Innlent

Hreinn Loftsson vill kaupa Morgunblaðið

Breki Logason skrifar
Hreinn Loftsson
Hreinn Loftsson

Hreinn Loftsson stjórnarformaður og aðaleigandi Birtíngs segir marga kosti fylgja sameiningu félagsins og Árvakurs. Hann staðfestir í samtali við Vísi að Birtíngur hafi óskað eftir viðræðum við lánardrottna Árvakurs um möguleg kaup á útgáfu Morgunblaðsins. Hreinn segir að góður árangur hafi náðst í hagræðingu og sparnaði hjá Birtíngi undanfarið.

„Útgáfustarfsemi fyrirtækisins sýnist mér falla vel að Morgunblaðinu og ekki spurning að þessir miðlar eiga vel saman. DV hefur verið að vaxa ásmegin að undanförnu og hefur verið tryggð frjáls ritstjórnarstefna sem þarf ekki á neinn hátt að vera hin sama og hjá Morgunblaðinu, enda um ólíka miðla að ræða og sjálfstæði ritstjórnanna yrði tryggt," segir Hreinn.

Hann bætir því við að Morgunblaðið sé varfærið og traust í fréttaflutningi sínum en um leið vettvangur frjálsra skoðanaskipta þar sem öllum er gefinn kostur á að setja fram sjónarmið sín, innan eðlilegra velsæmismarka. „Þetta verður að varðveita og ekki spurning að það verður gert í hugsanlegu sameiginlegu eignarhaldi."

Hreinn segir að áherslur sínar hjá Birtíngi hafi veirð að tryggja DV og tímaritunum rekstrargrundvöll og það yrði einnig meginmarkmiðið hvað snertir Morgunblaðið. „Unnið er að því að safna saman hópi fjárfesta sem vilja koma að slíkri útgáfu og ekki spurning að slíkur hópur mun forða blaðinu frá þeim örlögum að verða málgagn þröngs hóps í Sjálfstæðisflokknum."

Aðspurður hverjir muni hugsanlega vera í þeim hópi vill Hreinn ekki gefa það upp að svo komnu máli.

„Morgunblaðið verður að standa undir því að vera blað allra landsmanna. Þá verður að undirstrika að þó að ég hafi haft og hafi tengsl við Baug Group hf. sem lögmaður og hluthafi á undanförnum árum að þá hafa orðið skýr skil á milli þess fyrirtækis og útgáfufélagsins Nýrrar sýnar, sem gefur út Fréttablaðið og kem ég þar hvergi nærri. Ekki verður því séð að um neinar samkeppnislegar hindranir væri að ræða þó að af slíkum samrekstri og samstarfi yrði."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×