Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gazprom dregur úr gassölu til Evrópu Rússneska gasfyrirtækið Gazprom hefur minnkað gasflæði til Ungverjalands og Bosníu-Hersegóvínu svo fyrirtækið geti annað innlendri eftirspurn en afar kalt er í Rússlandi þessa dagana. 18.1.2006 12:51
Milosevic óskar eftir læknisaðstoð frá Moskvu Stjórnvöld í Moskvu skoða nú hvort þau geti orðið við beiðni frá Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, þess efnis að hann fái að leita til rússneskra lækna vegna hjartveiki sinnar. 18.1.2006 12:47
Kauphöllinni í Tokyo lokað fyrr en vanalega Kauphöllinni í Tokyo var lokað í morgun tuttugu mínútum fyrr en venja er. Þetta er í fyrsta sinn sem það er gert en óttast var að tölvukerfið í kauphöllinni kynni að hrynja vegna mikilla viðskipta. 18.1.2006 09:38
Japönum fækkar Japönum fækkaði í fyrra, í frysta sinn síðan árið 1945.Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í eitt og eitt fjórða barn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. 18.1.2006 09:30
Hóta að drepa bandarískan blaðamann Uppreisnarmenn í Írak hafa hótað að taka bandarískan blaðamann sem þeir hafa í haldi af lífi ef ekki verður orðið við kröfum þeirra um að öllum konum í írökskum fangelsum verði sleppt innan þriggja sólarhringa. Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greindi frá þessu í gær og birti myndband af konunni en gaf ekki upp hvernig það hefði borist stöðinni. 18.1.2006 09:30
Japönum fækkar í fyrsta sinn í rúm 60 ár Japönum fækkaði í fyrra, í fyrsta sinn síðan árið 1945. Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í 1,25 börn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. 18.1.2006 09:15
Uppreisnarmenn handteknir í Írak Danskar og írakskar hersveitir handtóku þrjátíu og sex uppreisnarmenn í víðtæku áhlaupi á vígi uppreisnarmanna norðan við borgina Basra í Írak á mánudaginn. 18.1.2006 09:14
Hjálparstarf í Kasmír lamað Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. 18.1.2006 09:10
Fuglaflensufaraldur getur dregið milljónir til dauða Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðabankinn hafa varað þjóðir heims við því að hugsanlegur fuglaflensufaraldur geti dregið milljónir til dauða og telja að þörf sé á 90 milljörðum dollara á næstu þremur árum til að takast á við flensuna í fátækari ríkjum heims. 18.1.2006 09:05
Mannfall og mannrán í Írak Íraskir byssumenn myrtu í morgun tíu lífverði og rændu verkfræðingi frá Malawi í höfuðborginni Baghdad. 18.1.2006 09:03
Friðargæsluliðar drepnir í Haítí Tveir jórdanskir friðargæsluliðar voru skotnir til bana og sá þriðji særðist í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí í gær. Ráðist var á þá á varðstöð í borginni en þar hefur verið róstursamt að undanförnu. 18.1.2006 08:45
Komið upp um áform um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg manna um ræna Leo, yngsta syni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands. Frá þessu greinir götublaðið Sun. 18.1.2006 08:30
Bandarísk blaðakona í haldi andspyrnumanna Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gærkvöldi myndband sem sýnir bandaríska blaðakonu sem er í haldi andspyrnumanna í Írak. Ekkert hafði heyrst til Jill Carroll síðan henni var rænt 7. janúar síðastliðinn í Bagdað. Myndbandið er um 20 sekúndur. Með því fylgdu þau skilaboð að bandarísk stjórnvöld hefðu 3 sólahringa til að láta lausar þær írösku konur sem væru í fangelsi í Írak ellegar yrði blaðakonan myrt. 18.1.2006 08:00
Fuglaflensa hugsanlega komin upp í Írak Grunur leikur á að mannskæði stofn fuglaflensunnar sé kominn upp í norðurhluta Íraks. Embættismaður úr röðum Kúrda sagði í morgun að verið væri að rannsaka hvort rekja mætti nýlegt dauðsdall í Norður-Írak til fuglaflensunnar. 18.1.2006 08:00
Eyða kókaplöntum í Kólombíu Þúsundir hermanna voru sendir í þjóðgarð í Mið-Kólumbíu í gær til að eyða kóka plöntum sem þar eru að finna og notaðar eru til kókaínframleiðslu. Svæðið þar sem plönturnar er að finna er 4.600 hektarar og ráða FARC skæruliðar þar lögum og lofum. 18.1.2006 07:45
Dómstóll í Tælandi dæmir tvo menn Dómstóll í Tælandi hefur sakfellt tvo þarlenda fiskimenn fyrir að hafa nauðgað og myrt breskum ferðamanni. Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, réðust á rétt rúmlega tvítuga konu á ferðamannaströnd á eyjunni Koh Samui. Mennirnir eiga yfir höfði sér dauðadóm og hefur Tahksin Shinawatra, forsætisráðherra Tælands, hvatt til þess að þeir hljóti þyngstu refsingu fyrir ódæðið. Glæpurinn hafi skaðað ímynd landsins og kunni að hafa afar slæm áhrif á ferðamannaiðnaðinn á Tælandi. 18.1.2006 07:30
Leyfa líknardráp Hæstiréttur í Bandaríkjunum staðfesti í gær lög sem leyfa læknum í Oregon ríki að aðstoða dauðvona sjúklingum að deyja. Þar með hafnaði rétturinn tilraunum Bush Bandaríkjaforseta til að refsa læknunum og banna þeim að fremja líknardráp. Sex dómarar af níu staðfestu lögin en meðal þeirra þriggja sem voru í minnihluta var John Roberts, nýskipaður forseti réttarins. Niðurstaðan er sögð áfall fyrir Bandaríkjaforseta 18.1.2006 06:50
Dynjandi úrkoma og aurskriður í fjöllum Kasmírs Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír-héraðs síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. 17.1.2006 21:55
Bandaríkjastjórn fær 72 klukkustundir til að láta írakskar konur lausar úr fangelsum Mannræningjar, sem rændu bandarískum friðargæsluliða fyrr í mánuðinum, hafa gefið Bandaríkjastjórn 72 klukkustundir til þess að láta allar Írakskar konur lausar úr fangelsum. 17.1.2006 21:30
Dönsk kona úrskurðuð í gæsluvarðhald Síðdegis í dag var dönsk kona úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald grunuð um að hafa valdið dauða 8 ára sonar síns. 17.1.2006 19:37
Flugvél fórst í Ölpunum Lík þriggja Frakka og eins Króata hafa fundist eftir að flugvél fórst í Ölpunum seint í gærkvöld. Talið er að ekki hafi verið fleiri um borð í vélinni. Mikil snjókoma var á þessu svæði þegar flugvélin fórst. 17.1.2006 16:08
Sirleaf hvetur landa sína til að snúa aftur heim Ellen Johnson-Sirleaf, nýkjörinn forseti Líberíu, hefur hvatt um 200 þúsund landa sína sem dreifðir eru um ýmis lönd Vestur-Afríku til að snúa aftur heim. Fólkið flýði landið vegna borgarastyrjaldar sem stóð frá 1989 til 2003 og kostaði hátt í 250 þúsund manns lífið en um milljón manns flýði heimili sín vegna ástandsins. 17.1.2006 13:45
Airbus segist hafa haft betur en Boeing í fyrra Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus virðist hafa haft sigur í baráttu sinni við bandaríska framleiðandann Boeing á markaði ef marka má sölutölur og pantanir á síðasta ári. Airbus-menn segjast hafa fengið 1055 pantanir á nýjum flugvélum í fyrra á móti 1002 hjá Boeing og þá afhenti Airbus 378 vélar í fyrra en Boeing 290. 17.1.2006 13:30
ESB leggur til 7,4 milljarða í baráttuna gegn fuglaflensu Evrópusambandið mun setja 7,4 milljarða króna í baráttuna gegn fuglaflensu. Markos Kypriano, sem fer með heilbrigðismál innan framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði á fundi í dag að fuglaflensutilvikin í Tyrklandi nýverið hafi aukið á áhyggjur af því að fuglaflensa væri að breiðast út en þrír hafa látist af völdum veirunnar í landinu. 17.1.2006 12:45
Íranar handtaka írakska strandgæslumenn Írakar hafa farið fram á að nágrannar þeirra Íranar sleppi níu strandgæslumönnum sem teknir voru höndum eftir að þeir réðust um borð í skip á ánni Shatta al-Arab sem þeir grunuðu um að væri notað til að smygla olíu. 17.1.2006 11:30
Allen tekinn af lífi í Kaliforníu Hæstiréttur Bandaríkjanna varð ekki við beiðni Clarence Ray Allen, fanga í San Quentin fangelsinu í Kaliforníu, um að hnekkja dauðadómi yfir honum og því var hann tekinn af lífi í morgun. Allen biðlaði til Hæstaréttar á þeirri forsendu að það teldist grimmilegt að taka af lífi aldraðan og lasburða mann, en Allen, sem var 76 ára, var blindur, í hjólastól og þjáðist af sykursýki. 17.1.2006 10:36
Ísraelsher skaut Hamas-liða til bana Ísraelskir hermenn skutu félaga í Hamas-samtökunum til bana í átökum í bænum Tulkarem á Vesturbakkanum í nótt. Ísraelsher segir manninn hafa komið út úr húsi í bænum og hafið skothríð á hermennina með tveimur vélbyssum en hermennirnir hafi svarað skothríðinni og drepið hann. 17.1.2006 10:30
Bachelet lofar jafnrétti í ríkisstjórn sinn Michelle Bachelet, nýkjörinn forseti Chile, hefur heitið því að skipa jafnmargar konur og karla í ríkisstjórn sína. Bachelet fór með sigur af hólmi í forsetakosningum á sunnudag en hún er þriðja konan í Suður-Ameríku til þess að verða kjörin forseti. 17.1.2006 10:00
Drengur í Danmörku barinn til dauða Lögrelgan Brönshöj í Kaupmannahöfn hefur handtekið konu vegna gruns um að hún hafi barið átta ára son sinn til dauða í gærkvöld. Neyðarlínan í Danmörku fékk tilkynningu seint í gærkvöld um að barn ætti í erfiðleikum með andardrátt. 17.1.2006 09:45
Eldur í olíuflutningabíl á hraðbraut í New York Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar olíuflutningabíll með þúsundir lítra af olíu valt með þeim afleiðingum að það kviknaði í honum á hraðbraut í New York í gær. Bílstjórinn náði að koma sér í burtu áður en sprengingar hófust og lagði gríðarlegan reyk frá bílnum. 17.1.2006 09:00
Aldraður maður reynir að fá dauðadómi hnekkt Sjötíu og sex ára gamall Bandaríkjamaður, Clarence Ray Allen, sem taka á af lífi í Kaliforníu í dag hefur beðið hæstarétt að hnekkja dauðadómnum á þeirri forsendu að það teljist grimmileg að taka af lífi aldraðan og lasburða mann. Allen er blindur, næstum því heyrnarlaus og bundinn við hjólastól. 17.1.2006 08:45
Tveir hópar segjast hafa grandað herþyrlu Tveir herskáir hópar andspyrnumanna í Írak hafa lýst yfir ábyrgð á að hafa grandað bandarískri þyrlu sem fórst skammt norður af Bagdad í gær með þeim afleiðingum að tveir hermenn féllu. Er þetta þriðja bandaríska þyrlan sem ferst í Írak á tíu dögum. 17.1.2006 08:30
Hjálparflug til Pakistans liggur niðri Sameinuðu þjóðirnar hafa stöðvað hjálparflug til Pakistans vegna vonskuveðurs og hefur því engin hjálp borist eftirlifendum jarðskjálftans sem varð í október á síðast ári, síðan um helgina. Aðstæður þúsunda manna eru vægast sagt hörmulega eins og þessar myndir sýna og er matur og lyf af skornum skammti. 17.1.2006 07:45
Rússar vonast enn eftir samkomulagi við Írana Íranar hafa ekki endanlega hafnað boði Rússa um að auðga fyrir sig úran til kjarnorkuvinnslu og því er enn von um að hægt sé að ná samkomulagi við þá. Þetta sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í gær og bætti við að málið þyrfti því ekki að fara fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Sendiherra Írans í Moskvu hrósaði í gærkvöld tillögu Rússa. 17.1.2006 07:30
Átök í Strassborg milli lögreglu og hafnarverkamanna Að minnsta kosti tólf franskir lögreglumenn slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar til átaka kom á milli lögreglumanna og hafnarverkamanna fyrir utan Evrópuþingið í Strassborg í gær. Þúsundir hafnaverkamanna söfnuðust saman til að mótmæla fyrirætlunum Evrópusambandsins um aukna samkeppni í hafnarþjónustu en verkamennirnir óttast að fyrirhugaðar breytingar muni kosta þá vinnuna. 17.1.2006 07:01
Átök á milli lögreglu og mótmælenda í Strassborg Til átaka kom við höfuðstöðvar Evrópuþingsins í Strassborg í Frakklandi í dag þegar hafnaverkamenn mótmæltu fyrirhuguðum breytingum á starfsemi hafna í ríkjum Evrópusambandsins. Lögregla beitti táragasi og sprautaði vatni á mótmælendur til að reyna að ná hemja lýðinn en að minnsta kosti þrír voru handteknir. 16.1.2006 22:22
Óholl fæða fer illa í lundina Óholl fæða fer illa í lundina á fólki. Ný bresk skýrsla bendir til að aukið þunglyndi og minnisleysi megi að nokkru rekja til breyttra matarvenja á síðustu áratugum. 16.1.2006 22:30
ESB vill neyðarfund í byrjun febrúar Evrópusambandið hefur farið þess á leit að alþjóða kjarnorkumálastofnunin haldi neyðarfund í byrjun febrúar vegna kjarnorkuþróunar Írana. Ef Bandaríkjamenn, Kínverjar og Rússar samþykkja fundinn eru yfirgnæfandi líkur á að málinu verði í kjölfarið skotið til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 16.1.2006 19:42
Fundað vegna kjarnorkuframleiðslu Bandarískir og evrópskir ráðamenn funduðu í London í dag með rússneskum og kínverskum samstarfsbræðrum sínum. Tilgangurinn var að reyna að finna lausn á ágreiningi um hvaða skref eigi að stíga vegna frétta um að Íranir hafi ákveðið að hefja starfsemi á ný í kjarnorkurannsóknarstöð sinni. 16.1.2006 16:53
Bandarísk herþyrla sögð skotin niður Bandaríks herþyrla hrapaði til jarðar norður af Bagdad í morgun, en samkvæmt vitnum var henni grandað með flugskeyti. Tveir menn eru taldir hafa verið í þyrlunni en afdrif þeirra eru óljós. 16.1.2006 14:30
Sirleaf tekin við í Líberíu Ellen Johnson-Sirleaf sór í dag embættiseið sem forseti Líberíu í höfuðborginni Monróvíu, en hún er fyrst afrískra kvenna til að gegna leiðtogahlutverki í landi sínu. Þúsundir fylgdust með athöfninni, þeirra á meðal leiðtogar ýmissa annarra Afríkuríkja ásamt bæði forsetafrú og utanríkisráðherrra Bandaríkjanna. 16.1.2006 14:00
Mótmæltu skráningu bjórfyrirtækis á markað Þúsundir manna söfnuðust saman fyrir framan Kauphöllina í Bangkok í Taílandi í dag til að mótmæla áætlunum um að setja stærsta framleiðanda bjórs og sterks áfengis í landinu á markað. Yfirstjórn Kauphallarinnar fundaði í dag um málið en mótmælendur reyndu að hafa áhrif á niðurstöðuna með því að láta vel í sér heyra og veifa fánum með slagorðum gegn áfengi. 16.1.2006 13:30
Grunaðir um að berja heimilislausan mann til bana Tveir unglingspiltar í Fort Lauderdale í Flórída eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa barið þrjá heimilislausa menn aðfaranótt fimmtudagsins, en einn þeirra lést af sárum sínum. Myndir af því einni árásanna þar sem maður var barinn með hafnaboltakyflum náðust á eftirlitsmyndavél en tilkynnt var um tvær aðrar árásir á heimililislausa þessa nótt. 16.1.2006 10:15
Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah látinn Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah, Emírinn af Kúveit, er látinn 77 ára að aldri. Emírinn var þrettándi einræðisherrann úr fjölskylduveldinu sem ríkt hefur í Kúveit í 245 ár. Kúveitar er tíundi stærsti olíuframleiðandi heims og þar búa um það bil tvær komma tvær milljónir manna. Eftir fall Saddams Husseins fyrrum einræðisherra nágrannaríkisins Íraks, hefur krafan um lýðræði í Kúveit sífellt orðið meiri. 16.1.2006 10:15
Kasta sætindum fyrir svín Þeir kasta ekki perlum fyrir svín í Danmörku heldur sælgæti ef marka má fréttir í danska blaðinu Politiken. Þar segir að lítill hópur danskra svínabænda hafi tekið upp á því að gefa grísum sínum bæði hlaup, súkkulaði og lakkrís í bland við aðra hollari fæðu þar sem það er um helmingi ódýrara en korn. 16.1.2006 10:00