Aniston vildi ekki barn 10. janúar 2005 00:01
Þrjár líklegar ástæður hafa verið gefnar fyrir sambandsslitum Hollywood-hjónanna Brad Pitt og Jennifer Aniston. Höfðu þau verið gift í fjögur og hálft ár þegar fjölmiðlafulltrúi Pitt tilkynnti á föstudag að hjónabandið væri á enda. Flestir telja að þau hafi hætt saman vegna þess að Aniston var ekki tilbúin að stofna fjölskyldu með Pitt. Hinn 41 árs gamli Pitt er sagður ólmur í að verða faðir á meðan Aniston, sem er 34 ára, vill frekar einbeita sér að kvikmyndaferlinum. Önnur kenning er sú að Pitt og mótleikkona hans í myndinni Mr. & Mrs. Smith, Angelina Jolie, hafi eytt miklum tíma í símanum og átt þar heitar stundir saman. Talað er um að Aniston hafi eitt sinn heyrt til þeirra og orðið ævareið í kjölfarið. Þriðja ástæðan sem hefur verið nefnd er sú að Pitt hefur mjög gaman af því að leika við Maddox, son Jolie. Í breska slúðurblaðinu Daily Star Sunday kemur fram að Aniston hafi orðið brjáluð þegar Pitt benti henni á að Angelina, sem er sex árum yngri, hefði ekki átt í neinum erfiðleikum með að ala upp soninn á sama tíma og hún sinnti gæfuríkum kvikmyndaferlinum. Í tilkynningu frá Pitt og Aniston kemur fram að þau séu ennþá góðir vinir. "Við viljum taka það fram að skilnaður okkar er ekki sprottinn út frá því sem hefur komið fram í fjölmiðlum. Mikil umhugsun lá að baki þessari ákvörðun."
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira