Innlent

Rjúpnaskyttunnar leitað áfram í dag

Leit að rjúpnaskyttunni, sem saknað hefur verið í uppsveitum Árnessýslu frá því á laugardag, verður fram haldið í birtingu. Hátt í hundrað manns tóku þátt í leitinni í gær, en engar vísbendingar fundust um ferðir mannsins.

Aðeins skóf á leitarsvæðinu og fyllti í gjótur og skorninga. Leitað var þétt í þriggja kílómetra radíus frá þeim stað þar sem maðurinn sást síðast og jafnframt út fyrir það leitarsvæði, sem leitað hefur verið undanfarna daga. Leitarfyrirkomulagið verður endurskipulagt núna með morgninum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×