Innlent

Félag fréttamanna: Afþakka fréttalestur útvarpsstjóra

Páll Magnússon útvarpsstjóri.
Páll Magnússon útvarpsstjóri.

Almennur fundur Félags fréttamanna fordæmir uppsagnir á fréttasviði Ríkisútvarpsins um mánaðamótin. Fundurinn krefst þess að uppsagnirnar verði dregnar til baka. Nú, þegar aldrei hefur verið nauðsynlegra að halda úti öflugri fréttaþjónustu er ráðist að grunnstarfsemi- og lögbundnum skyldum Ríkisútvarpsins með uppsögnum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félagi fréttamanna nú í kvöld. Þar segir ennfremur:

„Fundurinn harmar skilningsleysi útvarpsstjóra á hlutverki RÚV og afþakkar framvegis fréttalestur hans. Þá er þess krafist að hætt verði við áform um að leggja niður svæðisútsendingar Ríkisútvarpsins. Fundurinn hafnar alfarið boðuðum launalækkunum almennra starfsmanna undir hótun um brottrekstur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×