Fleiri fréttir

Winslet á tvífara í Reykjavík

"Það er alrangt að Kate Winslet hafi verið á næturklúbbi í Reykjavík um helgina. Hún hefur aldrei komið til Íslands og var í Los Angeles með fjölskyldu sinni á laugardaginn var," segir Sara Keene hjá fyrirtækinu Premier PR í London en fyrirtækið sér um öll almannatengsl fyrir Winslet.

Lokuðu þremur útvarpsstöðvum

Útsendingum þriggja útvarpsstöðva Íslenska útvarpsfélagsins var hætt nú rétt í þessu. Þetta eru Stjarnan 94,3 - Skonrokk  90,9 og X-ið 97,7. Um það bil tug starfsmanna var sagt upp. Ný talmálsstöð Íslenska útvarpsfélagsins mun að líkindum senda út á tíðni Stjörnunnar, FM 94,3.

Mugison er Vestfirðingur ársins

Lesendur bb.is völdu tónlistarmanninn Örn Elías Guðmundsson, sem betur er þekktur undir listamannsnafninu Mugison, Vestfirðing ársins 2004. Hann var áberandi í tónlistarlífinu á síðasta ári og gaf út plötuna Mugimama (Is This Monkeymusic?), sem er að margra mati besta plata ársins.

Þremur stöðvum lokað

Útsendingu þriggja útvarpsstöðva Íslenska útvarpsfélagsins, Skonrokks, X-sins og Stjörnunnar, var hætt klukkan níu í gærkvöldi. Þá mun talmál minnka á útvarpsstöðinni Létt FM.

Vildi barn á þessu ári

Leikarinn Brad Pitt gaf Jennifer Aniston, eiginkonu sinni til fjögurra ára, afarkosti um að þau myndu reyna að eignast barn á þessu ári.

Fimm tilnefningar til Ferdinand

Skoska hljómsveitin Franz Ferdinand, sem vann Mercury-verðlaunin á dögunum, hefur verið tilnefnd til fimm Brit-tónlistarverðlauna.

Viðbjóðurinn á toppnum

Það var heilmikil gróska í myndasögum á nýliðnu ári. Það var einna mest að gerast í japönskum teiknimyndasögum, sem kenndar eru við manga, en vinsældir þeirra fara stöðugt vaxandi á Íslandi. Hugleikur Dagsson myndlistarmaður hefur tekið saman lista yfir fimm bestu myndasögur ársins 2004. Hann setur Filth eftir Grant Morrison í fyrsta sæti.

Ný plata frá Garbage

Hljómsveitin Garbage hefur sett útgáfudag nýrrar plötu sinnar á 11. apríl næstkomandi. Platan heitir Bleed Like Me og eru liðin fjögur ár frá því að síðasta plata hljómsveitarinnar kom út.

Ellen eftirsótt

Ástin getur reynst dýrkeypt, að minnsta kosti hjá leik- og sjónvarpskonunni Ellen DeGeneres en hún og nýja kærasta hennar, Portia De Rossi, eiga yfir höfði sér málaferli vegna reiði og afbrýðisemi fyrrverandi kærustu Ellenar.

Þetta er Grímur Gíslason á Blönduósi

Allir landsmenn kannast við fréttaritara Ríkisútvarpsins á Blönduósi. En það eru ekki allir sem vita að hann er kominn á tíræðisaldur. Reyndar er hann 93 ára í dag.

Aniston vildi ekki barn

Þrjár líklegar ástæður hafa verið gefnar fyrir sambandsslitum Hollywood-hjónanna Brad Pitt og Jennifer Aniston. Höfðu þau verið gift í fjögur og hálft ár þegar fjölmiðlafulltrúi Pitt tilkynnti á föstudag að hjónabandið væri á enda.

Enginn millivegur

Rokksveitin Foo Fighters er hæstánægð með nýju tvöföldu plötuna sína. Önnur hliðin er stútfull af rokkslögurum en hin hefur að geyma róleg órafmögnuð lög.

Fæ ekki lengur að leika prinsa

Séra Hannes Örn Blandon, prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi er afmælisbarn dagsins. Hannes er 56 ára í dag. Hann segist hafa verið linur við skáldsögurnar þessi jól, enda jólin annasamur tími hjá kirkjunnar þjónum.

Stafkirkjan við Strandgötu

Í húsinu eru reknir tveir veitingastaðir, Fjörugarðurinn þar sem hinar frægu víkingaveislur eru haldnar og svo Fjaran sem er rólegur og hefðbundnari veitingastaður. Álman sem hýsir Fjöruna var byggð árið 1841 og er því næstelsta húsið í Hafnarfirði.

Margmenni á skíðasvæðum um helgina

Landsmenn flykktust á skíðasvæðin um helgina þar sem fínasta veður var og gott færi. Á laugardaginn voru það Bláfjöll sem drógu fjöldann til sín því lokað var í Skálafelli vegna hvassviðris. Á sunnudeginum snerist dæmið við þar sem mikill vindur var í Bláfjöllum og stólalyftur lokaðar fyrripart dagsins.

Skínandi skíðatímabil framundan

Útlit er fyrir að gott skíðatímabil sé í uppsiglingu. Snjór er með mesta móti á skíðasvæðunum og sala á skíðum og snjóbrettum hefur verið með ágætum, enda ekki vanþörf á eftir mörg mögur ár.

Heilmikið húllumhæ hjá Tedda

Magnús Theodór Magnússon sem flestir þekkja sem Tedda er sjötugur í dag. Tímamótin hringdu í Tedda og spurðu hvort þetta væri virkilega satt. "Já, ég get ekki þrætt fyrir þetta. En ég er við góða heilsu. Í góðu líkamlegu formi, æfi tvisvar í viku. Þetta er bara svona þegar maður er laus við óregluna."

Til hamingju með daginn Elvis

Konungur rokksins hefði orðið sjötugur í dag væri hann enn á lífi. Borghildur Gunnarsdóttir rakti sögu þessa frábæra tónlistarmanns og ræddi við Björgvin Halldórsson um goðið.

Hrapandi plötusala Kristjáns

Fyrsta plata óperusöngvarans Kristján Jóhannssonar í sex ár, Portami Via, seldist í aðeins 2.300 eintökum hjá útgefanda fyrir þessi jól. Síðasta plata Kristjáns hér á landi, Helg eru jól, seldist í um 8.000 eintökum fyrir jólin 1998. Lætin í kringum Kristján fyrir jólin eru talin hafa haft sitt að segja varðandi þessa dræmu sölu.

Draumurinn úti hjá Pitt og Aniston

Hollywood-stjörnurnar Brad Pitt og Jennifer Aniston ætla að skilja. Þau hafa verið gift í fjögur og hálft ár en um hríð hafa gengið sögur af brestum í hjónabandinu. Um áramótin greindu bandarískir fjölmiðlar frá því að Aniston gengi ekki lengur með giftingarhringinn sem jók enn á sögusagnirnar.

Hárið á Netinu

Netfyrirtækið Hive hefur ákveðið að bjóða landsmönnum að horfa á sérstaka aukasýningu á Hárinu, sem er til stuðnings fórnarlömbum hamfaranna í Asíu, á Netinu. Uppselt er á sýninguna, sem er í kvöld klukkan 20, og ákvað fyrirtækið því að bjóða áhugasömum upp á að horfa á hana á Netinu á heimasíðu sinni, hive.is.

Segir landann geggjaðan um áramót

Kiefer Sutherland segir Íslendinga lífsglaða og gestrisna en snarbrjálaða þegar flugeldar eru annars vegar. Leikarinn var gestur í þætti Davids Lettermans á Sýn gærkvöld.

Skáru trúlega úr mér skáldæðina

Á föstudagskvöldið frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur Híbyli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson. Leikritið er gert eftir vesturfarasögu Böðvars, "Híbýli vindanna". Böðvar á líka afmæli í dag. Hann er 66 ára.

Muwango er ekta amatör

Félagi íslenskra radíóamatöra hefur ákveðið að gefa tveimur munaðarlausum drengjum frá Úganda, þeim Muwango og Peter, nýtt útvarp.

Gere hvetur fólk til að kjósa

Leikarinn góðkunni Richard Gere hefur verið fenginn til þess að lesa inn á auglýsingu þar sem Palestínumenn eru hvattir til þess að nýta kosningarétt sinn í forsetakosningum á sunnudaginn. Það er hópur friðelskandi manna í Palestínu sem stendur á bak við uppátækið og vonast til þess að hin blíða rödd Geres, sem biðlar til kjósenda á arabísku, verði til þess að auka þátttöku í kosningunum.

Snjóbrettatilþrif á Arnarhóli

Snjóbrettamótið RVK Stunt fest verður haldið í fyrsta sinn á Arnarhóli klukkan 20.00 í kvöld. Um jib-boðsmót er að ræða þar sem keppendur renna sér frjálst í klukkutíma og dæma síðan sjálfir hverjir stóðu sig best. Þeir þrír efstu fá auka hálftíma til að keppa um fyrstu þrjú sætin.

Fókus býður í bíó

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir með DV. Þessa vikuna býður blaðið lesendum sínum á hefndarmyndina Oldboy, sem hefur farið sigurför um heiminn. Vann m.a. verðlaun dómnefndar á Cannes. Hún fjallar um mann sem er rænt og hent í heimatilbúið fangelsi í fimmtán ár. Einn daginn er honum sleppt og upphefst þá klikkaður eltingaleikur við óvininn.

Hafdís Huld orðin pródúser

Fókus fylgir með DV í dag. Þar er m.a. að finna áramotamyndir og -sögur nokkurra partýljóna, brasilíska barþjóninn George Leite, sem er einn af framgöngumönnum sundknattleiks hér á landi, farið ítarlega í fyrirbærið mp3-blogg og gefnir miðar á kvikmyndina Oldboy. Einnig er viðtal við Hafdísi Huld, sem er að gefa út plötu og orðin pródúser.

Brasilískur barþjónn í boltaleik

Forsíðu Fókus, sem fylgir DV í dag, prýðir brasilíski barþjónninn George Leite sem, ásamt félögum sínum og þjálfara, ætlar að koma sundknattleik aftur á legg á Íslandi. Íslendingar iðkuðu íþróttina eitt sinn, tóku m.a.s. þátt á ÓL í Berlín 1936. George vonar að fólk flykkist í laugarnar til að kasta boltanum og rífa sundskýlurnar af mótherjunum.

Útgáfutónleikar Ske

Hljómsveitin Ske er í afskaplega góðu skapi þessa dagana. Í kvöld býður hún landsmönnum ókeypis á tónleika í Grand Rokk þar sem leikin verða lög af plötunni Feelings Are Great, sem kom út núna fyrir jólin.

Há dú jú læk Æsland?

Heimildarmyndin "How do you like Iceland?" verður frumsýnd sunnudaginn 16. janúar í Sjónvarpinu. Eins og titillinn gefur til kynna er þarna á ferðinni mynd sem tekur á skoðunum útlendinga á Íslandi og íbúum þess.

Tveir hlutu hvatningarverðlaun

Tveir hlutu Hvatningarverðlaun fyrir rannsóknir á sviðum heilbrigðis- og lífeðlisfræða sem afhent voru í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, á miðvikudag.

Minningarsjóður stofnaður

Guðlaugur Bergmann framkvæmdastjóri lést hinn 27. desember 2004. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag klukkan 13.00. Fjölskylda hans hefur stofnað um hann Minningarsjóð og er markmið sjóðsins að styrkja verkefni í umhverfis- og samfélagsmálum, en þau áttu hug og hjarta Guðlaugs síðustu árin.

Milljónir horfðu á Örninn

Um 4,5 milljónir Þjóðverja horfðu á fyrsta þátt dönsk-íslensku spennuþáttaraðarinnar Örninn, eða Ørnen eins og hann heitir á frummálinu, á mánudaginn var þegar hann var sýndur á þýsku sjónvarpsstöðinni ZDF. Elva Ósk Ólafsdóttir fer með eitt af aðalhlutverkum þáttarins en Benedikt Erlingssyni bregður þar einnig fyrir.

MH sýnir Martröð á jólanótt

Leikfélag Menntaskólans í Hamrahlíð frumsýndi skömmu fyrir áramót leikritið Martröð á jólanótt sem er byggt á brúðumyndinni The Nightmare Before Christmas eftir leikstjórann Tim Burton.

Sellóleikara Wilson saknað

Brian Wilson, fyrrum forsprakki The Beach Boys, er miður sín eftir að tilkynning barst um að Svíans Markus Sandlund, sem spilaði á selló á plötu hans Smile, væri saknað úr flóðunum í Asíu.

Er loksins að fullorðnast

"Ég er búin að hafa það mjög gott um jólin," segir Þórunn Erna Clausen leikkona sem hefur verið á ferðalagi á milli Akureyrar og Reykjavíkur öll jólin en hún leikur í söngleiknum Óliver sem Leikfélag Akureyrar sýnir þessa dagana. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Blautt og safaríkt nýtt ár

Elsku Ragga Mér finnst hálfhallærislegt að skrifa þér með þetta ákveðna vandamál því ég er komin langt yfir þrítugt, er sjálfstæð og ákveðin kona og ætti að geta unnið úr svona málum sjálf...

Eignaðist lítinn engil

"Mér finnst æðilegt að vera heima með henni og hún er algjör engill," segir handboltakonan Harpa Melsted sem eignaðist litla dóttur þann 5. júlí. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

S Rozhdestvom!

Jólahátíð Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi hefst í kvöld með messu í Friðrikskapellu klukkan 23.00. Stendur hún yfir fram yfir miðnætti, hugsanlega til 2.00.

Gettu Betur hefst á mánudag

Þrjátíu skólar um allt land munu á næstu dögum og mánuðum takast á í Gettu Betur spurningakeppni framhaldsskólanna.

Losar um orkuhnúta

Bergur Björnsson er titlaður reikimeistari. Ekki vita allir hvað það þýðir en Bergur hefur stundað þetta fag í nærri aldarfjórðung og haldið mörg námskeið í þessum fræðum. "Reiki er ekki beinlínis starf heldur lífsstíll. Þegar þú lærir reiki þá ertu tengdur við reikiorkuna og hún fer að hafa áhrif á þig."

Atomic Kitten stjarnan fæðir son

Fyrrum Atomic Kitten stjarnan Natasha Hamilton hefur eignast sitt annað barn. Söngkonan er yfir sig ánægð með son númer tvö sem hefur verið nefndur Harry.

Paris og Nicole í líkhúsi

Í næstu seríu af raunveruleikaþáttunum The Simple Life þar sem aðalstjörnurnar eru ljóskurnar Paris Hilton og Nicole Richie, munu þær meðal annars þurfa að vinna í líkhúsi.

Verkamaður í víngarði Drottins

Jón Oddgeir Guðmundsson rekur verslunina Litla húsið á Akureyri. Þar höndlar hann með Guðsorð í ýmsum myndum en allt hans líf snýst um Guð, trúna og kirkjuna.

Sjá næstu 50 fréttir