Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærum gegn Benjamín Þór vísað frá dómi Tveimur ákærum á hendur Benjamín Þór Þorgrímssyni líkamsræktarþjálfara var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Benjamín Þór var ákærður fyrir líkamsárás á Ragnar Ólaf Magnússon. Árásin var sýnd í Kompásþætti um handrukkanir á Íslandi í haust. 2.12.2008 11:32
Kjararáð getur ekki lækkað launin Kjararáð hefur hafnað beiðni ríkisstjórnarinnar um það að laun æðstu embættismanna verði lækkuð um 5 til 15 prósent. Í svari ráðsins kemur fram að við óbreyttar aðstæður sé ekki hægt að verða við beiðninni heldur þurfi lagabreyting að koma til. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Geir Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra héldu rétt í þessu. Geir sagði við sama tilefni að ríkisstjórnin sé búin að ákveða þessar aðgerðir og að því verði ekki breytt þrátt fyrir úrskurð kjararáðs. „Við munum finna aðrar leiðir,“ sagði Geir. 2.12.2008 11:28
14 ára piltar brutust inn og stálu bílum Brotist var inn á bifreiðaverkstæðið Ásinn á Akranesi á laugardagskvöldið og þaðan var lyklum stolið af bifreiðum sem stóðu fyrir utan verkstæðið. Þar var á ferðinni 14 ára gamall piltur. Sá valdi sér bíl og ók á brott og bauð jafnöldrum sínum í bíltúr. Ökuferðinni lauk með því að þeir óku á og stórskemmdu bifreiðina. 2.12.2008 10:57
Auglýsingamál RÚV fái ekki flýtimeðferð Stjórn Sambands íslenskra auglýsingastofa írekar þá skoðun að ákvarðanir um aðkomu Ríkisútvarpsins að auglýsingamarkaði séu teknar með langtímasjónarmið í huga og ekki teknar í flýti. 2.12.2008 10:38
Landssamband lögreglumanna fagnaði 40 ára afmæli Landssamband lögreglumanna varð 40 ára í gær, en það var stofnað þann 1. desember árið 1968. 2.12.2008 10:22
Fyrrum forsetaritari: Staðreyndir þvælast ekki fyrir Ólafi Ragnari Róbert Trausti Árnason, fyrrum forsetaritari, segir að staðreyndir þvælist ekki fyrir Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Í Morgunblaðsgrein í dag segir Róbert Trausti að forsetinn sé í látlausu kapphlaupi við sjálfan sig. 2.12.2008 10:21
Steingrímur J. biður blinda og heyrnarlausa afsökunar Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, hefur óskað eftir að fá birta afsökunarbeiðni vegna ummæla sem hann lét falla á Vísi í gær. Þar var hann spurður út í þjóðarpúls Gallups og þær góðu undirtektir sem Vinstri grænir hafa fengið að undanförnu. Í lok viðtalsins sagði hann stjórnvöld verða að hlusta á kröfuna um kosningar. Þeir sem ekki gerðu það væru bæði blindir og heyrnarlausir. Steingrímur hefur nú sent afsökunarbeiðni þar sem orðanotkunin væri óviðeigandi. 2.12.2008 09:56
Íslendingar vörðu 106 milljörðum í fræðslumál á síðasta ári Heildarútgjöld til fræðslumála námu 106,4 milljörðum króna eða 8,2% af landsframleiðslu árið 2007, eftir því sem fram kemur í nýrri útgáfu af Hagtíðindum Hagstofunnar. 2.12.2008 09:07
Jyllandsposten fjallar um mótmæli Íslendinga Dagurinn sem hófst með því að minnast 90 ára afmælis fullveldis á Íslandi endaði með háværum mótmælum gegn ríkisstjórn og Seðlabanka Íslands. 2.12.2008 08:20
Ökumenn í Hvalfjarðargöngum löghlýðnir Ökumenn sem aka um Hvalfjarðargöng eru óvenjulöghlýðnir samkvæmt hraðamælingum lögreglu. 2.12.2008 07:20
Grindhvalakjöt varasamt segir landlæknir Færeyja Færeyingar eru slegnir yfir þeim tilmælum landlæknis eyjanna að hætta helst alveg að bragða á grindhvalakjöti, sem hefur verið mikilvæg uppistaða í fæðu eyjaskeggja í aldanna rás. 2.12.2008 07:14
Ók á staur í hálku Þrír slösuðust, en enginn þó alvarlega, þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum í flughálku á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði laust upp úr miðnætti og hafnaði á ljósastaur. 2.12.2008 07:13
Rjúpnaskyttunnar leitað áfram í dag Leit að rjúpnaskyttunni, sem saknað hefur verið í uppsveitum Árnessýslu frá því á laugardag, verður fram haldið í birtingu. Hátt í hundrað manns tóku þátt í leitinni í gær, en engar vísbendingar fundust um ferðir mannsins. 2.12.2008 07:11
Hafró beitir skyndilokun á síldveiðar Enn eitt reiðarslagið dundi á síldveiðiflotanum í gærkvöldi þegar Hafrannsóknarstofnun beitti skyndilokun á stóru svæði í sunnanverðum Faxaflóa, út af Njarðvík og Keflavík, og einnig skyndilokun á síldveiðisvæðinu við Vestmannaeyjar, þar sem skip voru farin að fá stór köst. 2.12.2008 07:08
Hreinn Loftsson vill kaupa Morgunblaðið Hreinn Loftsson stjórnarformaður og aðaleigandi Birtíngs segir marga kosti fylgja sameiningu félagsins og Árvakurs. Hann staðfestir í samtali við Vísi að Birtíngur hafi óskað eftir viðræðum við lánardrottna Árvakurs um möguleg kaup á útgáfu Morgunblaðsins. Hreinn segir að góður árangur hafi náðst í hagræðingu og sparnaði hjá Birtínig undanfarið. 1.12.2008 22:48
Segir málefnanlegar innistæður fyrir miklu fylgi Vg Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs segir niðurstöður þjóðarpúls Gallups ekkert koma sér sérstaklega á óvart. Flokkur Steingríms mælist með mest fylgi allra flokka, á sama tíma og fylgi stjórnarflokkanna hrynur. Hann segir þann sem ekki sjái kröfu þjóðarinnar um breytingar bæði blindan og heyrnarlausan. 1.12.2008 19:46
Félag fréttamanna: Afþakka fréttalestur útvarpsstjóra Almennur fundur Félags fréttamanna fordæmir uppsagnir á fréttasviði Ríkisútvarpsins um mánaðamótin. Fundurinn krefst þess að uppsagnirnar verði dregnar til baka. Nú, þegar aldrei hefur verið nauðsynlegra að halda úti öflugri fréttaþjónustu er ráðist að grunnstarfsemi- og lögbundnum skyldum Ríkisútvarpsins með uppsögnum. 1.12.2008 23:10
Segir mótmælin hafa verið fámenn í dag Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að gangan niður Laugaveg í dag hafi verið ákaflega fámenn. Aðeins nokkur hundruð manns hafi sinnt kallinu um þjóðfund á Arnarhóli. Hann segir trúverðugleika fjölmiðlamanna bíða hnekki, þegar þeir leitast við að mikla fjölda þátttakenda í mótmælum. 1.12.2008 22:19
Sálfræðinemar opna hjálparsíðu fyrir börn og unglinga BA nemendur í sálfræði við Háskóla Íslands hafa opnað hjálparsíðu sem ætluð er börnum og unglingum hér á Vísi. Hugmyndin kemur frá nemendunum sjálfum sem datt í hug að halda síðunni úti meðfram námi. Auður Sjöfn Þórisdóttir er ein þeirra sem standa að baki síðunni. 1.12.2008 21:34
Leit að rjúpnaskyttu hætt Leit að rjúpnaskyttu sem saknað er í Árnessýslu hefur enn engan árangur borið. Um 80-100 manns frá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar tóku þátt í henni í dag. Síðustu leitarhóparnir eru væntalegir í hús eftir u.þ.b. klukkustund og verður þá leitinni hætt þar sem myrkur hamlar leit. 1.12.2008 18:54
Lög um gjaldeyrishöft skelfileg mistök Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir setningu laga um gjaldeyrishöft skelfileg mistök og afnema beri lögin hið snarasta. Þau muni hafa þveröfug áhrif miðað við tilgang þeirra og leiði til þess að gjaldeyrir skili sér ekki til landsins. 1.12.2008 18:45
Segir meirihluta sjálfstæðismanna á móti evrópusambandsaðild Hinn þögli meirihluti sjálfstæðismanna er á móti evrópusambansdaðild. Þetta segir fyrrverandi ritsjóri Morgunblaðsins en hann flutti erindi á fundi Heimssýnar í dag. Hann segist ekki eiga von á stefnubreytingu í Valhöll eftir Landsfundinn í Janúar. 1.12.2008 18:45
Vinstri grænir orðnir stærstir allra flokka Vinstrihreyfingin grænt framboð mælist með mesta fylgi allra stjórnmálaflokka í nóvember samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Þetta kom fram í kvöldfréttum á Rúv nú í kvöld. Ríkisstjórnin hefur ekki verið með minna fylgi síðan árið 1993. 1.12.2008 18:36
Síldveiðar við Ísland í uppnámi Síldveiðar við Ísland eru í uppnámi. Ef allt fer á versta veg blasir milljarðatjón við sjávarútveginum og tugir uppsagna við síldarvinnslu vofa yfir. Áfall, segir sjávarútvegsráðherra en segir ekki tímabært að ræða aukakvóta til að veiða upp sýktu síldina. Lóa Pind Aldísardóttir hitti menn á leið út af krísufundi hjá Hafrannsóknarstofnun nú síðdegis. 1.12.2008 18:30
Mótmælendur farnir úr Seðlabankanum Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að allt sé með rólegasta móti í Seðlabankanum. Talsverður fjöldi mótmælenda kom sér fyrir í anddyri bankans seinni partinn í dag og neitaði að yfirgefa svæðið fyrr en seðlabankastjóri kæmi og talaði við hópinn. 1.12.2008 17:39
Stavanger og Dusseldorf nýir áfangastaðir Icelandair næsta sumar Icelandair kynnir um þessar mundir áætlun félagsins fyrir næsta sumar. Alls verður flogið til 23 áfangastaða og allt að 136 flug á viku. Meðal nýjunga er reglulegt flug til Stavanger í Noregi og Dusseldorf í Þýskalandi. Þá verður tíðni aukin í flugi til Toronto í Kanada frá því sem verið hefur, en í heild er um að ræða minni flugáætlun en á síðasta sumri og flug til Orlando í Florida í Bandaríkjunum verður fellt niður næsta sumar. 1.12.2008 17:29
Framsóknarkonur fagna nýjum konum Landssamband Framsóknarkvenna (LFK) fagnar því að tvær nýjar þingkonur hafa bæst við þingflokk Framsóknarflokksins, þær Helga Sigrún Harðardóttir og Eygló Harðardóttir. 1.12.2008 17:20
Rólegra við Seðlabankann Sextíu til sjötíu manns sitja nú inni í anddyri Seðlabankans og neita að yfirgefa svæðið. Mikill hiti var í fólki áðan og hótaði lögreglan því að beita varnarúða ef það hefði sig ekki á brott. Að sögn sjónarvotta er meiri ró yfir fólki nú en fólkið krefst þess að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hverfi úr embætti. 1.12.2008 16:52
Laun lækkuð um 20 prósent hjá toppunum ,,Við byrjuðum á okkur. Það er eðlilegt því einhvers staðar þarf að byrja," segir Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, en laun hjá æðstu stjórnendum fyrirtækisins hafa verið lækkuð um 20%. 1.12.2008 16:47
Sænskur bankasérfræðingur kemur í stað Ásmundar Stefánssonar Forsætisráðuneytið hefur ráðið til tímabundinna starfa Mats Josefsson, sænskan bankasérfræðing. Mats tekur við þeirri stöðu sem Ásmundur Stefánsson hefur gegnt við uppbyggingu bankakerfisins. 1.12.2008 16:33
Áhlaup á Seðlabankann - Varnarúða hótað Rétt í þessu var gert áhlaup á Seðlabanka Íslands. Á annað hundrað manns eru við bygginguna og ruddust tugir þeirra inn í stofnunina. Hópurinn vill fá að ræða við Davíð Oddsson, seðlabankastjóra. 1.12.2008 16:10
Hitaveitu Suðurnesja skipt í tvö fyrirtæki Hluthafafundur Hitaveitu Suðurnesja hf ákvað í dag að skipta fyrirtækinu upp í tvö aðskilin fyrirtæki og var áætlun þar að lútandi samþykkt á fundinum. Í þessari ákvörðun felst að veitukerfi fyrir raforku, hitaveitu og ferskvatn verða í sérstöku félagi, en framleiðslan og sala raforku verður í öðru félagi. 1.12.2008 15:58
Jóhanna fær Barnamenningarverðlaunin Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðasjóðs barna í ár. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og stjórnarmaður í sjóðnum, afhenti Jóhönnu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Þá var einnig úthlutað styrkjum til málefna er varðar börn fyrir alls um 8 milljónir króna. 1.12.2008 15:24
Þúsundir á þjóðfundi Boðaður þjóðfundur Borgarahreyfingarinnar hófst klukkan þrjú í dag og má gera ráð að hið minnsta tvö þúsund manns séu mætt á Arnarhól. 1.12.2008 15:18
Vinnu við fjárlagafrumvarp miðar vel Stefnt er að því að fjárlaganefnd Alþingis ljúki við umfjöllun um fjárlagafrumvarpið um næstu helgi. Önnur umræða um málið geti svo hafist 10. eða 11. desember. Þetta segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar. Hann segir að nefndin sé að taka á móti gestum þessa dagana og fara yfir málin með fulltrúum ráðuneytanna. Sú vinna gangi vel. 1.12.2008 15:00
Bankarnir komu að forsetabókinni Viðskiptabankarnir þrír Kaupþing, Glitnir og Landsbankinn komu allir fjárhagslega að nýútkominni bók Guðjóns Friðrikssonar, ævisagnaritara, Sögu af forseta. 1.12.2008 14:54
LÍÚ telur brýnt að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ segir að fréttir af ítrekuðum meintum ólöglegum veiðum færeyskra skipa í íslenskri lögsögu sýna betur en nokkuð annað hve brýnt er að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar. 1.12.2008 14:13
Íslensk stúlka í hringiðu átakanna í Mumbai Bryndís Helgadóttir, 19 ára, er íslensk fyrirsæta sem starfar á Indlandi. Hún var stödd í hringiðu atburðanna í Mumbai þegar hryðjuverkamenn gerðu mannskæðar árásir í borginni. 1.12.2008 13:55
Niðurstaða kjararáðs liggur fyrir Niðurstaða liggur fyrir um launalækkun æðstu embættismanna ríkisins og verður hún kynnt forsætisráðherra í dag. Þetta sagði Guðrún Zöega, formaður Kjararáðs, í samtali við Vísi. 1.12.2008 13:26
Sekt fyrir veggjakrot og sprengjugerð Sautján ára gamall drengur var í dag dæmdur í héraðsdómi til þess að greiða hundrað þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir veggjakrot og fyrir ólöglega meðferð skotelda. 1.12.2008 13:07
Árs fangelsi fyrir ránstilraun og líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Einar Birgi Ingvarsson, 35 ára Hafnfirðing, í dag í árs fangelsi fyrir ránstilraun og brot gegn valdstjórninni þegar hann réðst að lögreglumönnum. 1.12.2008 12:47
Hlaut skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 27 ára gamlan Reykvíking í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsrárás. 1.12.2008 12:43
Fangi á Vernd sýknaður í peningafalsmáli Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað karlmann um tvítugt af ákæru um peningafölsun. Í ákærunni var manninum gert að sök að hafa greitt með tveimur fölsuðum fimm þúsund króna seðlum fyrir pítsur, sem sendar voru til mannsins þar sem hann var vistaður á áfangaheimilinu Vernd. Dómari taldi ekki sannað, að maðurinn hefði borgað með seðlunum. 1.12.2008 12:11
Sýking breiðist út á síldarmiðum Sýking hefur fundist í síldinni sem veiddist út af Keflavík í gær, eftir að sýkingar varð vart í Breiðafirði fyrir helgi. Sjómenn líkja þessu við áfall, enda getur það tekið stofninn nokkur ár að ná sér, þar sem öll sýkt síld drepst. 1.12.2008 12:00
Vonast eftir niðurstöðu í dag Formaður Kjararáðs vonast eftir því að niðurstaða liggi fyrir um launalækkun æðstu embættismanna ríkisins á fundi ráðsins í dag. „Ég er að gera mér vonir um það, en ég veit það ekki fyrr en að loknum fundi," segir Guðrún Zoega, formaður Kjararáðs. 1.12.2008 11:37