Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reglurnar hertar á Ítalíu Ítölsk knattspyrnuyfirvöld tilkynntu í dag að leikmenn eða þjálfarar liða í deildarkeppnum í landinu fengju heimaleikjabann rétt eins og óþekkir stuðningsmenn ef þeir gerðust sekir um ofbeldisfulla hegðun. Leikmenn fara venju samkvæmt í leikbönn ef þeir fá rauð spjöld, en hafa til þessa fengið að fylgjast með leikjunum úr áhorfendastúkum þrátt fyrir leikbönn. Þessir menn verða nú að láta sér það nægja að fylgjast með liðum sínum í sjónvarpi. 6.9.2007 15:14
Jose Sosa úr leik hjá Bayern Argentínski landsliðsmaðurinn Jose Sosa getur ekki leikið með Bayern Munchen næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að hafa farið í aðgerð á ökkla. Sosa var keyptur til Bayern fyrir stórfé frá Estudiantes í sumar. Miðjumaðurinn efnilegi hafði reyndar aðeins komið við sögu í tveimur leikjum liðsins til þessa. 6.9.2007 15:08
Framherji Derby í fjögurra leikja bann Craig Fagan, framherji Derby County í ensku úrvalsdeildinni, var í dag dæmdur í fjögurra leikja bann af aganefnd deildarinnar eftir að sýnt þótti að hann hefði viljandi traðkað á Alvaro Arbeloa, leikmanni Liverpool, í leik liðanna um síðustu helgi. 6.9.2007 14:59
Shevchenko: Skil ekki af hverju ég fæ ekki að spila Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea segist undrast á því að Jose Mourinho hafi enn ekki leyft honum að spila til þessa á leiktíðinni. Hann segist vera búinn að ná sér eftir að kviðslitsaðgerð sem hann fór í fyrir nokkru og skoraði meira að segja mark í góðgerðaleik í heimalandinu í vikunni. 6.9.2007 14:53
Geri í buxurnar þegar andstæðingarnir fá hornspyrnu Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur sent forráðamönnum félagsins þau skilaboð að hann muni ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Tottenham hefur gengið afleitlega í byrjun leiktíðar og sagt er að félagið hafi verið hársbreidd frá því að ráða Juande Ramos hjá Sevilla í starf hans á dögunum. 6.9.2007 14:17
Kyntröllið Crouch Framherjinn leggjalangi Peter Crouch hjá Liverpool er í sviðsljósinnu á nýrri vefsíðu sem er að fara í loftið. Það er hópur aðdáenda leikmannsins sem stendur fyrir opnun síðunnar og kallar hópurinn sig Crouch Is A Sex God - eða Crouch er kyntröll. Crouch sjálfur er mjög hrifinn af þessu uppátæki. 6.9.2007 13:58
Meiðsli Dyer ekki eins alvarleg og talið var Læknar enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham segja að meiðsli Kieron Dyer séu ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Dyer tvíbrákaði bein í fæti sínum í bikarleik gegn Bristol Rovers á dögunum í aðeins sínum öðrum leik fyrir félagið. Talið var víst að hann yrði frá keppni í mjög langan tíma. 6.9.2007 13:45
Aðeins Ofurmennið getur hirt af mér stöðuna Jens Lehmann segist fullviss um að hann sé öruggur með byrjunarliðssæti sitt hjá Arsenal og þýska landsliðinu. Hann hefur tröllatrú á hæfileikum sínum þó hann sé kominn langt á fertugsaldurinn og segir aðeins Ofurmennið geta slegið sig út úr byrjunarliðssætinu. 6.9.2007 13:36
Mascherano: Benitez bjargaði mér Argentínumaðurinn Javier Mascherano hjá Liverpool segir að Rafa Benitez knattspyrnustjóri hafi bjargað ferli sínum þegar hann ákvað að kaupa hann til Liverpool. Mascherano fékk lítið að spila þá sex mánuði sem hann var hjá West Ham og segist hafa verið orðinn mjög leiður á lífinu í London. 6.9.2007 13:22
Terry tekur tap út á fjölskyldunni Varnarjaxlinn John Terry hjá Chelsea og enska landsliðinu viðurkennir að hann taki tapi á knattspyrnuvellinum svo illa að hann eigi það til að taka það allt út á fjölskyldu sinni þegar hann kemur heim. 6.9.2007 12:29
Ballack hefði frekar átt að fara til United Frans Beckebauer, forseti Bayern Munchen, gagnrýnir harðlega þá ákvörðun landa síns Michael Ballack að ganga í raðir Chelsea á Englandi og segir að hann hefði frekar átt að fara til Manchester United. 6.9.2007 12:19
Wenger framlengir við Arsenal Arsene Wenger hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal samkvæmt frétt frá breska ríkissjónvarpinu í dag. Þessi tíðindi verða formlega tilkynnt á næstu dögum en sagt er að Frakkinn fái 4 milljónir punda í árslaun á samningstímanum. Wenger hefur verið stjóri Arsenal síðan árið 1996. 6.9.2007 11:26
Torres meiddur Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool meiddist á hné á æfingu með spænska landsliðinu í gær og hafa spurningamerki verið sett við þáttöku hans í leiknum gegn Íslendingum á laugardaginn. Læknar spænska landsliðsins segja meiðslin ekki alvarleg, en hann fékk högg á hnéð eftir að hann lenti í samstuði félaga sinn. 6.9.2007 10:40
Fabregas: Ég neitaði Real Madrid Spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal hefur undirstrikað það að hann muni ekki fara frá Arsenal til að ganga í raðir Real Madrid. Hann segist hafa fengð tilboð um að fara til spænsku risanna í sumar en fullyrðir að hann sé ánægður hjá enska félaginu. 6.9.2007 10:30
Hargreaves tæpur hjá Englendingum Miðjumaðurinn Owen Hargreaves hjá Manchester United er nýjasta nafnið á sjúkralista enska landsliðsins fyrir leikinn gegn gegn Ísraelum í undankeppni EM á laugardaginn. Hargreaves meiddist á læri á æfingu og verður því tæplega með í leiknum frekar en þeir David Beckham og Frank Lampard. Þá er Steven Gerrard enn tæpur vegna tábrots. 6.9.2007 09:53
Gerrard tók þátt í æfingu Englands Steven Gerrard, miðjumaður Liverpool, tók þátt í æfingu enska landsliðsins í kvöld. Óvissa hefur ríkt um hvort Gerrard geti tekið þátt í landsleik Englendinga gegn Ísrael á laugardaginn en ljóst er að nú geta menn verið bjartsýnni. 5.9.2007 21:58
Speed í tvöföldu hlutverki Gary Speed segir að hann taki leikmannaferilinn fram yfir þjálfaraferilinn í dag. Þessi reynslumikli miðjumaður spilar með Bolton í ensku úrvalsdeildinni auk þess sem hann er í þjálfarateymi Sammy Lee. 5.9.2007 21:17
Króatarnir áfram hjá ÍA Sagt er frá því á heimasíðu knattspyrnudeildar ÍA að félagið hafi gert nýja samninga við króatísku leikmennina tvo sem leikið hafa með liðinu í sumar. Dario Cingel og Vejkoslav Svadumovic skrifuðu undir samninga til tveggja ára en þeir hafa spilað stórt hlutverk á Skaganum. 5.9.2007 21:03
Afturelding og HK/Víkingur upp Afturelding og HK/Víkingur tryggðu sér í kvöld sæti í Landsbankadeild kvenna á næstu leiktíð. Seinni leikir í undanúrslitum 1. deildar fóru þá fram. Afturelding vann Völsung á Húsavíkurvelli og HK/Víkingur burstaði Hött. 5.9.2007 19:39
Sir Alex: Sýnið Anderson þolinmæði Sir Alex Ferguson er sannfærður um að brasilíski leikmaðurinn Anderson muni slá í gegn hjá Manchester United. Þessum unga leikmanni hefur verið líkt við Ronaldinho og lék hann sinn fyrsta mótsleik fyrir United í 1-0 sigurleiknum gegn Sunderland um síðustu helgi. 5.9.2007 18:57
Deilt um Vieira Landsliðsþjálfarar og þjálfarar félagsliða eru ekki bestu vinir um þessar mundir enda landsleikjahelgi framundan. Franska knattspyrnusambandið og ítalska liðið Inter deila nú um hvort Patrick Vieira sé leikfær um helgina. 5.9.2007 18:23
Dunga: Adriano þarf að þroskast Carlos Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, hefur biðlað því til brasilíska sóknarmannsins Adriano að hann fari beinu brautina og finni sitt gamla form. Adriano hefur verið að berjast við vandræði í einkalífinu og hafa þau haft áhrif á frammistöðu hans á vellinum. 5.9.2007 17:47
Ætlar að vera kominn á fullt um jólin Jimmy Bullard, miðjumaður Fulham, stefnir á að vera kominn á fullt skrið í kringum jólin. Þessi 29 ára leikmaður hefur verið frá vegna mjög slæmra hnémeiðsla í eitt ár. Hann er farinn að taka þátt í léttum æfingum. 5.9.2007 17:22
Playboydómarinn sér ekki eftir neinu Brasilíski aðstoðardómarinn Ana Paula Oliveira segist alls ekki sjá eftir því að hafa setið fyrir nakin í tímaritinu Playboy á sínum tíma, en hún hefur ekki fengið að dæma alvöruleik síðan. Hún hefur þó ekki hætt dómgæslu og hefur að mestu flaggað áhugamannaleiki. 5.9.2007 17:16
Juventus vill ræða við Ballack Ítalska liðið Juventus hefur áhuga á þýska miðjumanninum Michael Ballack hjá Chelsea. Eins og frægt er orðið þá var Ballack ekki valinn í leikmannahóp Chelsea fyrir Meistaradeildina og hafa þá farið af stað sögusagnir varðandi framtíð hans hjá enska stórliðinu. 5.9.2007 17:08
Hjónabandið breytti Beckham Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að David Beckham hafi breyst til hins verra þegar hann giftist kryddpíunni Victoriu árið 1999. Hann segir Beckham hafa verið atvinnumann fram í fingurgóma áður en hann tileinkaði sér stjörnulífið. 5.9.2007 16:50
Hamilton stelur sviðsljósinu af Rooney Breski bókarisinn Harper Collins ætlar að verja milljónum punda í ökuþórinn Lewis Hamilton í þeirri von að hann bæti upp tap útgáfunnar á fyrstu bókinni um knattspyrnukappann Wayne Rooney sem kom út í fyrra. Aðeins 40,000 eintök seldust af bók Rooney sem kom út eftir HM 2006 í knattspyrnu, sem þótti hneyksli eftir að útgáfan eyddi 5 milljónum punda í að tryggja sér útgáfuréttinn á sögu hans. 5.9.2007 16:29
Magnús og Guðjón fá ávítur frá KSÍ Magnús Gylfason þjálfari Víkings og Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA, í Landsbankadeild karla fengu í dag ávítur frá aganefnd KSÍ og voru félög þeirra sektuð um 10 þúsund krónur vegna ummæla þeirra í garð dómara eftir leiki í 14. umferð deildarinnar. Þá fengu þeir Ólafur Kristjánsson þjálfari Keflavíkur og Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis áminningu vegna ummæla sinna við sama tækifæri. 5.9.2007 16:18
Enginn náð fernunni síðan vorið 2004 Norska markamaskínan Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United lagði skóna á hilluna á dögunum, en hann afrekaði það einu sinni að skora fjögur mörk í einum leik á aðeins 19 mínútum eftir að hafa komið inn sem varamaður. Hér fyrir neðan er listi yfir þá leikmenn sem hafa náð að skora fjögur mörk eða meira í leik í úrvalsdeildinni. 5.9.2007 15:06
Crouch var tekinn sérstaklega fyrir á HM Fyrrum HM-dómarinn Graham Poll segir að dómarar á HM í Þýskalandi í fyrra hafi tekið leikstíl enska landsliðsmannsins Peter Crouch sérstaklega fyrir áður en mótið byrjaði. 5.9.2007 10:17
Ferguson vill að Queiroz taki við United Sir Alex Ferguson segist enn ekki vera búinn að gera það upp við sig hvenær hann hættir að þjálfa, en segist lítast vel á aðstoðarmann sinn Carlos Queiroz sem næsta knattspyrnustjóra Manchester United. Hann segir þá ákvörðun vera í höndum Glazer-feðga. 5.9.2007 10:12
Liverpool spilar ljótan og leiðinlegan bolta Bernd Schuster nýráðinn þjálfari Real Madrid segir að Liverpool spili ljóta og leiðinlega knattspyrnu, en bendir á að liðið sé helsti keppinautur sinna manna um sigur í Meistaradeildinni næsta vor. Hann á einnig von á að AC Milan verði eitt þeirra liða sem kemst hvað lengst í keppninni. 5.9.2007 10:04
Nýr samningur á borðinu hjá Richards Varnarmaðurinn efnilegi Micah Richards hjá Manchester City segist reikna með að skrifa undir nýjan samning við Manchester City á næstu dögum. Richards er aðeins 19 ára gamall en hefur þegar tryggt sér fjóra landsleiki fyrir England. Hann er reyndar enn samningsbundinn félaginu til 2010, en það hefur nú boðið honum betri samning á hærri launum. 5.9.2007 09:58
Gerrard sprautaður? Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, segir ekki útilokað að Steven Gerrard verði sprautaður með verkjalyfjum svo hann geti spilað leikinn við Ísraela í undankeppni EM á laugardaginn. Gerrard er með brákað tábein, en síðast þegar hann var sprautaður vegna þessa var hann eina fimm daga að jafna sig. 5.9.2007 09:54
Margrét Lára langmarkahæst Margrét Lára Viðarsdóttir er langmarkahæsti leikmaðurinn í Landsbankadeild kvenna. Margrét hefur skorað þrjátíu mörk í deildinni í þeim þrettán leikjum sem Valur hefur leikið en í kvöld gerði hún fjögur þegar Valur vann 11-0 útisigur á Fjölni. 4.9.2007 20:31
Giggs stefnir á ellefu Ryan Giggs hefur opinberað að markmið sitt sé að vinna ellefu enska meistaratitla með Manchester United. Þessi töframaður frá Wales hefur alls hampað enska meistaratitlinum níu sinnum sem er oftar en nokkur annar einstaklingur. 4.9.2007 20:21
Fylkir sendi ÍR í botnsætið Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Fylkir og ÍR áttust við í sannkölluðum botnbaráttuslag þar sem Fylkir vann 4-1 sigur. Með þessum úrslitum datt ÍR í botnsætið en aðeins eitt lið fellur úr deildinni. 4.9.2007 20:09
Grótta og Víðir í úrslitin Ljóst er að það verða Grótta og Víðir sem munu mætast í úrslitaleiknum um sigurinn í 3. deild karla. Bæði lið hafa þegar tryggt sér sæti í 2. deild á næstu leiktíð. Seinni leikir undanúrslitana fóru fram í kvöld. 4.9.2007 19:44
Lið í Serie-B hóta verkfalli Lið í Serie-B deildinni á Ítalíu hóta því að fara í verkfall ef samningar munu ekki nást um sjónvarpsréttinn á deildinni. Ekki er sýnt frá næstefstu deild Ítalíu í sjónvarpi þar á landi eftir að félögin neituðu tilboði frá ítölsku Sky sjónvarpsstöðinni. 4.9.2007 19:31
Mun Chelsea ræna Dos Santos? Sögusagnir eru uppi um að Giovani dos Santos, hinn stórefnilegi leikmaður Barcelona, sé með klásúlu í samningi sínum sem segir að hann megi fara ef lið býður tuttugu milljónir punda í hann. Chelsea ætlar að láta reyna á þessa klásúlu. 4.9.2007 18:59
Schuster: AC Milan sigurstranglegast Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, segir að ítalska liðið AC Milan sé sigurstranglegast í Meistaradeild Evrópu á þessari leiktíð. „Ég sá þá vinna Sevilla og tel þá sigurstranglegasta," sagði Schuster. 4.9.2007 18:40
Tveir úr FH dæmdir í bann Danirnir Tommy Nielsen og Dennis Siim verða ekki með Íslandsmeistaraliði FH þegar það heimsækir Breiðablik sunnudaginn 16. september. Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fundaði í dag og fengu þeir báðir leikbann vegna uppsafnaðra áminninga. 4.9.2007 18:11
Solano: Vonbrigði að hafa ekki tekið titil Nolberto Solano, fyrrum miðjumaður Newcastle, segist mjög svekktur yfir því að hafa ekki náð að vinna titil með félaginu. Solano gekk til liðs við West Ham á föstudag, tveimur árum eftir að hann gekk á ný til liðs við félagið frá Aston Villa. 4.9.2007 17:38
Olembe á leið til Wigan Wigan er að fá kamerúnska vinstri bakvörðinn Salomon Olembe. Samningur hans við franska liðið Marseille rann út í júní en þessi 26 ára leikmaður var á sínum tíma hjá Leeds. Hann á um sextíu landsleiki að baki. 4.9.2007 17:21
Lampard ekki með gegn Ísrael Miðjumaðurinn Frank Lampard verður ekki með enska landsliðinu á laugardag þegar það leikur gegn Ísrael á Wembley. Helmingslíkur eru taldar á því að hann verði klár í slaginn fyrir leik gegn Rússlandi fjórum dögum síðar. 4.9.2007 17:10