Sport

„Allur heimurinn gæti hlegið að mér“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raygun í æfingunum heimsfrægu á Sumarólympíuleikunum í París í ágúst fyrir tveimur árum.
Raygun í æfingunum heimsfrægu á Sumarólympíuleikunum í París í ágúst fyrir tveimur árum. Getty/ Ezra Shaw

Ástralski breikdansarinn Raygun er komin aftur í sviðsljósið þökk sé nýrri heimildarmynd um þátttöku hennar á Sumarólympíuleikunum í París fyrir tveimur árum.

Raygun var harðlega gagnrýnd fyrir frammistöðu sína á leikunum í París en eftir frammistöðu sína varð Gunn fyrir víðtækri gagnrýni og einelti á netinu.

Nýja heimildarmyndin heitir „Untold Raygun: Breaking Badly“ og verður frumsýnd á Netflix 1. september næstkomandi. Hún afhjúpar kvíða keppandans, sem heitir réttu nafni Rachael Gunn, fyrir dansinum heimfræga sem fór fram 9. ágúst 2024 á Place de la Concorde. Eftir þrjár umferðir gegn Bandaríkjunum, Frakklandi og Litháen fékk Gunn engin stig.

„Rétt fyrir Ólympíuleikana fór ég til sálfræðingsins míns, í panikki,“ sagði Gunn í stiklu fyrir þáttaröðina. „Hún spurði: ‚Hvað er það versta sem gæti gerst?‘ ‚Allur heimurinn gæti hlegið að mér‘ Hún spurði: ‚Heldurðu að það sé raunhæft?‘“ er haft eftir breikdansaranum en USA Today segir frá.

„Ég kann virkilega að meta jákvæðnina og er glöð að hafa getað fært ykkur smá gleði. Það var það sem ég vonaði. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að það myndi líka opna dyrnar fyrir svo miklu hatri, sem hefur, satt best að segja, verið frekar niðurdrepandi. Ég fór þarna út og skemmti mér. Ég tók þetta mjög alvarlega. Ég lagði mig alla fram við undirbúning fyrir Ólympíuleikana og gaf allt mitt. Í alvöru,“ sagði Gunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×