætta öllum fjárframlögum en stjórnarmenn LIV blása á allar sögusagnir. Mótaröðin heldur áfram með móti í Mexíkó í dag.
Frá því að hin mjög svo umdeilda LIV mótaröð var sett á laggirnar árið 2021 hefur hún tapað rúmlega milljarði Bandaríkjadala. Aðeins tæpar þrjár milljónir dollara hafa fengist til baka með sölu á sjónvarpsréttindum en bilið hefur verið brúað af ríkissjóði Sádi-Arabíu. Áhugi almennings hefur verið undir væntingum og samningar hafa ekki náðst um samstarf við PGA mótaröðina, eins og hefur staðið til síðan árið 2023. LIV mótaröðin hefur svo nýlega þurft að horfa á eftir stórum nöfnum á borð Brooks Koepka og Patrick Reed snúa aftur til PGA. Financial Times, Wall Street Journal, The Athletic, Sky Sports og fleiri stórir erlendir miðlar greindu frá því í gær að stefnubreyting væri mögulega í vændum hjá ríkissjóði Sádi-Arabíu. Þar segir að ríkissjóðurinn íhugi nú að hætta alfarið að fjármagna LIV mótaröðina í golfi. Einnig veki athygli að í nýjustu fjárhagsáætlun ríkissjóðsins eru íþróttir ekki meðal áherslumála. Heimildir BBC herma að ríkissjóðurinn ætli að einbeita sér að öðrum, sjálfbærri verkefnum. „Þeir hafa fengið nýja styrktaraðila eins og Rolex og HSBC, en það er ekki nærri því nóg miðað við laun kylfinganna,“ sagði heimildarmaður BBC. Við það má bæta að íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er líka meðal nýjustu styrktaraðila. Laun kylfinganna eru hins vegar himinhá, eins og Jon Rahm veit manna best: Forstjóri LIV blés á sögusagnir um að LIV muni láta niður laupana og sagði mótaröðina ætla að halda sínu striki. „Ég vil hafa það alveg á kristaltæru, tímabilið hjá okkur heldur áfram af krafti og án truflana. Fjölmiðlaumhverfið er þannig að oft vakna vangaveltur en við lifum í raunveruleikanum og skilgreinum okkur út frá vinnunni sem við skilum af okkur úti á grasi. Við förum inn í hátind tímabilsins 2026 stærri, háværri og áhrifameiri en nokkru sinni fyrr,“ sagði forstjórinn Scott O‘Neil. Einn frægasti kylfingur LIV mótaraðarinnar, Spánverjinn Sergio Garcia, segir þessar sögusagnir stangast á við allt sem hann hefur heyrt. „Þetta er ekki það sem Yasir [Al-Rumayyan, framkvæmdastjóri ríkissjóðsins] sagði okkur í byrjun árs. Hann sagðist styðja okkur fullum fetum, að við værum með verkefni til næstu ára. Það eru alltaf einhverjar sögusagnir á sveimi en ég get ekki tjáð mig um annað en það sem mér er sagt.“
LIV-mótaröðin Golf Sádi-Arabía Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira