Skáru trúlega úr mér skáldæðina 8. janúar 2005 00:01
Á föstudagskvöldið frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur Híbyli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson. Leikritið er gert eftir vesturfarasögu Böðvars, "Híbýli vindanna". Böðvar á líka afmæli í dag. Hann er 66 ára. Af þessu hringdum við í skáldið þar sem hann býr í Danmörku. Við spurðum hann fyrst hvernig hugmyndin að Híbýlum vindanna hefði kviknað. "Hún kviknaði nú eiginlega hægt og hægt. Ég kenndi einu sinni á sumarnámskeiði í Victoria í Kanada. Þar er legat, myndað af gjöf Richards Beck til þess að styrkja sambandið við Ísland. Vinkona mín Kirsten Wolf, prófessor við Manitoba-háskóla, bauð mér að koma til sín og ég gerði það. Þar hitti ég gamla Vestur-Íslendinga, fólk af 3. og 4. kynslóð en sumt talaði ennþá íslensku og það gamla íslensku, sem ekki var lengur til á Íslandi. Nú svo kom það líka til að langafi minn fór á sínum tíma til Ameríku og frá honum eru til bréf til afa míns og svo frá afkomendum hans til pabba. Ég fór að lesa þessi bréf og þá má segja að hugmyndin hafi kviknað. Það er reyndar sérkennileg reynsla að lesa bréf til annarra, dálítið eins og að liggja á hleri. En það er skemmtilegt og ég stend í mikilli þakkarskuld við þessa bréfritara." Böðvar komst ekki til þess að vera viðstaddur frumsýninguna en kemur í næsta mánuði. Við spurðum hann hvað hann hefði fyrir stafni. "Ja, ég keppist nú við að ná heilsu. Safna mér saman. En svo er ég að sýsla við þetta sama. Annars er helsta áhyggja mín þessa dagana að fá útgefanda. Íslenskir útgefendur segja að ég skrifi ekki um rétt fólk. Svo er vitaskuld ekkert um morð eða samfarir í mínum bókum. Útgefendur trúa á morð og samfarir." Umsjónarmaður tímamóta minnist fyrstu ljóðabókar Böðvars, "Burtreið Alexanders" með mikilli aðdáun og telur að hún hafi ekki verið metin að verðleikum. Ertu að yrkja eitthvað Böðvar? "Æi, nei ég get ekki sagt það. Þeir tóku nú eitthvað af æðum úr löppunum á mér og notuðu annars staðar. Ætli ein þeirra hafi ekki verið skáldæðin." Lauk svo okkar tali. Lesendum til huggunar skal þess getið að æðarnar úr fótum Böðvars voru notaðar til viðgerða á hjartaæðum. Kannske ekkert verra að hafa skáldæðina þar!
Innlent Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira