Lífið

Til hamingju með daginn Elvis

"Sumir stappa niður fætinum, aðrir smella fingrum og enn aðrir hreyfa sig til og frá. Ég býst við að ég geri þetta bara allt í einu." -Elvis Presley, 1956, um hreyfingar sínar á sviði. Fyrir sjötíu árum í dag, þann 8. janúar 1935, fæddi Gladys Presley tvíburasyni á heimili sínu í Tupelo Mississippi. Sá fyrsti fæddist andvana en hinn spriklandi og í fullu fjöri. Gladys og maður hennar Vernon Presley höfðu ekki hugmynd um að þarna væri kominn einn áhrifamesti tónlistarmaður heims þó langt væri leitað. Sonurinn var nefndur Elvis Aaron Presley. Fyrsti gítarinn Elvis ólst upp í mikilli fátækt. Tónlistin var stór hluti af uppeldi hans og þá sérstaklega kirkjutónlist. Auk hennar ólst hann upp við blús svartra götuspilara sem höfðu mikil áhrif á hann. Hann var aðeins 12 ára þegar honum áskotnaðist sinn fyrsti gítar. Hann hafði þó óskað sér reiðhjóls en foreldrar hans höfðu ekki efni á slíkum lúxus. Fjölskyldan flutti til Memphis og unglingurinn Elvis varð fljótt þekktur fyrir söng sinn og gítarspil. Að sumri til, aðeins átján ára, læddist hann feiminn inn í stúdíó í Memphis, heimili Sun-plötufyrirtækisins og tók upp prufu af lögunum "My Happiness" og "That´s When Your Heartaches Begin." Plötuna gaf hann móður sinni í afmælisgjöf. Starfsmaður stúdíósins veitti þessum unga hæfileikamanni athygli og stakk upp á því við yfirmann sinn, Sam Phillips, að fá hann til þess að taka upp fleiri lög. Heitasta stjarnan Fyrsta lagið sem Elvis tók upp var lagið "That´s All Right" eftir Arthur Crudup. Árið 1955 tók Colonel Tom Parker að sér umboðsstarf fyrir Elvis og þá fóru hlutirnir að gerast fyrir alvöru fyrir þennan unga sjarmör. Hálfu ári síðar skrifaði hann undir samning hjá RCA plötuútgáfunni. Elvis var nú orðinn heitasta stjarnan í tónlistarbransanum. Meðal fyrstu laga sem hann tók upp fyrir RCA var lagið "Heartbreak Hotel" og Elvis heillaði alla upp úr skónum með blúsuðum söng og gífurlegri útgeislun. Lagið fór beint á topp Billboard listans, seldist í yfir milljón eintökum og færði honum sína fyrstu gullplötu. Í mars árið 1956 var fyrsta platan gefin út og nefndist einfaldlega Elvis Presley. Hún fór að sjálfsögðu líka beint á toppinn og var fljót að ná gullsölu. Elvis sigrar heiminn Þó svo að það virðist skrítið núna var Elvis mjög umdeildur fyrir sviðsframkomu sem mörgum þótti allt of gróf og móðgandi. Hann hafði sérstakar hreyfingar sem höfðu ekki sést áður og hristi sig og skók með tónlistinni. Eftir að hafa komið fram nokkrum sinnum í sjónvarpi var gripið til þess ráðs í þætti Ed Sullivan að sýna Elvis aðeins frá mitti og upp. Söngvarinn greip þá einfaldlega til þess ráðs að dansa meira með höndunum og efri hluta líkamans. Í ágúst 1956 hófust upptökur á fyrstu mynd Elvis, Love Me Tender. Að sjálfsögðu sló myndin í gegn og gagnrýnendur voru jafnvel ekkert svo óhrifnir af frammistöðu Elvis sem leikara. Á þessum tíma var varningur með nafni Elvis og myndum af honum gríðarstór hluti af þessu heljarinnar fyrirbæri sem hann var orðinn. Hattar, bolir, strigaskór, skyrtur, blússur, belti, töskur, veski, armbönd, hálsmen, hanskar, styttur, varalitir, rakspírar og fleira voru meðal þeirra vara sem framleiddar voru með hans nafni. Enn þann dag í dag heldur markaðssetning á þessum vörum áfram því eftirspurnin hættir aldrei. Árið 1956 var því árið sem Elvis kom sá og sigraði og breytti heiminum til frambúðar. Sendur í herinn Graceland býlið keypti Elvis árið 1957 fyrir sig og fjölskyldu sína. Húsið er heimsfrægt í dag og í því er staðsett safn þar sem túristar og aðdáendur geta upplifað hinn sanna anda Elviss. Einnig er húsið þar sem goðið fæddist, í Tupelo Mississippi, opið fyrir gestum. Líf söngvarans breyttist þegar hann var kallaður í herinn þann 24. mars 1958. Í ágúst gerðist svo sá sorglegi atburður að móðir Elvis dó. Elvis var svo fluttur til Þýskalands þar sem hann kynntist tilvonandi eiginkonu sinni, Priscillu Beaulieu. Elvis var tvö ár í hernum og fékk sömu meðferð og hver annar hermaður. Hann óttaðist þó að þegar hann kæmi aftur myndu aðdáendur hafa gleymt honum. En hann átti enn eftir að sjá stjörnu sína skína bjartar en nokkurn tíma. Á næstu árum lék hann í ótal myndum; GI Blues, Blue Hawai, Wild In The Country, Girls Girls Girls, Follow That Dream og mörgum fleirum. Presley-bíóformúlan svokallaða virtist virka; einfalt plott, skrautlegt umhverfi, nóg af Elvis-lögum og fullt af sætum stelpum. Djammaði með Bítlunum Árið 1964 fór að heyrast meira frá Bretlandi í tónlistarbransanum þegar Bítlaæðið byrjaði. Elvis var þá orðinn þreyttur á lífinu, tónlistinni og endalausum kvikmyndaleik. Í ágúst 1965 kíktu Bítlarnir í heimsókn til Presleys í nokkra klukkutíma þar sem þeir djömmuðu saman. Því miður hugkvæmdist engum að taka djammið upp með einhverjum hætti. Ferill Elvis fór nú versnandi og myndunum hans gekk sífellt verr. Priscilla og Elvis giftust árið 1967 og eignuðust einkadóttur sína, Lisu Marie árið 1968. Hjónaband þeirra varð þó ekki langlíft og þau skildu árið 1973. Í júní 1968 kom Elvis fram í sjónvarpi í þættinum The ´68 Comeback og var þátturinn tileinkaður honum. Þarna var hann löngu orðinn þreyttur á kvikmyndunum og hafði lítið sést utan þeirra. Hann kom því ferskur inn í senuna og 33 ára að aldri var hann betri en nokkru sinni fyrr. Náttúrulegir hæfileikar hans, útgeislun og sjarmi hafði ekki farið neitt og áhorfendur trylltust. Í lok þáttarins kom Elvis fram í hvítum jakkafötum og söng nýtt lag; hið gífurlega fallega If I Can dream. Kröftugur söngurinn og sterk nærvera hans í laginu var einn af hápunktum söngferils Elvis. Mörgum árum seinna minntist rithöfundurinn Greil Marcus þáttarins á eftirfarandi hátt: "Þetta var flottasti tónlistaratburður í lífi Elvis Presley. Ef einhvern tíma var flutt tónlist sem blæðir úr þá var það þarna." Síðustu tónleikar kóngsins Á næstu árum kláraði hann kvikmyndasamning sinn og gat snúið sér að tónlistinni af öllu hjarta. Elvis fór í heljarinnar tónleikaferðalag til Las Vegas árið 1969 og sló í gegn enn einu sinni. Þarna klæddist Elvis fyrst galla sem minnti helst á karatebúning og var hannaður af Bill Belew. Sú var byrjunin á hinum fræga Elvis-galla sem eftir að leið á varð sífellt skrautlegri. Árið 1970 gaf hann út mörg sinna bestu laga og má þar helst nefna In The Ghetto, Suspicious Minds, Don´t Cry Daddy og Kentucky Rain. Á árunum 1970-1973 fór Elvis sigurför um heiminn og söng á ótal tónleikum. Hann toppaði aðsóknarmet hvað eftir annað og var aftur orðin skærasta stjarnan. Á seinni hluta ársins 1973 var Elvis sendur á spítala vegna lungnabólgu, ristilvandamáls og lifrarbólgu. Hann hafði barist við heilsuvandamál í nokkurn tíma einnig vegna þeirrar staðreyndar að hann virtist vera háður lyfseðilsskyldum lyfjum. Einnig átti söngvarinn í vandræðum með þyngdina. Á síðustu árum ævinnar var Elvis duglegur að syngja á tónleikum en heilsu hans fór hratt versnandi. Þann 26. júní 1977 kom hann fram á sínum síðustu tónleikum. Á vídeóupptöku frá tónleikunum sést hversu illa hann var haldinn en hve gífurlega sterk og falleg rödd hans var enn. Þann 16. ágúst 1977 lést Elvis úr hjartagalla. Sorgarfréttin barst um heiminn á nokkrum klukkutímum. Bandaríska flaggiðBjörgvin Halldórsson, söngvari og Elvis-aðdáandi "Elvis er bandaríska flaggið! Þegar hann sló í gegn árið 1956 þá var ég fimm ára og hann hefur haft mikil áhrif á mig eins og alla. Elvis gat sungið allt og það sem kitlaði eyrun á fólki var sú staðreynd að Elvis söng frá hjartanu. Ég gæti ekki valið eitt einasta lag sem er í uppáhaldi hjá mér. Hann tók upp svo gríðarlegt magn af lögum og auðvitað eru mörg sem falla í skuggann. En ef ég ætti að velja eitt lag þá væru svona um þrjátíu lög sem væru hæst á stallinum." Björgvin Halldórsson er annálaður Elvis-aðdáandi og hefur safnað að sér nánast öllu sem kóngurinn hefur gefið út. "Ég á mikið af skemmtilegum útgáfum sem eru gefnar út í fáum eintökum. Ég á þó enn eftir að fara til Graceland. Sú pílagrímsferð er eftir og hún verður sennilega farin á þessu ári eða því næsta." Aðspurður hvaða Elvis-tímabil hann kunni best að meta segir hann: "Ég er ofsalega hrifinn af rokktímabilinu áður en hann fór í herinn. Lennon sagði að rokkið hefði dáið þegar Elvis fór í herinn og ég upplifði það svolítið þannig. Ég var ekki mikið hrifinn af bíómyndatímabilinu þó svo að fyrstu myndirnar hafi verið góðar, eins og Love Me Tender, King Creole og Jailhouse Rock. Þetta varð svo að allt of mikilli fjöldaframleiðslu þar sem þeir fóru yfir eina helgi og gerðu eitt stykki bíómynd. Svo var ég reyndar gríðarlega hrifinn af Las Vegas-tímabilinu. Meira að segja hafði ég mjög gaman að honum þegar hann var orðinn gamall og veikur því röddin var sjaldan fallegri en einmitt þá." Björgvin segir Elvis hafa lengi vel látið sig dreyma um að fara í tónleikaferðalag um Evrópu. "Hann fór aldrei út fyrir Ameríku í tónleikaferðalag, hann fór aðeins í tónleikaferðalag til Hawai og þá er það komið. Það eru margar sögur uppi um ástæður þess að úr Evrópuferð varð aldrei. Ein sagan segir að Colonel Parker, umboðsmaðurinn, hafi verið ólöglegur innflytjandi. Hann var víst ekki hrifinn af því að Elvis færi til Evrópu og dró úr honum vindinn. Ástæðan var auðvitað sú að Parker hefði aldrei komist aftur inn í landið! " Björgvin minnist á þá staðreynd við blaðamann að kóngurinn hafi átt tvíbura sem lést í fæðingu. "Ímyndaðu þér! Ímyndaðu þér að hafa tvo Elvisa! Hann var snillingur og ekkert annað. Æðislegur söngvari, ofsalega músíkalskur, fjallmyndarlegur, hann hafði það allt! Hann var engum líkur. Þeir brutu mótið eftir að þeir gerðu Elvis. Hann er náttúrlega bara kóngurinn!"





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.